Þjóðmál - 01.06.2012, Síða 56
Þjóðmál SUmAR 2012 55
frammi fyrir kerfishruni í september 2008 .
Paulson jr . segir að það hafi komið verulega
á óvart hvað þetta gerðist hratt . Hann lýsir
því í hvers konar fjármálalegum hvirfilbyl
hann og ríkisstjórn Bandaríkjanna voru
lent og hvernig taka þurfti ákvarðanir á
örskotsstundu án þess að nokkur tími væri
til að velta þeim fyrir sér eða úthugsa hvort
þær væru endilega þær bestu . Ekki voru
sérstakir fundir haldnir með margra mánaða
fyrirvara í þessu stærsta og voldugasta
fjármálaríkis heims um hugsanlegan vanda
bankakerfisins og hrun einstakra banka .
Annar stjórnmálamaður, Alistair Darling,
sem var fjármálaráðherra Breta árið 2008,
lýsir málum varðandi bankakreppuna
haustið 2008, í bók sinni Back From the
Brink, sem kom út s .l . haust . Þar segir hann
m .a um ástandið seinni hluta árs 2008:
The collapse of banks across the globe was
not on people´s mind . There were those
— some academics, a few economists —
who worried about some of the stresses
and strains building up within the
financial system, much as people worry
about earthquakes or tsunamis, but it is
fair to say that no one foresaw the crisis
that lay ahead . Since then many people
have claimed to have predicted what
was to happen . Most of them failed to
mention it at the time .
Á öðrum stað í bók sinni lýsir hann 7 .
október 2008 þegar bankastjóri eins stærsta
banka í heimi, Royal Bank of Scotland,
hringir í hann og segir að þeir séu að verða
peningalausir . Darling spyr hvað þeir hafi
peninga í marga daga . Bankastjórinn svarar,
í mesta lagi nokkra klukkutíma .
Frásögn breska fjármálaráðherrans lýsir
því e .t .v . best hvað gerðist . Þetta var ekkert
ósvipað jarðskjálfta eða flóðbylgju . Það á
engin von á slíku fyrirfram . Viðbrögðin og
viðbragðsáætlanirnar eru því almennar en
ekki sérhæfðar miðað við það sem gerist
jafn óvænt . Viðbrögð og aðgerðir vegna
Royal Bank of Scotland voru því teknar í
snarhasti á álíka forsendum og aðgerðir
varðandi Glitni banka í september 2008 .
Engum hefur dottið í hug að draga Alistair
Darling fyrir dóm fyrir að hafa ekki séð
hrunið fyrir eða halda fundi um mögulegan
vanda breskra banka . Hvað þá að hafa
sérstaka viðbragðsáætlun tilbúna varðandi
Royal Bank of Scotland .
Við lentum hér í svipuðum aðstæðum
og þeir lýsa báðir, Paulson jr . og Darling .
Í Bretlandi og Bandaríkjunum fengu
stjórnvöld að vinna úr vandanum og voru
taldir ákveðnir bjargvættir eftir að bankarnir
höfðu með ábyrgðarlausum hætti komið
sjálfum sér í óafsakanleg vandamál . Hér á
landi var forsætisráðherra dreginn fyrir dóm
og dæmdur fyrir að halda ekki fund með
dagskrárliðnum:
„Mögulegur vandi bankakerfisins .“
Samt sem áður er fólk sammála um það í
dag að hvergi var gripið til farsælli aðgerða
varðandi hrun bankanna en einmitt hér
á landi . Það var gert vegna þess að við
búnaður var fyrir hendi og á þeim tíma var
stjórnsýslan á Íslandi að vinna góða vinnu .
VI .
Þegar litið er til umræðunnar í löndum sem lentu í alvarlegri fjármála krísu,
þá sker Ísland sig úr vegna þess hversu
stjórnsýslumiðuð hún hefur verið . Hvernig
stendur á því að meira að segja meiri
hluti landsdóms stendur í þeirri trú að
forsætisráðherra hafi séð fyrir banka hrunið
mörgum mánuðum áður en það gerðist,
þegar fjármálaráðherra stærsta fjármála veldis
heims og þess fimmta sáu vandann ekki fyrr
en þeir voru lentir í hvirfilbyl banka hruns
og fjármálaerfiðleika .