Gerðir kirkjuþings - 2009, Síða 43
43
Rekstraráætlun ársins 2010 er í vinnslu en markmiðið er að draga sem minnst úr
grunnþjónustu. Gert er ráð fyrir um a.m.k. 10% hagræðingu í rekstrarkostnaði.
Starfsfólki verður fækkað með því að ráða ekki í laus störf, ekki er gert ráð fyrir að
laun hækki, ekki er greidd yfirvinna, ef hún er nauðsynleg er hún tekin út í leyfum,
fæðispeningar eru ekki lengur greiddir og farið verður yfir alla þjónustusamninga. Þá
liggja fyrir kirkjuþingi tillögur um breytingar á prestakallaskipan og rekstrarkostnaði
presta og prófasta. Gengið er út frá því að á árinu 2010 verði hagræðingarkröfu
ríkisins auk þessa mætt með framlögum Jöfnunarsjóðs sókna og kirkjumálasjóðs.
Sérframlag til Hallgrímskirkju í fjárlagafrumvarpi 2010 að fjárhæð 12,4 m.kr. er
fjórða greiðsla vegna viðgerða á turni sem veitt er í sex ár eða samtals um 74,5 m.kr.
5,4 m.kr. eru vegna annars stofnkostnaðar og er heildarframlag til Hallgrímskirkju
17,8 m.kr. Vegna verra ástands kirkjuturnsins en álitið var fór upphafleg
kostnaðaráætlun frá árinu 2005 úr 230 m.kr. í 540 m.kr. Ríki og borg hafa samþykkt
að framlengja samkomulag um kostnaðarþátttöku og leggur hvor aðili fram 5 m.kr. á
ári frá 2013 til 2018. Aukin kostnaðarhlutdeild fellur því þá á Jöfnunarsjóð sókna eða
27,2 m.kr. á ári á því tímabili.
Stofnkostnaðarframlag til Skálholts er 11,4 m.kr., þar af eru 6 m.kr. sem er fjórða
greiðsla sem veitt er í átta ár í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnar um að styrkja
uppbyggingu í Skálholti. Í fyrstu umræðu vegna frumvarps til fjárlaga 2010 er gert
ráð fyrir að tímabundið framlag til Þingeyraklausturskirkju að fjárhæð 2,5 m.kr. falli
niður.
06-705 Kirkjumálasjóður
Rekstrarætlun Kirkjumálasjóðs 2010 - í milljónum króna
Tekjur
Áætlun
2010
Rauntölur
jan. - sept.
2009
Endursk.
áætlun
jan.-des.
2009
Frávik
2009 %
Rauntölur
2008
Framlag ríkis 349,5 298,0 374,1 -76,1 -20,3% 395,0
Framlag Jöfnunarsjóðs sókna 85,2 84,2 112,6 -28,4 -25,2% 100,3
Húsaleigutekjur 90,0 52,2 75,5 -23,3 -30,8% 65,6
Aðrar sértekjur 10,0 21,6 10,5 11,1 106,2% 52,1
Tekjur samtals 534,7 456,0 572,7 -116,6 -20,4% 613,0
Gjöld
Stjórn og starfsskipan, stoðþjónusta 124,6 107,5 144,8 -37,3 -25,7% 148,6
Fasteignir - viðhald og umsýsla 157,6 161,8 158,5 3,3 2,1% 262,9
Helgihald, fræðsla og kærleiksþjónusta 127,8 146,8 153,1 -6,3 -4,1% 162,8
Guðfræði- þjóðmál og menningarstarf 9,1 5,1 13,3 -8,2 -61,9% 10,5
Prests- og djáknaþjónusta, emb.kostn. 15,6 28,9 38,4 -9,4 -24,5% 25,7
Til Biskupsstofu v. hagr.kröfu ríkis 2010 60,4 ***
Samtals gjöld 495,0 450,1 508,1 -57,9 -11,4% 610,6
Vaxtatekjur/-gjöld -50,0 -38,7 -58,0 19,3 -64,3
Tekjuafgangur/-tekjuhalli -10,3 -32,8 6,6 -39,4 -61,9
Vegna skerðingar á sóknargjöldum lækka greiðslur frá ríkinu til kirkjumálasjóðs. Árið
2009 lækkar framlag í sjóðinn um 4,4% eða 12,8 m.kr. miðað við fjárlög 2009.
Framlagið lækkar um 30,9 m.kr. eða 10% árið 2009 ef miðað er við óskert sóknar-
gjöld 2009.