Þjóðmál - 01.03.2014, Side 49
48 Þjóðmál voR 2014
Bréf Víglundar
– Alvarlegar ásakanir sem verður að fá botn í
Hinn 24 . janúar 2014 birti Víglundur Þor
steins son, fyrrverandi forstjóri
BM Vallár, opið bréf í Morgun-
blað inu til Ein ars K . Guð finns
sonar, for seta Alþingis . Víg lundur sneri sér
til þing forsetans þar sem hann velti fyrir sér
hvort alþingismenn kynnu að ákveða að
stefna einhverjum ráð herra eða ráðherrum
í ríkisstjórn Jó hönnu Sigurðardóttur fyrir
landsdóms vegna þess sem lýst var í bréfinu .
Þar var skýrt frá því sem við Víglundi blasti
eftir að úrs kurð ar nefnd um upplýsingamál
af henti honum fundargerðir stýrinefndar
stjórn valda um samninga við erlendu
kröfuhafa bankanna árið 2009 .
Víglundur telur að fundargerðirnar stað
festi að vorið og sumarið 2009 hafi fram
kvæmda valdið unnið „hörðum höndum að
því að fara framhjá reglum neyðar laga nr .
125/2008 um endurreisn íslensku bank
anna og meðferð skulda heimila og fyrir
tækja,“ eins og segir í bréfinu .
Um mánaðamótin febrúar/mars 2009
ákvað ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur,
sem var mynduð 1 . febrúar 2009, að hefja
samn ingaviðræður við erlenda kröfuhafa
bankanna um það hvernig þeir gætu fengið
meira í sinn hlut úr nýju bönkunum sem
stofnaðir höfðu verið með setningu neyðar
laganna nr . 125/2008 en mælt
var fyrir um í neyðarlögunum .
Ríkisstjórnin réð erlenda
lögfræði fyrirtækið Hawkpoint
til að gæta hagsmuna kröfu
hafanna . Víglundur segir að ríkið hafi
látið eins og fyrirtækið væri að gæta sinna
hagsmuna þótt það þjónaði erlendu
kröfuhöfunum og þess vegna virðist sér sem
kostnaði af samningi við fyrirtækið hafi
verið velt á herðar skattgreiðenda .
Fyrsti fundur hinnar sérstöku stýri
nefnd ar, sem skipuð var fulltrúum þriggja
ráðu neyta til að hafa yfirumsjón með
samningu m við erlendu kröfuhafana, var
hald inn 10 . 3 . 2009 . Virðist engin fundar
gerð hafa verið rituð af þeim fundi . Það
eina sem getur að lesa um hann er í fundar
gerð 2 . fundar sem haldinn var hinn 17 . 3 .
2009 . Þar er skráð að Guðmundur Árna
son, ráðu neytisstjóri fjármálaráðu neyt is ins,
hafi gefið skýrslu um 1 . fund .
Í fundargerðinni frá 2 . fundi stýri nefnd
ar innar frá 17 . mars 2009 má lesa (allar
fundargerðir voru skráðar á ensku):
„The state wants to appease the creditors
to the extent possible . The negotiations are
however bilateral between the state and the
financial advisors of the old banks .“
Þennan texta má þýða svo:
ÞJÓÐMÁL
• ÚTTEKT •