Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Page 86

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Page 86
Enginn hefir komist hjá því á dögum Páls að skynja mikilfengleik Artemisarhofsins í Efesus enda þótt í dag sé það að mestmegnis umlukt gróðri og súlur og burðarverk liggja eins og hráviði fyrir neðan aðalgólfflötinn í því sem eftir er af þessari miklu byggingu. Þá telur Murphy-O'Connor að leikhúsbyggingin í Efesus hafi vakið sérstakan áhuga Páls sem vettvangur til að boða fagnaðarerindið en ritaðar heimildir hafa varðveist sem sýna hvar borgarráðið (gr. boulé), öldungaráðið (gr. gerousid) og loks ungmennasamtök (gr. ephebes) máttu sitja.17 Því má bæta við að enn í dag leitast trúboðar úr ólíkum kristnum trúfélögum við að laumast með hátalarakerfi á hið forna svið leikhússins og flytja þaðan túristum fagnaðarerindið í mörgum myndum undir misgóðum söng. A stóru svæði mátti finna ýmiss konar stjórnarbyggingar. Og nokkru lengra eru hin svo kölluðu Verandar-hús í eigu auðmanna. Ríkulega útbúin og veggir ýmist málaðir af listamönnum eða skreyttir marmara og freskum.18 L. Michael White heldur því fram að þróun borgarinnar frá hellenískum, rómverskum og kristnum tíma beri að skoða í ljósi félagslegra breytinga í umhverfi hennar fremur en sem afleiðing af stjórnmálum og trúarbrögðum sem unnt væri að skoða í einhvers konar lagskiptri röð. Hann telur að íbúafjöldann megi reikna út frá fjölda karlmanna með ríkisborgararétt sem í samhengi rómverska heimsveldisins er talinn hafa numið 40.000 á þessum tíma en þar liggur til grundvallar módel sem T.R.S. Broughton þróaði á fjórða áratugi tuttugustu aldar.19 Murphy-O'Connor ber saman umfjöllun Seneka yngri (4 f.Kr. — 65 e. Kr.) í Bréfi 102.21 við umfjöllun Broughton frá árinu 1938 en höfundur telur augljóslega að Broughton styðji þá niður- stöðu Seneka að Efesus hafi talið um 225.000 íbúa á fyrstu öld.20 Þessi samanburður hefir verið langlífur og í einu ítarlegasta riti um borgina eftir Paul Tribelco er hann dreginn gagnrýnislaust fram og Murphy-O'Connor fjallar ekki um fátæklegar hugmyndir Tribelco í þessu samhengi.21 Ávallt er erfitt að meta íbúafjölda á tilteknum stað og tíma í fornöld. Walter Scheidel bendir á að í raun sé ekki lengur tekist á um hvaða gögn beri að leggja til grundvallar slíkum útreikningum heldur hvernig þau beri að túlka.22 17 Murhpy-O'Connor, St. Paul's Ephesus, s. 186-188. 18 Murhpy-O'Connor, sama rit, 130-131. 19 L. Michael White, „Urban Development and Social Change in Imperial Ephesos" 1995, s. 29. 20 Murhpy-O'Connor, sama rit, 188-200; T.R.S. Broughton, „Roman Asia Minor“, 1938, s. 4; 879-880. 21 Paul Tribelco, The Early Christians in Ephesus: From Paul to Ignatius 2004, s. 17. 22 Walter Scheidel, „Demography" 2007, s. 38. Scheidel segir frekar, „Recorded population numbers 84
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.