Þjóðmál - 01.06.2012, Page 87
86 Þjóðmál SUmAR 2012
í Reykjavík um miðnætti föstudags 4 . maí .
Hann fullvissaði blaðamann China Daily
um að hann mundi rita undir samning við
Íslendinga um miðjan júní en „ræða þurfi
nánar um einstök atriði samningsins“ .
Huang sagði við kínverska blaðið að
í öllu þessu ferli hefði hann lagt gott til
mála með því að segja frá eigin reynslu
við að hverfa frá störfum sem opinber
embættismaður og gerast fésýslumaður
á eigin vegum á þeim 30 árum sem
breytingar hefðu orðið í Kína og frjálsræði
aukist . Segir blaðið að Huang hafi unnið
við deild kínverska kommúnistaflokksins
og í mannvirkjaráðuneytinu á níunda
áratugnum en sagt skilið við þessi störf í
upphafi tíunda áratugarins þegar margir
embættismenn hafi haslað sér völl í
viðskiptalífinu í góðærinu .
„Í fylgd með mér er hópur manna sem
hefur vegnað vel í viðskiptum eins og mér .
Vesturlandamenn vita lítið um þessa breyt
ingu . Saga mín auðveldar þeim að skilja Kína
og það sem er að gerast hér,“ sagði Huang
Nubo við China Daily 5 . maí 2012 .
Þegar Huang Nubo taldi sig á grænni
grein gagnvart Íslendingum sló hann um
sig í Kína sem brautryðjandi í samskiptum
við Vesturlönd . Sér hefði tekist nokkuð sem
væri öðrum til fyrirmyndar .
Í fréttum var skýrt frá því að eitt hið fyrsta
sem Huang þyrfti að gera væri að leggja
flugbraut á staðnum .
Á ruv.is sagði eftir ríkisstjórnarfundinn 4 . maí 2012 að deilt hefði verið um
leiguna til Huangs Nubos á fundinum .
Iðnaðarráðherra litist ágætlega á verkefnið
en innanríkisráðherra ekki .
Talsmaður Huangs sagði í samtali við
fréttastofu RÚV að ívilnanir í þágu um
bjóðanda síns væru forsenda þess að hægt
væri að ljúka formlega samningum um
verkefnið . Með kaupum sveitarfélaga á
Norður og Austurlandi á 70% jarðarinnar
og leigu til Huangs Nubos til 40 ára yrði
„komist fram hjá lagalegum hindrunum
um fjárfestingu útlendinga utan EES
svæðisins,“ eins og sagði í fréttinni . Oddný
G . Harðardóttir, starfandi iðnaðarráðherra,
væri fylgjandi þessari leið .
„Sjálfri lýst mér ágætlega á það en
auðvitað þurfum við að skoða hvernig leigu
samningurinn er uppbyggður og hvaða
skilyrði eru þar sett og síðan verð um við
auðvitað að fara yfir umhverfis málin og
skipulagsmálin í því samhengi,“ sagði Oddný
við RÚV að ríkisstjórnar fundi lokn um .
Haft var eftir Ögmundi Jónassyni innan
ríkisráðherra:
Grundvallarreglan í íslenskum lögum er sú að
fjárfestingar af þessu tagi séu ekki heimilar .
Hinsvegar er nefndin [um ívilnandi leyfi til
fjárfestinga] að skoða lög sem heimila ívilnanir
og frávik frá þessari grundvallarreglu . Og það
er nokkuð sem við þurfum að skoða og gera
málið upp í heild sinni þegar allar staðreyndir
liggja fyrir . Það gera þær ekki ennþá .
Ögmundur Jónasson lá ekki á skoðun sinni
á málinu þegar hann sagði á vefsíðu sinni 4 .
maí 2012:
Auðjöfurinn Huang Nubo sem er í for svari
fyrir kínversku fjárfestingasamsteyp una sem
vill fá afnotarétt yfir Grímsstöðum á Fjöll um
til að reisa þar 20 þúsund fermetra hótel
húsnæði og gera flugvöll á svæðinu til að
fljúga með túrista til að njóta einsemdar innar
í Herðu breiðarlindum, hrósar nú happi yfir
því að innanríkisráðherra Íslands sé ekki í
færum (lengur) til að eyðileggja áform sín .
Erlend ríki fylgjast með þessum tilraun
um Kínverja að fá fótfestu á Íslandi . Þau
líta flugvallardraumana öðrum augum en
ís lenskir sveitarstjórnarmenn við samn
ingaborð Núb ós . Þar hafa menn stór velda
hags muni í huga, líka þegar menn segjast
vilja kíkja upp í him in t unglin, eða voru það
Norð ur ljósin? [ . . .]