Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Síða 48
I langri leit biblíufræðinga að þungamiðju í Gamla testamentinu eða
samnefnara fyrir hinn fjölbreytilega boðskap þess15 hefur m.a. verið bent á
1. boðorðið (W.H. Schmidt) og rök færð fyrir því að það hafi verið notað
sem mælikvarði til að velja og hafna er tekin skyldi afstaða til þess hvort
ákveðin trúaratriði eða helgisiðir gætu samrýmst trú hinna fornu Hebrea
eða Israelíta.16
Trúarjátning lýsingarorðanna
I áhrifamikilli bók sinni um guðfræði Gamla testamentisins fjallar hinni
kunni bandaríski biblíufræðingur Walter Brueggemann (f. 1932) í einum
kafla um það sem hann kallar trúarjátningu lýsingarorðanna: „Exodus
34:6-7: A Credo of Adjectives.“17
„Drottinn, Drottinn er miskunnsamur og náðugur Guð, seinn til
reiði, gæskuríkur og trúfastur. 7Hann sýnir þúsundum gæsku, fyrirgefur
misgjörðir, afbrot og syndir en lætur hinum seka ekki óhegnt heldur lætur
afbrot feðranna bitna á börnum og barnabörnum í þriðja og fjórða lið.“
Brueggemann bendir á að textinn standi í mjög þýðingarmiklu samhengi
sem öll framtíð Israels virðist velta á.18
Brueggemann ræðir talsvert þýðingu þess að þessi játning sýnir tvær
hliðar guðdómsins. En hin jákvæða hlið ómar víða í lofsöngvum Gamla
testamentins, t.d. í Slm 145.8:
„Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæsku-
ríkur.“
Þarna er hluti ofangreindrar trúarjátningar kominn í nýtt samhengi
lofsöngs sem er í stærra samhengi skoðað hluti af niðurlagi sálmasafnsins
sem endar á nokkrum lofsöngvum (Slm 145-150) eftir fjölbreytilega vegferð
gegnum dimma dali, glímu við óvini og þjáningar margskonar.
Þessu dæmi er hér haldið til haga til að sýna að í umræðum gamla-
testamentisfræðinga á undanförnum árum er gengið út frá því að ýmsar
trúarjátningar sé að finna innan Gamla testamentisins þó að ekki skrifi
fræðimenn almennt uppá þá kenning von Rads að Sexbókaritið eða Gamla
15 Umræðu um leitina að þungamiðju eða samnefnara Gamla testamentisins er m.a. að finna í bók
G. Hasel 1977 Old Testament Theology: Basic Issues in the Current Debate, s. 77-104. Sjá einnig
H. G. Reventlow 1985: Problems of Old Testament Theology in the Twentieth Century, s. 125-133.
16 W. H. Schmidt 1983, The Faith ofthe Old Testament, s. 1-4.
17 W. Brueggemann 1997, Theology ofthe Old Testament, s. 215 o. áfr.
18 P. Trible 1978, God and the Rhetoric of Sexuality.
46