Gerðir kirkjuþings - 2009, Page 24
24
20. mál 2008. Starfsreglur um breyting á starfsreglum um rekstrarkostnað prests-
embætta og vegna prófastsstarfa nr. 819/1999.
Um er að ræða hækkun á aksturskostnaði og tók fjárhagsáætlun kirkjumálasjóðs fyrir
2009 mið af því. Starfsreglurnar hafa verið birtar í B-deild Stjórnartíðinda.
21. mál 2008. Starfsreglur um breyting á 7. gr. starfsreglna um íslensku þjóðkirkjuna
erlendis nr. 1003 / 2005.
Um er að ræða heimild til að ákvarða og greiða embættiskostnað og annan kostnað en
laun í mynt þess lands þar sem viðkomandi prestur starfar. Starfsreglurnar hafa verið
birtar í B-deild Stjórnartíðinda.
22. mál 2008. Þingsályktun vegna efnahagsþrenginga Íslendinga.
Ályktunin var send fjölmiðlum og birtist víða.
23. mál 2008. Þingsályktun um samningu starfsreglna.
Kirkjuþing 2008 ályktaði að leggja til við kirkjuráð að fela lagahópi, fjármálahópi,
ráðgjafarhópi um fasteignir og kirkjustarfshópi kirkjuráðs undir verkstjórn forseta
kirkjuþings að semja og samræma starfsreglur á grundvelli frumvarps til nýrra þjóð-
kirkjulaga. Verði frumvarpið að lögum á Alþingi veturinn 2008-2009 skal leggja til-
lögur að nýjum eða breyttum starfsreglum fyrir kirkjuþing 2009.
Forseti kirkjuþings ákvað í samráði við kirkjuráð að fresta vinnu við starfsreglurnar
þar sem frumvarpið hefur ekki verið lagt fram.
Mál lögð fram á kirkjuþingi 2009
1. mál 2009. Skýrsla kirkjuráðs ásamt greinargerðum, skýrslum og öðrum fylgi-
gögnum.
Skýrsla þessi ásamt fylgiskjölum er lögð fyrir kirkjuþing 2009 skv. starfsreglum um
kirkjuráð nr. 817/2000. Að venju er vísað til Árbókar kirkjunnar þar sem m.a. er að
finna skýrslur um kirkjustarfið.
2. mál 2009. Fjármál þjóðkirkjunnar.
Fjármál þjóðkirkjunnar eru lögð fram á kirkjuþingi. Reikningar stofnana og sjóða
vegna ársins 2008 eru aðgengilegir öllum kirkjuþingsfulltrúum. Útdráttur úr helstu
ársreikningum er í Árbók kirkjunnar. Ríkisendurskoðun skilar endurskoðunarskýrslu
vegna sjóða og stofnana kirkjunnar og Biskupsstofu fyrir árið 2008.
3. mál 2009. Starfsreglur um breyting á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði
nr. 1026/2007.
Tillögurnar eru lagðar fram á grundvelli stefnu kirkjuþings frá árinu 2000 um
framtíðarskipan sókna, prestakalla og prófastsdæma. Vegna breytinga á búsetu og
bættra samgangna verður að bregðast við og hugsa um sem besta nýtingu á þeim
takmarkaða fjölda embætta sem kirkjan hefur til ráðstöfunar. Einnig þarf að hafa í
huga að rekstrarkostnaður við prestssetur er umtalsverður. Þá er enn fremur litið til
þess að prestaköll og prófastsdæmi þurfi jafnan að vera eðlilegar og hvetjandi
starfseiningar, hvorki of fámenn né fjölmenn, sbr. tilvitnaða stefnu kirkjuþings.
Tillögur þessar miða að því að mæta þessum viðmiðum.
Skýrsla nefndar um stöðu Grafarvogssóknar er fylgiskjal með skýrslu þessari.