Gerðir kirkjuþings - 2009, Page 27
27
12. mál 2009. Tillaga að starfsreglum um kjör til kirkjuþings.
Í þessu máli er m.a. lagt til að kjördæmin verði stækkuð til muna og komið verði á
nýju kerfi meðmælenda sem frambjóðandi þarf að afla til að geta boðið sig fram. Í
tillögunum felst að kosið verði á milli frambjóðendanna einna og er markmið
tillögunnar einkum tvíþætt. Með afdráttarlausu framboði leikra og vígðra dreifast
atkvæðin ekki með sama hætti og áður. Með því að frambjóðandi aflar meðmælenda
þarf hann að leita stuðnings meðal kjörmanna en í því felst einnig ákveðið forval og
kynning á frambjóðandanum. Með stækkun kjördæmanna fjölgar kjósendum að baki
hverjum fulltrúa til muna án þess að breyting verði á reglunum um kjörgengi.
13. mál 2009. Tillaga til staðfestingar á jafnréttisstefnu þjóðkirkjunnar.
Jafnréttisstefna kirkjunnar tekur mið af gildandi jafnréttislögum á Íslandi, nr. 10/2008
um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, en í þeim er kynjasamþætting fest í
sessi sem mikilvæg leið til að koma á jafnrétti. Kirkjan vill um leið fylgja
samþykktum kirkjulegra alþjóðasamtaka sem hún á aðild að um jafnrétti kynjanna og
þá sérstaklega Alkirkjuráðsins, Kirknaráðs Evrópu og Lúterska heimssambandsins
sem hefur allt frá árinu 1984 hvatt kirkjur sínar til að jafna hlutföll kynjanna í
nefndum og ráðum. Jafnréttisstefna kirkjunnar tekur annars vegar til stjórnkerfis
kirkjunnar og starfsmanna hennar og hins vegar til starfsemi og þjónustu sem kirkjan
veitir.
14. mál 2009. Tillaga að staðfestingu á siðareglum vígðra þjóna og annars starfsfólks
þjóðkirkjunnar.
Siðareglur þessar ná til vígðra þjóna íslensku þjóðkirkjunnar og annars starfsfólks í
launuðum sem ólaunuðum störfum innan sókna og stofnana kirkjunnar. Þær eru
ætlaðar til stuðnings og leiðbeiningar í þjónustu við Guð og menn. Grundvallarregla
mannlegra samskipta er gullna reglan: „Allt sem þér viljið, að aðrir menn geri yður,
það skuluð þér og þeim gera.“ (Matt. 7,12) Starfsfólk og vígðir þjónar kirkjunnar hafa
þá reglu umfram allt að leiðarljósi.
15. mál 2009. Tillaga til þingsályktunar um kaup og sölu fasteigna.
Kirkjuráð leitar heimildar kirkjuþings fyrir kaupum á Hamrahlíð 12 á Vopnafirði,
Hofsprestakalli í Múlaprófastsdæmi, Króksholti 1 á Búðum, Fáskrúðsfirði, Kolfreyju-
staðarprestakalli í Austfjarðarprófastsdæmi og Barmahlíð 7 á Sauðárkróki, Sauðár-
króksprestakalli í Skagafjarðarprófastsdæmi.
Ennfremur er óskað heimildar til sölu á jörðinni Útskálar, Kjalarnessprófastsdæmi,
jörðinni Hvoll í Saurbæ, Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi, jörðinni Prestbakki II,
Húnavatnsprófastsdæmi, jörðinni Borgarhóll í Akrahreppi, sem er hjáleiga Mikla-
bæjar í Skagafirði og tíu hektara landspilda úr landi prestssetursjarðarinnar Breiða-
bólsstaðar, Rangárvallaprófastsdæmi. Ennfremur er óskað heimildar til sölu á prestbú-
staðnum Túngötu 6, Suðureyri við Súgandafjörð. Þá er óskað heimildar til makaskipta
á landi úr prestssetursjörðinni Grenjaðarstað og grannjörð.
Kirkjuráð telur rétt að taka sérstaklega fram að hvorki verði eignir seldar né keyptar
nema viðunandi verð og skilmálar séu í boði. Heimildarákvæði um kaup og sölu
fasteigna gildi fram að kirkjuþingi 2010.
25. mál 2009. Tillaga til þingsályktunar um viðaukasamning við Samkomulag
íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar um kirkjujarðir og launagreiðslur presta og
starfsmanna þjóðkirkjunnar frá 10. janúar 1997.