Gerðir kirkjuþings - 2009, Blaðsíða 37
37
Biskupsstofa óskaði eftir umræðum um samning við Sjúkratryggingar Íslands um
prestsþjónustu við sjúkrahúsið í Gautaborg vegna íslenskra sjúklinga sem þangað eru
sendir í líffæraflutninga. Gangi það ekki eftir verður það embætti væntanlega einnig
lagt niður.
Sálmabókin
Kirkjuráð hefur fylgst með vinnu við endurskoðun sálmabókar og hafa dr. Einar
Sigurbjörnsson, prófessor, formaður sálmabókarnefndar og Hörður Áskelsson,
organisti og söngmálastjóri þjóðkirkjunnar komið á fund kirkjuráðs. Nefndin sem
starfað hefur frá árinu 2005 er skipuð fimm fulltrúum, auk formanns svo og
fjölmennum ráðgjafahópi.
Meginstofn núverandi sálmabókar sem kom út 1997/2002, er sálmabókin frá 1972
(532 sálmar). Til viðbótar eru sálmar sem gefnir voru út 1991 og nokkrir nýir sálmar
1997. Nefndin hefur farið yfir alla þá sálma sem eru í núverandi sálmabók og er
nokkurn veginn ljóst orðið hvaða sálmar verða áfram og hverjir verða felldir niður.
Eftir að söngmálastjóri og formaður sálmabókarnefndar höfðu komið á fund
kirkjuráðs hélt sálmabókarnefnd fund 29. september og samþykkti þar eftirfarandi um
útgáfu nýrrar sálmabókar: „Í ljósi þess sem fram kom á þeim fundi (fulltrúa sálma-
bókarnefndar og kirkjuráðs) og fjárhagsstöðu íslensku kirkjunnar var ákveðið að
fresta öllum áformum um útgáfu sálmasöngsbókar. Þess í stað verður organistum sent
hjálparefni gegnum netið. Einnig var ákveðið að leggja til hliðar að svo stöddu áform
um að ný sálmabók skuli vera tilbúin til notkunar 1.sd. í aðventu 2011. Þá er ekki
heldur ætlunin lengur að gefa út tvær bækur, eina með nótum og aðra án, heldur
eindregið stefnt að því að gefa út eina sálmabók með nótum. Fundurinn samþykkir að
skipa sérstaka undirnefnd sálmabókarnefndar til að fara yfir kostnaðinn við útgáfuna.
Í henni eru Jón Helgi Þórarinsson, Hörður Áskelsson, Edda Möller og fjármálastjórinn
Sigríður Dögg Geirsdóttir, sem sérstakur ráðgjafi nefndarinnar.“ Þessi nefnd hefur
þegar tekið til starfa.
Kapella sr. Jóns Steingrímssonar
Samþykkt var að framlengja til þriggja ára, samning vegna Kapellu sr. Jóns Stein-
grímssonar á Kirkjubæjarklaustri. Samningurinn rann út um síðustu áramót.
Öllum má ljóst vera að Minningarkapella Jóns Steingrímssonar á Kirkjubæjarklaustri
hafi sérstöðu vegna mikils fjölda ferðamanna og annarra sem sækja staðinn.
Lokið er nú gerð Eldmessu, stuttrar margmiðlunarmyndar um hamfarir og afleiðingar
Skaftárelda og hafnar sýningar á henni við mjög góðar undirtektir áhorfenda. Þar
kemur fram hin mikla trúfesta sr. Jóns og styrk handleiðsla við hin hrjáðu sóknarbörn
og marga fleiri. Jafnframt kom skýrt fram í erindum fræðimanna, sem voru flutt við
undirbúning myndarinnar, hversu merkilegt bókmenntaverk Ævisaga hans er og
Eldritið enn í fremstu röð eldgosarita í heimi. Hróður sr. Jóns Steingrímssonar mun
því halda áfram að festast í sessi í huga sívaxandi fjölda innlendra og erlendra
ferðamanna, sem heimsækja Kirkjubæjarklaustur.
Eftirfylgd við fólk í erfiðum aðstæðum
Á kirkjuþingi 2006 var samþykkt að koma á fót tilraunaverkefni um uppbyggingu og
eflingu kærleiksþjónustu sem lyti að eftirfylgd við syrgjendur í söfnuðum landsins.
Með flutningi tillögunnar og samþykkt hennar var mótuð sú stefna að kirkjunni bæri
að efla og móta skýrar hvers kyns eftirfylgd við einstaklinga í söfnuðum landsins til
að hjálpa þeim að takast á við afleiðingar áfalla og sorgar og vinna úr slíkri reynslu