Gerðir kirkjuþings - 2009, Blaðsíða 8
8
rækta þau gildi, þau verðmæti sem gera okkur að manneskjum, sem þíða freðin hjörtu
og glæða hið góða hjartalag. Umhyggjan er uppspretta vonar.
Kreppan setur spurningarmerki við margar grundvallarforsendur efnahagskerfa sem
lengi hafa verið hafnar yfir efa. Hún hefur líka varpað ljósi á hinar mikilvægu andlegu
og siðgæðislegu hliðar efnahagslífs og fjármála. Við munum búa við afleiðingar
kreppunnar um langa hríð og þær munu hafa afgerandi áhrif á stofnanir og sam-
félagskerfi. Þjóðkirkjan mun ekki fara varhluta af því.
Kreppan hefur leitt í ljós að efnahagslífið og auðsöfnunin var að miklu leyti byggð á
skuldsetningu. Ríkidæmi sem byggt hefur á lánum og skuldsetning undangenginna ára
getur ekki talist auðlegð. Eitt mikilvægasta uppeldisverkefni okkar daga er að stuðla
að nýjum lífsstíl sem virðir takmörk auðlinda og uppörva kristið siðgæði, virðingu og
hófsemi, samstöðu, náungakærleika.
Við horfum fram á stórvaxandi atvinnuleysi á Íslandi. Alvarlegastur er vandi ungs
fólks sem býr við langtíma atvinnuleysi og er veruleg hætta búin að lokist inn í
vítahring úrræðaleysisins. Til að rjúfa þann vítahring þarf samstillt átak hinna mörgu.
Söfnuðir og stofnanir þjóðkirkjunnar gegna þar sannarlega mikilvægu hlutverki.
Prestar og djáknar um land allt hafa staðið í eldlínu sálgæslunnar. Sóknarnefndarfólk
og annað forystufólk kirkjunnar hefur lagt sig fram um að hafa opnar kirkjur og kynna
þá starfsemi sem þar er og greiða götu þess starfs sem eflir og glæðir lífsþrótt, von og
trú. Þau eru æði mörg um land allt sem í erfiðleikum sínum hafa fundið sæluhús í
kirkju sinni og safnaðarheimili.
Mikilvægt er að yfirvöld gaumgæfi hinar siðferðislegu víddir kreppunnar og stuðli að
aukinni ábyrgð og gagnsæi fjármálastofnana, að tryggja uppbygging efnahagslífs sem
lýtur frumforsendum réttlætis og sjálfbærni til að spilla ekki lífsskilyrðum komandi
kynslóða. En jafnframt því verðum við hvert og eitt að halda vöku okkar í þessum
efnum og gæta að því sem gerir okkur að þjóð meðal þjóða, menningarþjóð, sem
ræktar þau gildi sem þjóðinni hafa gefist best, trúfesti við tungu og þjóðmenningu, trú
og kærleika til Guðs og náungans, og hollar hefðir hins kristna siðar. Það er
grundvöllur hins góða samfélags, velferðar og hagsældar landi og lýð.
Það hvílir blessun yfir landi og þjóð, þrátt fyrir allt. Verði svo áfram og um ókomin ár
og daga.
Hér á landi oss Herrann sá
og huggaði öll í máta.
Því vil ég elska Ísaláð
og yfir það kalla Drottins náð
og aldrei af því láta.
Kirkjuþing 2009 er sett.