Gerðir kirkjuþings - 2009, Blaðsíða 16
16
1. mál kirkjuþings 2009
Flutt af kirkjuráði
Skýrsla kirkjuráðs
I. Inngangur
Núverandi kirkjuráð var kjörið á kirkjuþingi 2006, en kosið var til kirkjuþings á fyrri
hluta árs 2006. Kirkjuþing 2009 er síðasta reglulega þingið á kjörtímabilinu. Kosið
verður til kirkjuþings fyrrihluta árs 2010.
Forseti kirkjuþings er Pétur Kr. Hafstein, fyrrv. hæstaréttardómari. Forseti kirkjuráðs
er lögum samkvæmt biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson. Auk biskups sitja í kirkju-
ráði sr. Halldór Gunnarsson, Holti undir Eyjafjöllum, Jóhann E. Björnsson, Reykja-
vík, sr. Kristján Björnsson, Vestmannaeyjum og Sigríður M. Jóhannsdóttir, Akureyri.
Á kirkjuþingsárinu tók til starfa ný ríkisstjórn og nýr dóms- og kirkjumálaráðherra,
Ragna Árnadóttir.
II. Kirkjuráð
Kirkjuráð er fjölskipað stjórnvald í skilningi stjórnsýsluréttar og fer með framkvæmd
sameiginlegra málefna þjóðkirkjunnar, þar á meðal verkefna sem lög og stjórnvalds-
reglur ætla því og erinda sem vísað er til þess m.a. af hálfu kirkjuþings. Ákvörðunum
kirkjulegra stjórnvalda má almennt skjóta til kirkjuráðs til endanlegrar úrlausnar.
Undanskildar eru ákvarðanir úrskurðar- og áfrýjunarnefnda svo og ákvarðanir biskups
um kenningu kirkjunnar.
Kirkjuráðsfundir
Kirkjuráð heldur fundi að jafnaði einu sinni í mánuði á Biskupsstofu. Auk kirkjuráðs-
manna og framkvæmdastjóra sitja fundi ráðsins Ragnhildur Benediktsdóttir, skrif-
stofustjóri Biskupsstofu, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri Biskupsstofu og sr.
Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sem ritar fundargerð.
Forseti kirkjuþings hefur setið fundi kirkjuráðs þegar fjallað er um kirkjuþing. Þá
komu á fund kirkjuráðs í nóvember 2008 á meðan málefni kirkjuþings 2008 voru til
umræðu, auk forseta kirkjuþings, varaforsetarnir Margrét Björnsdóttir og Ásbjörn
Jónsson, svo og formenn fastanefnda kirkjuþings 2008, sr. Þorbjörn Hlynur Árnason,
formaður löggjafarnefndar og sr. Gísli Gunnarsson formaður allsherjarnefndar en
Einar Karl Haraldsson, formaður fjárhagsnefndar boðaði forföll.
Starfsfólk kirkjuráðs
Hjá kirkjuráði starfa sjö starfsmenn í fullu starfi. Þau eru: Framkvæmdastjóri kirkju-
ráðs Guðmundur Þór Guðmundsson lögfræðingur, Anna Guðmunda Ingvarsdóttir
lögfræðingur, Guðrún Finnbjarnardóttir fulltrúi, Höskuldur Sveinsson arkitekt og
Kristín Mjöll Kristinsdóttir innanhúsarkitekt öll á fasteignasviði. Á sviði upplýsinga-
tæknimála starfa Örvar Kárason verkefnisstjóri, en hann hefur undanfarin ár unnið að
ýmsum málefnum er varða upplýsingatækni, einkum við vefi kirkjunnar og
umsjónarmaður notendaaðstoðar, Ragna Björk Kristjánsdóttir. Hún vinnur einnig við
að þróa innri vef kirkjunnar og sér um tölvunámskeið o.fl.
Í hlutastarfi eru Magnhildur Sigurbjörnsdóttir viðskiptafræðingur á Biskupsstofu í
40% starfshlutfalli. Hún veitir sóknarnefndum ráðgjöf í fjármálum og undirbýr
úthlutanir úr Jöfnunarsjóði sókna. Þá starfar Sigurgeir Skúlason landfræðingur í 25%