Gerðir kirkjuþings - 2009, Page 94
94
8. mál kirkjuþings 2009
Flutt af kirkjuráði
Starfsreglur um Fjölskylduþjónustu kirkjunnar.
1. gr. Á vegum þjóðkirkjunnar skal starfrækja Fjölskylduþjónustu kirkjunnar sem er
stofnun er veitir sérhæfða þjónustu í fjölskyldumálum á grundvelli kristinna lífsgilda.
Fjölskylduþjónustan er á sviði sálgæslu- og kærleiksþjónustu kirkjunnar og lýtur
faglegri forystu biskups Íslands, en heyrir að öðru leyti undir kirkjuráð.
2. gr. Með sérhæfðri þjónustu kirkjunnar í fjölskyldumálum er átt við að
a) styðja fjölskyldur sem þess óska með viðtölum, ráðgjöf og fræðslu
b) styðja og efla presta og djákna í samskiptum við fjölskyldur, svo sem í
viðtölum, í sáttaumleitunum, fræðslustarfi og ráðgjöf.
3. gr. Fjölskylduþjónusta kirkjunnar annast handleiðslu presta, djákna og annarra
starfsmanna kirkjunnar eftir því sem við á. Biskup og kirkjuráð setja reglur um fyrir-
komulag handleiðslunnar og kostnað.
4. gr. Kirkjuráð ræður forstöðumann Fjölskylduþjónustu kirkjunnar og skal hann vera
prestur með sérmenntun á starfssviði stofnunarinnar. Hann ræður starfsfólk í samráði
við biskup Íslands. Kirkjuráð setur forstöðumanni erindisbréf.
5. gr. Forstöðumaður og starfsfólk er bundið þagnarskyldu um það sem leynt á að fara
þ.e. málefni skjólstæðinga, og annað sem lýtur að rækslu starfa þeirra og málefni
stofnunarinnar. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.
6. gr. Fjölskylduþjónustunni er heimilt að afla sértekna samkvæmt gjaldskrá er
staðfest skal af kirkjuráði.
7. gr. Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 59. gr. laga um stöðu, stjórn og
starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, öðlast gildi 1. janúar árið 2010. Frá sama tíma
falla á brott starfsreglur um sérhæfða þjónustu kirkjunnar við fjölskylduna nr.
824/2000
Ákvæði til bráðabirgða.
Þrátt fyrir ákvæði 4. gr. ræður kirkjuráð forstöðumann úr röðum starfsmanna stofnun-
arinnar tímabundið.