Gerðir kirkjuþings - 2009, Blaðsíða 33
33
árlega 12,4 milljónir króna. Í ágúst s.l. var Biskupsstofu kynnt sú ákvörðun að fjár-
málaráðuneytið vildi endurskoða þennan samning með tilliti til verulegrar lækkunar á
framlagi sínu. Nýlega barst svo biskupsstofu yfirlýsing frá dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu um að framlag ríkisins til Hallgrímskirkju árin 2013-2018 yrði kr. 5 millj.
á ári eða kr. 30 milljónir alls og Reykjavíkurborg hefur lækkað framlag sitt
samsvarandi. Mismunurinn fellur því á Jöfnunarsjóð sókna.
Úrskurður kjararáðs um launalækkun presta
Kjararáð úrskurðaði 23. febrúar um laun presta, prófasta og vígslubiskupa, en áður
hafði verið úrskurðað um laun biskups Íslands. Einingum er fækkað mismunandi
mikið en jafnframt er einingarverðið lækkað. Lækkun var 6.3% að meðaltali. Laun
starfsfólks biskupsstofu og kirkjuráðs eru bundin við kjarasamninga, en samnings-
bundnar hækkanir, sem koma áttu til framkvæmda á tímabilinu áttu sér ekki stað.
Ákveðið hefur verið að heimila ekki yfirvinnu starfsfólks Biskupsstofu nema í
algerum undantekningartilvikum. Einnig er stefnt að því að ráða ekki nýtt starfsfólk í
stað þeirra sem láta af störfum. Þóknananefnd kirkjunnar hefur lækkað gjaldskrá sína.
Fjármál sókna
Kirkjuráð telur nauðsynlegt að bjóða skuldsettum minni sóknum aðstoð og sértækar
lausnir til að létta greiðslubyrði af lánum. Greiðslubyrði lána þeirra hefur þyngst og
vegur slíkt þungt í fjárhag minni sókna. Á fyrri hluta ársins fjallaði kirkjuráð um
úttekt á fámennum, skuldsettum sóknum, alls 63 sóknum og þótti ekki tilefni til að
grípa til sérstakra aðgerða. Ástæðan er að á undanförnum árum hefur skuldsettum,
fámennum sóknum boðist aðstoð við að endursemja um lán, oft með ábyrgð
Jöfnunarsjóðs sókna, sem hefur veitt árlega styrki til að standa undir afborgunum og
fjármagnskostnaði. Í ljósi þrengri fjárhagsstöðu þjóðkirkjunnar á næstu árum verður
leitað eftir því við lánastofnanir að semja um lán sókna til að létta greiðslubyrðina.
VII. Fasteignir
Helstu málefni sem kirkjuráð hefur fjallað um frá síðasta kirkjuþingi og varða
fasteignir eru eftirtalin:
Skálholt
Eins og kunnugt er stóð til að reisa viðbyggingu sem myndi hýsa fjölnotasal og bók-
hlöðu við Skálholtsskóla í með þátttöku ríkisins. Hönnun og frágangi bygginga-
teikninga er að fullu lokið. Af fjárhagsástæðum hefur verið ákveðið að fresta öllum
framkvæmdum og var dóms- og kirkjumálaráðuneyti og fjármálaráðuneyti gerð grein
fyrir því. Jafnframt var ráðuneytunum greint nánar frá fjárhagslegum þáttum málsins
og hverju hafði þegar verið til kostað. Ríkið tekur þátt í verkefninu með
fjárframlögum í sex ár, samtals um kr. 48 milljónir króna.
Stafholt
Kirkjuráð samþykkti fyrr á árinu að stefnt skyldi að því að byggja nýtt prestssetur í
Stafholti. Í ljósi fjárhagsstöðu kirkjumálasjóðs var síðan samþykkt að fresta að sinni
öllum nýbyggingum prestssetra. Heilbrigðisyfirvöld úrskurðuðu prestsbústaðinn í
Stafholti óíbúðarhæfan og því var leigt húsnæði í Borgarnesi fyrir sóknarprestinn til
bráðabirgða en ekkert hentugt húsnæði fannst innan prestakallsins á þeim tíma.