Gerðir kirkjuþings - 2009, Blaðsíða 74
74
• Biskup Íslands setur prófasta inn í embætti.
• Ef vígslubiskup tekur við embætti biskups Íslands skal hann settur í embætti í
dómkirkjunni. Biskup Íslands eða vígslubiskup í umboði hans annast inn-
setningu biskups í embætti.
• Þegar prestakall, eða einstaka sóknir prestakalls sameinast öðru prestakalli,
skal sú breyting jafnan mörkuð með innsetningu sóknarprests í embætti.
• Þegar vígður þjónn lýkur störfum fyrir aldurs sakir eða hverfur til annarra
starfa, skal sá kvaddur í guðsþjónustu safnaðarins við athöfn þar sem honum er
beðið blessunar.
• Þegar biskup lætur af biskupsstarfi skal hann kvaddur í dómkirkju með
sérstakri athöfn sem markar starfslok hans.
Lög, reglur og aðrar réttarheimildir
• Handbók kirkjunnar, 1981
XV. Vígslur og blessanir
Vígslur og blessanir
Allir hlutir helgast fyrir orð Guðs og bæn. Að vígja kirkju felur í sér að söfnuðurinn
með lestri Guðs orðs, bæn og heilagri kvöldmáltíð tekur helgidóminn í notkun og allt
sem ætlað er til notkunar við helga þjónustu. Helgidómurinn er frátekinn sem staður
tilbeiðslu og lofgjörðar, helgur staður friðar og kyrrðar og tákn himinsins.
Kirkjugarður er vígður með lestri Guðs orðs og bæn, frátekinn sem helgur kyrrðar- og
hvíldarreitur. Kirkjugarður er helgidómur er ber vitni um virðingu við minningu og
sögu hins látna og hina lifandi von fyrir upprisu Jesús Krists frá dauðum. Með
greftrun sinni hefur hann helgað alla jörð og hverja gröf. Fyrir upprisu hans er okkur
veitt vonin um upprisu mannsins og eilíft líf.
Vígslur
1. Vígsla felur í sér lestur Guðs orðs og bæn og yfirlýsing um að húsið,
staðurinn, hluturinn, sé frátekið til helgrar notkunar.
Kirkjuvígsla
2. Nýbyggð kirkja eða kapella skal vígð. Eins ef helgidómur er tekinn í notkun
að nýju eftir gagngerðar viðgerðir eða breytingar. Biskup annast kirkjuvígslu.
Þegar kirkjuhelgi er aftekin
3. Þegar kirkja eða kapella er ekki lengur notuð til helgrar þjónustu skal afleggja
hana með guðsþjónustu þar sem því er lýst að hún sé ekki lengur vígður helgi-
dómur. Biskup annast slíka athöfn, eða prófastur eða prestur í umboði hans.
4. Muni aflagðrar kirkju eða kapellu, skrúða og annað það er að helgri þjónustu
lýtur skal prófastur skrá sérstaklega og koma í vörslu Þjóðminjasafnsins eða til
annarra kirkna að höfðu samráði milli forstöðumanns Fornleifaverndar
ríkisins, þjóðminjavarðar og biskups eða prófasts.
Vígsla kirkjugarðs
5. Kirkjugarð eða viðbót við kirkjugarð skal vígja með sérstakri athöfn sem
prófastur annast eða prestur í umboði hans.
6. Heimilt er að lögum að taka frá óvígðan reit innan kirkjugarðs.