Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Page 87

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Page 87
Scheidel er varkár í útreikningum sínum á íbúafjölda til forna en einkum lítur hann til eftirfarandi þátta sem alla verður að taka til greina í þessu tilviki: lífslíkur, fólksfjöldi, takmörkun á fólksfjölda, sveigjanleiki varðandi fólksfjölgun, mismunandi mælikvarðar á velmegun, kröfur þjóðar (nátt- úrulegur vöxtur og þrælahald stöðva um síðir hagvöxt), frjósemisvarnir og borgarþróun (með ýmsum hætti).23 Scheidel telur að á tímabilinu 1200 f. Kr. til 200 e. Kr. hafi íbúum Evrópu á þeim svæðum sem síðar fóru undir rómversk yfirráð fjölgað um fjórðung. Það merkir um 0,1% hvert ár en í austurhluta Miðjarðarhafslanda hafi fjölgunin numið um 0,07% hvert ár sökum þess að hin hagfræðilega þróun hafi verið þar lengra komin en í vesturhlutanum.24 Að því marki, segir Scheidel, að fólksfjölgun haldist í hendur við framleiðslu varnings þá útvega þessar framleiðslutölur skapalón fyrir hagfræðilega þróun. Fólksfjölgun getur aldrei orðið örari en heildar- framleiðsla og þegar þessir þættir fara saman talar hagfræðin um jafnar tölur eða jafnvægi (e. absorption25). A grundvelli þessa, segir Scheidel mögulegt að sýna fram á að í öllum hagkerfum fyrir tíma nútímalandbúnaðar hafi þetta jafnvægi aukist um 0,1% hvert ár. Þá hafa tækniframfarir ýtt undir neyslu heimilanna að sama skapi.26 Borgarþróun við Miðjarðarhafið á þessum tíma var þó einkum háð stórveldisstefnu eða heimsvaldastefnu hellenskra (frá fjórðu öld f. Kr.) og rómverskra (frá annarri öld f. Kr.) stjórnmálamanna og herforingja sem lögðu grunn að fyrstu stórborgunum í Suður-Evrópu. Sá grunnur sem þar var lagður hlaut að verða fyrirmynd frekari þróunar í myndun stórborga á hámiðöldum í Evrópu og reyndar víðar eins og Scheidel bendir á.27 Þessi niðurstaða Scheidel viðheldur hugmyndum sem White vill skora á hólm með hinni félagsfræðilegu nálgun en White verður are few in number and often of doubtful quality: rhetorical stylization and symbolic figures permeate ancient sources, and often although official counts in Greek poleis or the Roman empire may well have yielded reasonable approximations of gross population number, such findings rarely entered the surviving literary tradition. [...] The most reliable evidence is derived from papyrological documents from Ptolemaic and especcially Roman Egypt which record the number of residents of various cities and villages but no regional totals (s. 42). 23 Scheidel, sama rit, s. 38-85. 24 Scheidel, sama rit, s. 42. 25 Enska orðið absorption hefir mörg merkingarsvið í ensku máli. Oftar en ekki felur notkun orðsins í sér einhvers konar yfirtöku eða gleypugang. Scheidel telur nauðsynlegt að skýra notkun þess og gerir það svo, „The ability of a system of production to support a given increase in population over a given period of time at a constant real wage is known as the absorption rate“ (Scheidel, sama rit, s. 43). 26 Scheidel, sama rit, s. 43. 27 Scheidel, sama rit, s. 85. 85
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.