Gerðir kirkjuþings - 2009, Blaðsíða 71
71
XII. Vígsla til þjónustu
Hin vígða þjónusta
Þjónustan, embættið, í kirkjunni er köllun til þjónustu í söfnuði Krists. Frá öndverðu
og til þessa dags er þjónustan afhent með vígslu. Þar lýsir kirkjan því yfir að hún lifir í
samhengi postulanna og þjónn hennar, vígsluþeginn, er sérstaklega kallaður og frá-
tekinn til að varðveita trúna á þeim grundvelli.
Kirkjan er líkami þar sem limir hennar hafa mismunandi hlutverk og náðargáfur. Í
kirkjunni hefur Guð sett postula, spámenn og kennara til að leiða og næra hjörð sína.
Þeir bera fagnaðarerindið áfram með orðum og verkum, þjónustu sakramentanna og í
þjónustunni við náungann, umfram allt við nauðstadda og sjúka. Þannig er hin vígða
þjónusta ein þeirra leiða sem Drottinn notar til að halda áfram verki sínu, að tala og
verka á jörðu.
Hin vígða þjónusta er ein þótt mismunur sé á verkefnum og umboði biskups, prests og
djákna. Við vígslu vinnur vígsluþegi heit þar sem hann lýsir sig fúsan að inna þjón-
ustu sína af hendi af trúmennsku við trú og játningar kirkjunnar og vitna um kærleika
Guðs með líferni sínu. Með handayfirlagningu og bæn um leiðsögn heilags anda er
vígsluþegi frátekinn til hins sérstaka hlutverks. Kirkjan umlykur vígsluþega fyrirbæn
sinni og sendir hann til að boða Krist í orði og verkum og vera sendiboði hans. Hinn
vígði þjónn fær styrk af því í daglegu lífi sínu að vera sendur með erindi kirkjunnar.
Vígslan
1. Vígsla til þjónustu í þjóðkirkjunni felur í sér heit vígsluþegans, fyrirbæn og
handayfirlagningu biskups.
2. Vígsluþeginn heitir því að inna þjónustu sína af hendi í samræmi við trú og
skipan þjóðkirkjunnar. Áminningar og heit vígslunnar eru skuldbindandi fyrir
líf og þjónustu vígsluþega.
3. Vígsla hefur í för með sér að vígsluþegi lýtur tilsjón biskups Íslands.
4. Til að hljóta vígslu í þjóðkirkjunni þarf að fullnægja eftirtöldum skilyrðum:
vera skírður, tilheyra þjóðkirkjunni og uppfylla að öðru leyti skilyrði laga og
starfsreglna um embættisgengi og starfsþjálfun.
5. Biskup Íslands annast vígslur til kirkjulegrar þjónustu og vígslubiskupar í
umboði hans.
Biskupsvígsla
6. Biskup Íslands vígir biskupa.
7. Biskupsvígsla fer fram í dómkirkju.
Prestsvígsla
8. Biskup Íslands annast prestsvígslur eða vígslubiskup í umboði hans. Að lok-
inni prestsvígslu gefur biskup Íslands út vígslubréf sem birt skal þeim söfnuði
(söfnuðum, stofnunum) sem prestur er vígður til.
9. Prestsvígsla fer fram í dómkirkju.
Djáknavígsla
10. Biskup Íslands annast djáknavígslur eða vígslubiskup í umboði hans. Að lok-
inni djáknavígslu gefur biskup Íslands út vígslubréf sem birt skal þeim söfnuði
(söfnuðum, stofnunum) sem djákni er vígður til.
11. Djáknavígsla fer fram í dómkirkju.