Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Page 53
Niðurstöður
Deilurnar um trúarjátningarnar fyrir rúmum hundrað árum hér á landi og
meðal Vestur-Islendinga voru fróðlegar og tengdust deilum um ný viðhorf
og róttækar niðurstöður á sviði biblíurannsókna. Það vekur þó athygli við
umræddar deilur að nánast enginn gaumur er þar gefinn að spurningunni
um hvort trúarjátningar sé að finna innan Biblíunnar sjálfrar. Hér hefur
athyglinni verið beint að því atriði og leitast við að sýna fram á að trúar-
játningar, sem sannarlega eru til staðar innan Gamla testamentisins, geti
reynst ákveðinn vegvísir fyrir kirkjulega umræðu um þessi efni.
Könnun á fjölmörgum trúarjátningum sem er að finna í Gamla testa-
mentinu sýnir að játningarnar spruttu upp úr ákveðnum aðstæðum á
hverjum tíma en haldið var fast í viss grundvallaratriði.
Sá lærdómur sem við getum dregið af trúarjátningum Gamla testament-
isins er ekki síst sá að trúarjátningar hafa mikilvægu hlutverki að gegna, en
það er líka mikilvægt að þær fái að þróast eða nýjar játningar að verða til í
takt við nýjar aðstæður en þar sem grunnurinn, hið mikilvægasta, stendur
óhaggað og óbreytt. Játningin tjáir sérkenni trúarinnar.30
Útdráttur
I greininni er því haldið fram að trúarjátningar hafi fylgt kristinni trú frá upphafi
og eigi sér að auki rætur í Gamla testamentinu. Rifjaðar eru upp hatrammar
deilur sem urðu meðal íslenskra guðfræðinga fyrir um einni öld um gildi trúar-
játninga. Megináherslan í greininni hvílir þó á trúarjátningum innan Gamla
testamentisins. Ræddar eru kunnar en umdeildar kenningar Þjóðverjans Gerhard
von Rad um það efni. Þó að þær kenningar hafi að ýmsu leyti verið gagnrýndar
og jafnvel hraktar þá stendur óhaggað að trúarjátningar gegna stóru hlutverki
innan Gamla testamentisins. Nokkrar þessar játninga eru kannaðar og sýnt að þær
hafa sprottið upp úr ólíkum aðstæðum í trúarlífi fólks en haldið var fast við viss
grundvallaratriði. Af trúarjátningum Gamla testamentisins má draga þær ályktanir
að trúarjátningar hafa mikilvægu hlutverki að gegna , en nýjar játningar þurfi að
verða til í takt við breyttar aðstæður þar sem kjarninn stendur þó óhaggaður og
tjáir sérkenni trúarinnar.
English summary
The present article claims that confessions of faith have been part of the Christian
message from the beginning and argues further that the confessions have their
roots in the Old Testament. A severe debate among Icelandic theologians one
30 Gerhardsson, Birger 1985, s. 11.
51