Gerðir kirkjuþings - 2009, Side 79
79
hátíðum kirkjuársins, áramótum og þegar stórhátíðir eru hringdar inn. Ekki er hringt
klukkum á föstudaginn langa. Líkhringing er sorgarhljómur og samúðar-, og vitnis-
burður um forgengileika lífsins. Bænaslögin, þegar hringd eru þrisvar sinnum þrjú
slög, eru hljómur signingarinnar, sem felur stund og stað föður, syni og heilögum
anda og heilagri návist hans.
Klukkur í kirkju og kirkjugarði
1. Í hverri sóknarkirkju skulu vera kirkjuklukkur, ein eða fleiri.
2. Í kirkjugarði skal vera klukka, í sáluhliði eða klukknaporti.
3. Við hverja sóknarkirkju skal vera hringjari, sem gæta skal þess að klukkum sé
hringt í samræmi við reglur þessar og góða staðarhefð og venju. Sérhverri
sóknarnefnd er skylt að sjá til þess að svo sé.
Um messuhringingar
4. Hringt er til hverrar almennrar guðsþjónustu. Fyrst er hringt hálfri stundu fyrir
messu einni klukku. Stundarfjórðungi fyrir messu er hringt stærri klukkunni,
ef þær eru tvær, en miðklukkunni ef þær eru þrjár, sex sinnum þrjú slög. Á
heila tímanum er samhringt tveim klukkum (handvirkt) níu sinnum þrjú slög.
Séu klukkur tvær er þeim báðum hringt samtímis, ef klukkur eru þrjár er að
öllu jöfnu hringt tveim hinum stærri.
5. Þegar hringing er rafstýrð er hringt einni klukku hálfri stund fyrir messu í þrjár
mínútur. Stundarfjórðungi fyrir er hringt einni klukku eða tveim, eftir heildar-
fjölda klukknanna, í eina mínútu. Samhringt er í þrjár til fimm mínútur fyrir
upphaf messu öllum klukkum.
6. Vel fer á að hringja bænaslög, 3×3 slög, í lok samhringingar, áður en messa
hefst og eins í messulok
7. Ekki er hringt til messu á föstudaginn langa.
8. Í þéttbýli skal hringja inn stórhátíðir kl. 18 á aðfangadag jóla, páska og hvíta-
sunnu. Samhringt er í fimm mínútur hið minnsta.
9. Í þéttbýli er á áramótum samhringt öllum klukkum, eigi skemur en fimm
mínútur.
Hringingar á virkum dögum og við athafnir
10. Við athafnir á virkum dögum er aldrei samhringt.
11. Hringja má kirkjuklukkum þegar brúðhjón ganga úr kirkju að lokinni hjóna-
vígslu.
12. Við útför skal hringja einni klukku aðeins, og þeirri klukku sem dýpstan
tóninn hefur. Líkhringing er eitt slag í senn og líður nokkur stund á milli slaga.
13. Þar sem tíðkast hefur að hringd sé líkhringing þegar kista er borin til kirkju
fyrir útför skal viðhalda þeim sið.
14. Við upphaf útfararathafnar er hringt einni klukku að minnsta kosti 3×3 slög.
15. Ávallt skal hringd líkhringing þegar kista er borin úr kirkju.
16. Í kirkjugarði skal hringja líkhringingu þegar kista er borin í garð verði því
viðkomið.
17. Við sérstaka atburði í samfélaginu í gleði og sorg er klukkum hringt sam-
kvæmt hefð og venju á hverjum stað, og eins eftir sérstökum tilmælum
biskups.