Gerðir kirkjuþings - 2009, Blaðsíða 25
25
4. mál 2009. Tillaga að staðfestingu á samþykktum um innri málefni þjóðkirkjunnar.
Samþykktir um innri mál kirkjunnar koma nú á ný fyrir kirkjuþing. Drögin voru til
umræðu á kirkjuþingi s.l. haust sem ályktaði að beina því til biskups að drög að
samþykktum um innri mál kirkjunnar verði áfram til kynningar og umræðu á
vettvangi kirkjunnar og hljóti lokaafgreiðslu á kirkjuþingi 2009.
Í fyrirliggjandi drögum að samþykktum eru fá eiginleg nýmæli heldur er um að ræða
skráningu og framsetningu þess sem kirkjan hefur á umliðnum áratugum skilið, túlkað
og framkvæmt. Með fyrirliggjandi samþykktum er leitast við að samræma innri
málefni þjóðkirkjunnar og færa þau nær okkar samtíma og umhverfi.
5. mál 2009. Tillaga til þingsályktunar um áfangaskýrslu um heildarskipan þjónustu
kirkjunnar.
Á kirkjuþingi 2007 var lögð fram áfangaskýrsla nefndarinnar með skýrslu kirkjuráðs.
Nefndin skilaði kirkjuráði jafnframt tillögu að þingsályktun og málsmeðferð.
Kirkjuþing 2008 samþykkti meginhugmyndir sem þar komu fram en að áfram yrði
unnið að verkefninu með gerð tillagna um skipan prestakalla og prófastsdæma.
Nefndin átti einnig að kanna hvort sameina ætti í eitt skjal framlagðar hugmyndir um
heildarskipan þjónustu kirkjunnar og samþykktir um innri málefni kirkjunnar sem
kirkjuþing 2008 hafði til umfjöllunar. Jafnhliða yrði skoðað hvort bæta skyldi inn í
það skjal viðeigandi starfsreglum eða ákvæðum í þeim og til verði einn bálkur er fjalli
um grunnforsendur, umfang og umgjörð þjónustu kirkjunnar. Lögð er fram á
kirkjuþingi nú áfangaskýrsla nefndarinnar til umræðu og ályktunar.
6. mál 2009. Tillaga að starfsreglum um þingsköp kirkjuþings.
Í þingsköpum kirkjuþings er mælt fyrir um undirbúning og skipulag þinghalds,
meðferð þingmála, fundarsköp o.fl. Þingsköpin mæla fyrir um þær leikreglur, sem
unnið er eftir á kirkjuþingi. Eðlilegt er að þær leikreglur taki breytingum í rás tímans
eftir því sem reynsla kallar á og ný sjónarmið koma fram um breytt og bætt
vinnubrögð. Í umræðum á kirkjuþingi 2008 um framkomnar tillögur um breytingar á
þingsköpum lýsti forseti kirkjuþings því yfir að forsætisnefnd þingsins hygðist semja
og leggja fyrir næsta þing heildstæða tillögu að nýjum starfsreglum um þingsköp
kirkjuþings. Þykir fara vel á því að slíkt sé gert í lok kjörtímabils að fenginni reynslu
af þinghaldi á nokkrum undangengnum kirkjuþingum. Við samningu þessarar tillögu
hefur jafnframt verið horft til laga nr. 55/1991 um þingsköp Alþingis með síðari
breytingum eftir því sem við hefur átt.
7. mál 2009. Tillaga að starfsreglum um prestssetur og aðrar fasteignir þjóðkirkjunnar.
Helstu markmið með tillögum að starfsreglum um prestssetur og aðrar fasteignir
þjóðkirkjunnar er að setja starfsreglur sem ná yfir allar fasteignir þjóðkirkjunnar,
jarðir, hús og aðrar eignir og koma um leið til móts við markmið fjárfestingastefnu
þjóðkirkjunnar. Með starfsreglum þessum er einnig stefnt að einföldun á skipulagi
sem varðar fasteignaumsýslu, umsjón prestssetra og ráðgjöf við sóknarnefndir og
stofnanir kirkjunnar varðandi fasteignir. Þá er stefnt að því að skýra ákvarðanaferli og
ábyrgð varðandi meðferð fasteigna, framkvæmdasýslu kirkjuráðs og fjárstjórnarvald
kirkjuþings hvað varðar fasteignir, kaup, sölu, nýbyggingar og viðhaldsverkefni.
8. mál 2009. Tillaga að starfsreglum um Fjölskylduþjónustu kirkjunnar.
Á kirkjuþingi 2008 var samþykkt eftirfarandi ályktun:
Kirkjuþing ályktar að skýra þurfi stefnu Fjölskylduþjónustu kirkjunnar og starf-
seminni verði fundið hagstæðara húsnæði. Leitað verði eftir nánari tengslum við