Gerðir kirkjuþings - 2009, Side 64

Gerðir kirkjuþings - 2009, Side 64
 64 viðurkennir hverja skírn sem þannig er framkvæmd og eins niðurdýfingarskírn sé hún framkvæmd í nafni heilagrar þrenningar. 2. Skíra skal barn ef þess er óskað af foreldri eða forsjáraðila, sem þar með tekst á hendur ábyrgð á því að barnið sé alið upp í kristinni trú. 3. Foreldrar sem hafa sameiginlega forsjá barns taka ákvörðun sameiginlega um skírn. Foreldrum ber að hafa samráð við barn sitt eftir því sem aldur og þroski barnsins gefur tilefni til. Hafi barn náð 12 ára aldri skal leita álits þess. 4. Prestur sem skírir skal ætíð ræða við foreldra (forsjáraðila) barnsins fyrir athöfnina og fara yfir skírnarathöfnina og merkingu hennar. 5. Skírn er í eitt skipti fyrir öll og verður ekki endurtekin. 6. Fullvaxinn einstakling má skíra ef hann hefur ekki verið skírður áður en óskar þess að skírast til kristinnar trúar og vill lifa í kristnum söfnuði í samfélagi við Jesú Krist. Skírn fulltíða manns skal jafnan undirbúin með fræðslu um grund- vallarþætti kristinnar trúar og siðar. 7. Fylgt skal atferli Handbókar kirkjunnar nema þegar um skemmri skírn er að ræða (sjá 10.-11. gr. hér að neðan). 8. Þjónandi prestur þjóðkirkjunnar annast skírn. Skírn sem aðrir vígðir prestar (prestar sem ekki eru í embætti) annast skal vera á ábyrgð og í umboði sóknarprests sem sér til þess að færa hana til bókar og gera skýrslu um hana til Þjóðskrár. 9. Skírnarvatni skal hellt í mold eða kirkjugrunn eftir notkun, aldrei í niðurfall. Skemmri skírn 10. Sérhver skírður einstaklingur getur skírt skemmri skírn ef líf er í hættu og ekki næst til prests. 11. Sá sem annast skemmri skírn skal þegar í stað tilkynna það sóknarpresti sem gengur úr skugga um að skírnin hafi farið fram í nafni föður, sonar og heilags anda, og skal færa það til bókar og tilkynna til Þjóðskrár. Skírnarfræðsla 12. Sóknin skal bjóða sóknarbörnum fræðslu í grundvallaratriðum trúarinnar. Slík fræðsla skal ætíð standa foreldrum skírnarbarna til boða og skal vera skilyrði fyrir því að fulltíða maður hljóti skírn. Skírnarvottar - guðfeðgin 13. Skírnarvottar eru vottar að athöfninni og fulltrúar kristins safnaðar sem ábyrgist að barnið hljóti uppfræðslu í trú og bæn kirkjunnar. Skírnarvottarnir biðja fyrir barninu og leitast við að styðja foreldra og söfnuð í trúaruppeldi þess. 14. Skírnarvottar, guðfeðgin, skulu vera minnst tveir eða tvö, mest fimm og ekki yngri en um fermingu. Lög, reglur og aðrar réttarheimildir • Kristinréttur Árna biskups Þorlákssonar, 1275, 8. kap. • Tilskipun um húsagann á Íslandi 3. janúar 1746, 2. gr. • Tilskipun 27. júlí 1771 um heimaskírn barna • Kirkjurítúalið 1685 og tilskipun 1746 um guðfeðgin • Handbók kirkjunnar, 1981 • BEM-skýrslan, Skírn, máltíð og þjónusta, 1984 • Barnalög nr. 76/2003 • Fræðslustefna kirkjunnar, 2004
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.