Gerðir kirkjuþings - 2009, Qupperneq 30
30
Tónskóla þjóðkirkjunnar og Lenka Mateova, organisti Kópavogskirkju. Varamenn eru
þau Guðný Einarsdóttir organisti í Fella-og Hólakirkju, Douglas Brotchie organisti í
Háteigskirkju og Jörg Sondermann organisti Selfosskirkju. Skipan nefndarinnar gildir
til 30. júní 2011.
Stjórn Siðfræðistofnunar
Kirkjuráð samþykkti að skipa áfram sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur verkefnisstjóra á
Biskupsstofu sem fulltrúa þjóðkirkjunnar í stjórn Siðfræðistofnunar.
Skipun í minningarsjóð Ingibjargar Ólafsson á Íslandi.
Kirkjuráð skipaði Sigríði M. Jóhannsdóttur, kirkjuráðsmann í stjórn Minningarsjóðs
Ingibjargar Ólafsson. Fyrir eru vígslubiskupinn á Hólum, sr. Jón Aðalsteinn Bald-
vinsson og Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri Biskupsstofu, sem er fulltrúi
biskups Íslands.
Hjálparstarf kirkjunnar
Kirkjuráð samþykkti árið 2008 að skipa áfram Ingibjörgu Pálmadóttur, Kristínu
Magnúsdóttur og Þorstein Pálsson sem fulltrúa kirkjuráðs í fulltrúaráð Hjálpar-
starfsins. Varamaður er Rannveig Sigurbjörnsdóttir. Öll eru þau skipuð til tveggja ára
eða til 2010.
Kirkjuráð samþykkti árið 2009 að skipa Lóu Skarphéðinsdóttur áfram til tveggja ára.
Þar sem Hrafnhildur Sigurðardóttir hefur setið samfellt í sex ár er ekki unnt að skipa
hana áfram samkvæmt skipulagsskránni. Kirkjuráð samþykkti að skipa í hennar stað
Helgu Halldórsdóttur kirkjuþingsmann, Vík í Mýrdal, til tveggja ára. Guðbjörg
Matthíasdóttir, Vestmannaeyjum, er skipuð áfram varamaður til tveggja ára.
Stjórn Kirkjuhússins - Skálholtsútgáfunnar
Í samræmi við ákvæði skipulagsskrár Kirkjuhússins - Skálholtsútgáfunnar hefur
kirkjuráð samþykkt að skipa áfram sr. Halldór Reynisson og sr. Bernharð Guðmunds-
son til næstu þriggja ára. Kirkjuráð skipaði sr. Guðna Má Harðarson til þriggja ára.
Stjórn Fjölskylduþjónustu kirkjunnar
Stjórnina skipa Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur, formaður; sr. Anna Sigríður
Pálsdóttir, prestur og sr. Sigfinnur Þorleifsson, sjúkrahúsprestur. Varamenn eru
Ásbjörn Jónsson, lögfræðingur; sr. Friðrik Hjartar, prestur; og sr. Auður Eir
Vilhjálmsdóttir. Skipunartími stjórnarinnar rann út um síðustu áramót og fór því
kirkjuráð þess á leit við stjórn Fjölskylduþjónustunnar að hún sæti til 1. júlí 2009. Nú
liggur fyrir þinginu tillaga að nýjum starfsreglum um Fjölskylduþjónustu kirkjunnar.
Stjórn Skálholts
Stjórn Skálholts starfar í umboði kirkjuráðs. Stjórnin er skipuð þannig að
vígslubiskup, sr. Sigurður Sigurðarson, er formaður og aðrir í stjórn eru kirkjuráðs-
mennirnir sr. Kristján Björnsson og Jóhann E. Björnsson. Þá var ákveðið að sr.
Halldór Gunnarsson verði varamaður sr. Kristjáns og Sigríður M. Jóhannsdóttir vara-
maður Jóhanns, en þau sitja bæði í kirkjuráði.
Samstarfshópur um tilraunaverkefni um Grafarvogssókn
Kirkjuþing 1999 samþykkti að tilraun yrði gerð með starfrækslu Grafarvogssóknar og
Grafarvogsprestakalls í óbreyttri mynd í 10 ár frá 1. janúar 2001 að telja. Samþykkt
þessi kæmi til endurskoðunar að fimm árum liðnum. Tillagan fól í sér að kannað yrði