Gerðir kirkjuþings - 2009, Side 106
106
14. mál kirkjuþings 2009
Flutt af kirkjuráði
Siðareglur vígðra þjóna og annars starfsfólks þjóðkirkjunnar.
Inngangur
Siðareglur þessar ná til vígðra þjóna íslensku þjóðkirkjunnar og starfsfólks í launuðum
sem ólaunuðum störfum innan sókna og stofnana kirkjunnar. Þær eru ætlaðar til
stuðnings og leiðbeiningar í þjónustu við Guð og menn.
Grundvallarregla mannlegra samskipta er gullna reglan: „Allt sem þér viljið, að aðrir
menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera.“ (Matt. 7,12)
Starfsfólk og vígðir þjónar kirkjunnar hafa þá reglu umfram allt að leiðarljósi.
Reglur
Starfsfólk og vígðir þjónar kirkjunnar eru fulltrúar kirkju sinnar og gæta þess í starfi
og einkalífi að hafa virðingu hennar í heiðri og leitast við að bera fagnaðarerindi
Krists vitni í orði og verki með því að:
1. Gera sér far um að mæta hverjum einstaklingi í kærleika Krists með virðingu
eftir því sem skilningur og samviska bjóða hverju sinni og láta sér annt um
líðan og velferð annarra.
2. Gæta vandvirkni, samviskusemi og heiðarleika í starfi og að orð og athæfi
samrýmist starfi og umhverfi, stað og stund.
3. Virða þagnarskyldu um hvað eina sem þau verða áskynja í starfi og leynt skal
fara.
4. Gæta þess að vanvirða ekki tilfinningar og tiltrú skjólstæðinga sinna.
5. Fara ekki í manngreinarálit og veita þeim kirkjulega þjónustu sem leita eftir
henni.
6. Þekkja og virða takmörk sín og sækja sér faghandleiðslu og sálgæslu.
7. Misnota aldrei aðstöðu sína eða ógna velferð skjólstæðings, svo sem með
óviðeigandi hegðun, orðfæri, viðmóti, kynferðislegri eða annars konar áreitni.
8. Minnast þess að mörk einstaklinga eru mismunandi, svo sem að snerting getur
auðveldlega misskilist eða valdið óþægindum.
9. Stofna ekki til óviðeigandi sambands við skjólstæðing.
10. Leita eftir símenntun, fræðslu og uppbyggingu í trú og kristnu samfélagi.
11. Sýna ábyrgð og trúmennsku í meðferð fjármuna.
12. Gæta hófs í umgengni við áfengi og vera öðrum fyrirmynd í þeim efnum. Í
skipulögðu æskulýðsstarfi og í ferðum með börnum og ungmennum er
óheimilt að neyta áfengis og annarra vímuefna.
13. Sýna ábyrg rafræn samskipti og netnotkun.
14. Vera ávallt upplýst um lög og reglur sem gilda um börn og unglinga og að
skylt sé að tilkynna barnaverndaryfirvöldum ef ætla má að barn búi við
óviðunandi aðstæður eða er þolandi ofbeldis.
15. Vera meðvitað um að þau hafi sterkari stöðu en barnið sem þau vinna með.
Ekki má undir nokkrum kringumstæðum misnota aðstöðu sína.
16. Gæta varfærni og hlífðar í samskiptum við börn og skjólstæðinga í
viðkvæmum aðstæðum
17. Sýna árvekni gagnvart einelti, áreitni og annarri óviðeigandi hegðun.
18. Notfæra sér ekki vitneskju eða tengsl sem verða til á vettvangi þjónustunnar í
ábata- eða hagsmunaskyni.