Gerðir kirkjuþings - 2009, Blaðsíða 61
61
skírður karl eða kona annast skemmri skírn. Ber að tilkynna hana sóknarpresti
svo fljótt sem auðið er.
9. Skírn, fermingu, hjónavígslu, staðfestingu samvistar og útför skal jafnan
undirbúa með samtali þess prests sem athöfnina annast og aðstandenda.
Prestur ber ábyrgð á eftirfylgd við hlutaðeigendur að athöfn lokinni.
10. Ef prestur er beðinn um að annast guðsþjónustu eða helga athöfn í kirkju utan
sóknar sinnar skal hann ávallt leita leyfis þjónandi prests viðkomandi
helgidóms.
11. Sóknarprestur og sóknarnefnd bera sameiginlega ábyrgð á helgidóminum.
12. Kirkja er vígð, frátekin fyrir helga iðkun, bæn, prédikun orðsins og þjónustu
sakramentanna.
13. Ekki skal nota kirkju til annarra athafna en þeirra sem teljast samrýmast
tilgangi hennar og stöðu sem vígðs helgidóms þjóðkirkjunnar, svo sem
borgaralegra athafna eða athafna á vegum annarra trúfélaga en kristinna.
14. Þess skal jafnan gætt að annast sé um muni kirkju og búnað með virðingu fyrir
helgidóminum og að búnaður, skrúði og helgimunir séu ætíð hreinir og þeim
vel við haldið.
15. Að jafnaði skal ekki vera annað á altari en það sem viðkemur helgi-
þjónustunni: hvítur dúkur, líndúkur, stjakar fyrir lifandi ljós, Biblía, Handbók
og Sálmabók.
16. Tendra skal ljós á altari þegar guðsþjónusta fer fram eða aðrar helgiathafnir. Á
föstudaginn langa eru ekki kveikt ljós á altari.
17. Eigi skal tendra altarisljós á tónleikum, samkomum eða fundum sem ekki
teljast til helgiathafna.
Prédikunin
18. Guðsþjónusta helgidagsins er tími sem helgaður skal boðun fagnaðar-
erindisins.
19. Meginskylda prests er samkvæmt vígsluheiti „að prédika Guðs orð hreint og
ómengað eins og það er að finna í hinum spámannlegu og postullegu ritum og
í anda vorrar evangelísk-lútersku kirkju.“
20. Prédikun er útlegging orða Ritningarinnar, heimfærsla merkingar þeirra og
gildis fyrir samtímann.
21. Prédikun helgidagsins skal að jafnaði styðjast við þá ritningartexta sem
deginum eða tilefninu tilheyra samkvæmt Handbók kirkjunnar.
22. Af vígsluheiti leiðir að presti er óheimilt að prédika nokkuð það sem stríðir
gegn játningagrundvelli kirkjunnar. Eins verður prestur að gæta almenns
velsæmis í orðum. Þetta á eins við þann sem prestur fær til að boða orðið í
almennri guðsþjónustu safnaðarins.
23. Láti prestur öðrum eftir að prédika, þá ber hann ábyrgð á því að það sé í
samræmi við boðskap og trú kirkjunnar.
Afnot kirkju
24. Sóknarprestur ákvarðar um notkun helgidómsins til kirkjulegrar þjónustu,
guðsþjónustu og annarra kirkjulegra athafna þjóðkirkjunnar og ber ábyrgð á að
ekkert fari þar fram sem ekki samrýmist vígðum helgidómi þjóðkirkjunnar.
25. Sóknarnefnd með samþykki sóknarprests ákveður um notkun kirkju til annarra
hluta en áskilið er í 12. gr.
26. Sóknarprestur veitir í samráði við sóknarnefnd leyfi til að lána eða leigja
kirkju til guðsþjónustu og helgiathafna annarra kristinna trúfélaga.