Þjóðmál - 01.06.2010, Blaðsíða 122
120 Þjóðmál SUmAR 2010
Suu geti velt herforingjastjórninni úr sessi
og komið á lýðræði og eðlilegu þjóðfélagi í
Búrma, lausu úr greipum óttans .
Í tuttugu ár hefur Suu verið meira og
minna í stofufangelsi með mismikið svigrúm
til að eflast af samneyti við aðra . Erfitt er
að átta sig á því hve öflugir fylgismenn
hennar eru eftir áratuga harðræði . Gæti
hún enn orðið leiðtogi, rétt eins og Nelson
Mandela eftir sína enn lengri fangavist?
Hafa áhugasvið hennar þróast út í trúmál,
fremur en stjórnmál og einveran dregið
úr leiðtogahæfninni? Árin líða og lykil
atburðirnir fjarlægjast úr hugum manna, en
píslarvætti hennar er táknrænt fyrir píslarvætti
allrar búrmönsku þjóðarinnar og hún er ekki
einn af gleymdu samviskuföngum heimsins .
Þvert á móti og þrátt fyrir slakan árangur
hefur alþjóðasamfélagið látið sig mál hennar
varða . Framtíð Búrma er auðvitað háð því að
landið brjótist út úr viðjum einangrunar og
þar myndi miklu skipta að friðarverðlauna
hafi Nóbels væri þar í brúnni .
Bók Jakobs F . Ásgeirssonar veitir engin
óyggj andi svör varðandi framtíð Suu og
Búrma, en hún varpar sannarlega skýru ljósi
á spurn inguna .
Við höfum engin áhrif
og skiptum engu máli
Gunnar Þór Bjarnason: Óvænt áfall eða
fyrirsjáanleg tímamót? Brottför Bandaríkjahers frá
Íslandi: aðdragandi og viðbrögð, Háskólaútgáfan,
Reykjavík 2008, 168 bls .
Eftir Styrmi Gunnarsson
Það er fróðlegt fyrir þá, sem hafa fylgzt með umræðum um aðild Íslands að
Atlantshafsbandalaginu og veru bandaríska
varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli nánast frá
upphafi að kynnast því hvernig þessir mikil
vægu þættir í nútímasögu okkar Íslendinga
koma nýjum kynslóðum fyrir sjónir . Í um
fjöllun þeirra vantar þær sterku tilfinningar
Að ofan: Eiginmaður Suu, Michael Aris, í garðinum
við 15 Park Town í Oxford . Til hægri: Suu með
drengjum þeirra Michaels, Alex and er og Kim, sem
báðir eru núna komnir á fertugsaldur .
ur .