Gerðir kirkjuþings - 2009, Blaðsíða 34
34
Útskálar
Kirkjuráð hefur samþykkt með fyrirvara um samþykki kirkjuþings kauptilboð í
jörðina Útskála í sveitarfélaginu Garði. Kaupandi er sveitarfélagið. Undanskilið söl-
unni verða hæfileg lóð fyrir kirkju, kirkjugarð og prestssetrið, Skagabraut 30 sem
staðsett er innan Útskálajarðarinnar. Vísað er 15. máls kirkjuþings 2009.
Hús á Vopnafirði
Kirkjuráð hefur samþykkt kauptilboð í fasteignina Hamrahlíð 12, Vopnafirði þar sem
núverandi prestbústaður hentar ekki fjölskyldu prestsins vegna fötlunar barns hans.
Kirkjumálasjóður mun leigja prestsbústaðinn á Hofi út ásamt hæfilegu landrými, en
hlunnindatekjur sóknarprestsins verða með óbreyttum hætti.
Vísað er 15. máls kirkjuþings 2009.
Prestsbústaður á Sauðárkróki
Kirkjuráð hefur samþykkt kaup á fasteigninni Barmahlíð 7, Sauðárkróki sem prests-
bústað þar sem fyrri prestbústaður hentaði ekki fjölskyldu prestsins vegna fötlunar
barns hans.
Fyrri prestsbústaður að Víðihlíð 8 hefur verið seldur. Kirkjuþing 2008 veitti heimild
til sölunnar.
Vísað er 15. máls kirkjuþings 2009.
Bergþórshvoll I
Kirkjuráð hefur gengið frá sölu á Bergþórshvoli I að fjárhæð 68 milljónir króna.
Kirkjuþing 2008 veitti heimild til sölunnar.
Prestsbústaður á Fáskrúðsfirði
Kirkjuráð hefur gengið frá kaupum á fasteigninni Króksholt 1 á Búðum, Fáskrúðs-
firði, vegna lélegs ástands prestsbústaðarins á Kolfreyjustað. Var ljóst að ekki væri
hægt að afhenda nýskipuðum sóknarpresti prestssetrið á Kolfreyjustað í núverandi
ástandi og að fenginni tillögu sóknarnefndar var ráðist í að kaupa húsnæði á Búðum
sem prestsbústað þar til ákveðið hefur verið endanlega um framtíðarstaðsetningu
prestssetursins.
Vísað er 15. máls kirkjuþings 2009.
Mælifell, Skagafjarðarprófastsdæmi
Sr. Ólafur Hallgrímsson, fv. sóknarprestur, sem látið hefur af störfum hefur fengið
leigða fyrrum prestssetursjörðina Mælifell.
Háls í Fnjóskadal
Eignin skiptist í Háls I, jörð ásamt húsakosti og Háls II, einbýlishús með þriggja
hektara lóð. Unnið er að því að afmarka endanlega lóðina fyrir Háls II og auglýsa að
því búnu eignirnar til leigu.
Eystri- Ásar, Skaftárhreppi
Ágreiningur eru um ytri mörk jarðanna Eystri og Ytri-Ása og ýmis önnur réttindamál
eru óljós. Kirkjuráð, vegna Eystri-Ása, hefur ákveðið að hefja undirbúning dómsmáls
gegn eigendum aðliggjandi jarða í samráði við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu-
neytið en íslenska ríkið er eigandi Ytri-Ása.