Þjóðmál - 01.06.2012, Side 75
74 Þjóðmál SUmAR 2012
mæla utanríkisráðherra Sví þjóð ar, Carls
Bildts, er hann tók við umsókn Ís lands um
aðildarviðræður við ESB úr hendi utan
ríkisráðherra Íslands, Össur ar Skarp héð
ins sonar, en þau voru á þá leið, að sterk
ustu meðmælin fyrir hraðferð Íslands inn
í ESB væri aðgöngumiðinn að norður
svæðunum, sem Ísland byði ESB upp á .
Þetta sýndi, að utanríkisráðherrum Íslands
og Svíþjóðar var í júlí 2009 mikið í mun
að sæta færis og innlima Ísland í skyndingu
á meðan Íslendingar væru enn í sárum eftir
Hrunið .4
Framferði ESB á Íslandi
Tómas Ingi Olrich, fyrrverandi menntamálaráðherra og sendiherra, er vel
að sér um málefni ESB og markmiðin,
sem búrókratar og aðrir stefnumótendur
þar á bæ hafa sett sér um málefni ESB .
Hann er jafnframt þaulkunnugur siðum
og hefðum, sem tíðkast ríkja í millum .
Þann 2 . apríl 2012 birtist eftir hann grein
í Morgunblaðinu, „Summa diplómatískra
lasta“. Þar rifjar hann upp fortíð allmargra
ESBríkja sem nýlenduherra og telur, að
enn eimi eftir af þessu tímabili, þ .e . að
stjórnkerfi ESB dragi dám af þessu viðhorfi
„herraþjóðanna“ gagnvart t .d . smáríkjum .
Þá bendir hann á, að Timo Summa, sendi
herra ESB, fari hér um sveitir á vegum
upp lýsingamiðstöðvar ESB á Íslandi með
það að stefnumiði að móta umræðuna um
tengsl Íslands við ESB .
Tómas Ingi bendir á, að framferði ESB á
Íslandi sé klárt brot á Vínarsáttmálanum,5
sem tryggi sendimönnum erlendra ríkja
frelsi í gistilandinu gegn því að skipta
sér ekki af innanlandsmálefnum . Með
Evrópu stofu virðist ESB þó hafa komið á
laggirnar áróðursmiðstöð fyrir málstað sinn
á Íslandi og gerir síðan menn út af örkinni
til að boða fagnaðarerindið, eins og um
kosningabaráttu sé að ræða . Þetta eru firn
mikil .
Hvað getur búið að baki því, að ESB
stígur það skref að brjóta Vínarsáttmálann
á Íslendingum með ærnum tilkostnaði og
hættir um leið á andsefjun landsmanna og
niðurlægingu sína fyrir tilstuðlan annarra
stórvelda, s.s. Rússlands, Kína og BNA?
Svarið getur aðeins verið eitt . Forkólfar
ESB taka þessa áhættu vegna þess, að þeim
þykir mikið í húfi að takast megi að innlima
Ísland í ríkjasambandið . Þessa niðurstöðu
má styðja með þeim hagsmunarökum,
sem tíunduð eru framar í þessari grein .
ESB virðist hafa mótað sér stefnu um
„Drang nach Norden“ eða sókn til norðurs .
Forkólfar í Berlaymont í Brüssel kunna að
hafa haldið, að eftir Hrunið haustið 2008
hafi rétta stundin verið runnin upp til að
ná áhrifum á Íslandi, sem enda myndi með
hruni fullveldis landsins í sinni núverandi
mynd, þegar því væri deilt með tæplega 30
öðrum ríkjum Evrópu .
Sennilega er hér um að ræða tangarsókn
til norðurs, þar sem vestari klónni er beitt
fyrst, og að árangri þar náðum verði þeirri
eystri beitt og áherzla lögð að nýju á að
innlima Noreg í stórríkið .
Valkostir Íslands
Í slandi og Noregi ríður á samstöðu til að hamla gegn ásælni evrópska stórríkisins .
Því miður hafa Norðmenn tekið sér stöðu
með ESB gegn Íslendingum og Færeyingum
í svo nefndri makríldeilu . Sú deila, sem fjallar
um samnýtingu makrílstofnsins, kristallar
hagsmunabaráttuna, sem verður að taka
mið af, þegar metið er, hvernig hagsmunum
Íslands verði bezt borgið í nútíð og framtíð .
Ef Brüssel á að fara með hagsmunagæzlu
fyrir hönd Íslendinga, verður iðulega
tekið mið af höfðatölunni og Íslendingum
skammtaður skítur úr hnefa, t .d . 5% úr