Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Page 88
að viðurkenna að rannsóknir á fornleifafræði borgarinnar eru einfaldlega
ekki komnar nægjanlega langt til að leggja grunn að slíkri nálgun.28
Keisaradýrkunin í Efesus sameinar átrúnað, fornleifafræði og stjórnmál
sem um leið hljóta að teljast sjónarhorn félagsfræðilegrar nálgunar í einum
skilningi eða öðrum. Steven Friesen hefir skrifað um keisaradýrkunina í
Efesus og hlutverk borgarinnar í því samhengi. Hann bendir á að íbúar
Efesus hafi sjálfir kallað sig „tvisvar sinnum neókóros“.29 Gríska hugtakið
„neókóros" (gr. neokoros) var upphaflega notað um þjónustulið við musteri
en síðar yfirfært á borg eða borgir þar sem finna mátti musteri tileinkuð
keisaradýrkun. Sú notkun er fyrst þekkt einmitt í Efesus og þá samfara því
að musteri (gr. sebasteion) eru reist til að dýrka keisara (gr. sebastoi).30 í
Efesus litu íbúar þannig fyrst og fremst á sig sem Artemisar dýrkendur en
þar á eftir sem sanna dýrkendur keisaranna. Fyrsta musteri reist í Efesus
og helgað keisara var á árunum 80-85.31 Þá þegar hafði Artemis musterið
staðið öldum saman (frá áttundu öld f. Kr.), verulega endurbætt á sjöundu
öld og verið tekið til gagngerrar endurbreytingar á helleníska og rómverska
tímabilinu. Á meðal þeirra opinberu eininga sem stjórnvöld sáu um að
viðhalda á hinum hversdagslega vettvangi var nokkurs konar fjölgyðismus-
teri (gr. prytaneion) þar sem flestir gátu fundið sitt trúarlega bakland eða
þá einfaldlega komið því þar fyrir. Þessi vettvangur í Efesus á augljóslega
í samkeppni, fyrst við Artemis dýrkunina og síðar keisaradýrkunina.32 Á
tímabili eru Artemis og keisararnir dýrkuð saman en þar kemur að hin forna
dýrkun á Artemis víkur fyrir keisaralegum áherslum.33
28 White, „Urban Development", s. 64.
29 Steven Friesen, Twice Neokoros: Ephesus, Asia and the Cult of the Flavian Imperial Family 1993, s.
56; sami, „The Cult of the Roman Emperors in Ephesos: Temple Wardens, City Titles, and the
Interpretation ofthe Revelation ofjohn" 1995, s. 229-250; um uppruna keisaradýrkunarinnar við
austurhluta Miðjarðarhafsins sjá einnig, Vilborg Auður Isleifsdóttir, „Vangaveltur um mæðginin
Tíberíus og Lívíu og keisaradýrkun" 2009, s. 31-40.
30 Friesen, sama rit., s. 50.
31 Friesen, sama rit., s. 56. Þessi niðurstaða gengur gegn hefðbundnari viðhorfum sem tengja
tileinkunina við áletranir t.d. á mynt frá því á fyrri hluta annarrar aldar. Stefan Karweise er fulltrúi
þessa viðhorfs, Stefan Karweise, „The Church of Mary and the Temple of Hadrian Olympius'*
1995, s. 314. Hann segir, „According to numismatic and inscriptional evidence, the title of twice
neokoros was conferred to Ephesos between the years 130 and 132“ (s. 314)
32 Sjá Friesen, „The Cult of the Roman Emperors in Ephesos“, s. 229-250.
33 Sbr. John Dominic Crossan og Jonathan L. Reed, In Search ofPaul: How Jesus' Apostle Opposed
Rome 's Empire with God's Kingdom 2004, s. 243-246.
86