Þjóðmál - 01.06.2012, Side 19

Þjóðmál - 01.06.2012, Side 19
18 Þjóðmál SUmAR 2012 ingur almennings við stjórnvöld var þarna yfirgnæfandi . En eru slíkar stjórnir „lýð­ ræðislegar?“ Hitler var, eins og prestar þjóð­ kirkjunnar, lýðræðislega kosinn einu sinni . Síðan sátu menn uppi með hann . Stuðn­ ingi almennings var nefnilega í þess um ríkjum viðhaldið með skipulegum áróðri, miskunnarlausri innrætingu þegn anna og ritskoðun . Þó hafa þessar stjórnir og fleiri slíkar örugglega fullnægt því skilyrði að hafa stuðning þegnanna og verið í þeim skiln ingi „lýðræðislegar“ . Fólk í þessum löndum var á valdi Grillunnar, hugmyndafræð innar, hins eina, stóra sannleika og vei þeim sem ekki vildi samþykkja hina opinberu, „pólitísku rétthugsun“ ríkjandi valdhafa . ÍBiblíunni segir: „Þú skalt enga aðra guði hafa .“ Í skjóli þess áttu þeir sem létu í ljósi efa um þágildandi „pólitíska rétthugsun“ yfir höfði sér að vera taldir, jafnt af stjórnvöldum sem almenningi, í tygjum við djöfulinn og voru iðulega brenndir . Í því andrúmslofti ofstækis og haturs, sem ríkjandi „pólitísk rétthugsun“ hefur getið af sér hér á Vesturlöndum undir forystu vinstri manna verður sífellt hættulegra að efast um hinn opinbera sannleika stjórnvalda . Slíkur maður á yfir höfði sér að teljast „homma­ hatari“, „karlrembusvín“, eða, sem er allra verst, „rasisti“, jafnt af almenningi sem stjórnvöldum en það er fyllilega sam bæri­ legt við að vera talinn í tygjum við djöf ul­ inn á miðöldum . Með hjálp talhlýðinna einfeldninga hefur verið komið upp lagasetningu, sem getur sent hvern þann sem lætur í ljós minnsta efa um opinberar kenningar í tveggja ára fangelsi og refsingarnar munu vafalaust þyngjast með tímanum . Það furðulega og hlálega er, að allt fer þetta fram í nafni „lýðræðis“ og „mannréttinda“ . Þetta eru falleg orð og vinstra fólk er hugfangið af orðum og endurtekur orð sem því finnast falleg í sífellu . Þeir vilja ólmir styðja „góðan málstað“, en af því að þetta eru nú einu sinni vinstri menn þarf alltaf að segja þeim hvaða málstaður sé góður . Orðin hljóma fallega, en sjálft inntak þeirra virðast ekki skipta þetta fólk máli . En við hverju er að búast í landi, þar sem sjálfur „mannréttindaráðherrann“ er alkunnur Kúbuvinur og flest allir ráðherrar og sjálfur forseti landsins koma úr þeim stjórnmálaflokki, Alþýðubandalaginu, sem gekk í kalda stríðinu lengst allra í stuðningi við og aðdáun á gúlagi og alræðiskúgun? Í landi, þar sem ýmsir núverandi æðstu valdamenn hafa sýnt í verki raunverulega afstöðu sína til lýðræðis og mannréttinda m .a . með því að gera sér það ómak að ganga í eða beinlínis stofna alveg sérstök „vináttu­ félög“ við blóði drifnar alræðisstjórnir í fjar­ lægum heimshlutum? (Hvað hefði verið sagt ef einhverjir sjálfstæðismenn hefðu stofnað „vináttufélag“ við Pinochet eða Batista?) En á meðan slíkur skilningur á lýðræði og mannréttindum er ríkjandi meðal æðstu valdamanna er ekki við öðru að búast . Auk þess virðast menn almennt ekki skilja, að í alveg hreinu alræði er engin þörf á ritskoðun . Allir eru sammála . Í Norður­ Kóreu t .d . þarf í rauninni ekki að ritskoða, því að allir fjölmiðlamenn og aðrir sem tjá sig á opinberum vettvangi eru starfsmenn rík isins og hafa hlotið menntun sína á veg um stjórn valda . Þeir endurtaka því (svipað og t .d . fréttamenn RÚV) að sjálfsögðu þær skoð anir sem þeim hafa verið kenndar og ríkjandi eru hvarvetna í þjóðfélaginu . Hver sem lætur í ljós minnsta efa um hina opinberu kenn­ ingu lendir í sömu stöðu og sá, sem er sak­ aður um að vera hommahatari, karlrembu­ svín eða rasisti hér á Vesturlöndum . Hann verður útskúfaður og dæmdur, ekki aðeins af stjórnvöldum, heldur einnig af öllum almenn ingi . Mér dettur í hug múgurinn, sem

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.