Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Page 92
taldar eiga sér guðlegan uppruna.47 Kevin Lynch fjallar í mörgum greinum
um borgir og skipulag án þess þar sé gerður sá munur á rými sem að ofan
getur. Skipulag er fyrst og fremst afrakstur af mannlegu hugviti og þar er
ekkert pláss fyrir meintan guðlegan uppruna eða opinberun guðlegs máttar
í veraldarhófinu.48 Og enn aðrir sjá í umhverfinu meir og minna óskipulagt
rými sem einfaldlega er þar og upphaflega öllum opið sem áttu leið sína á
einn stað eða annan. Hugmyndir um skipulag þessa rýmis, meðal annars
með tilvísun til æðri máttarvalda, eru fyrst og fremst til komnar vegna
félagslegrar nauðsynjar að mati þess manns sem tók yfir Chicago-skólann
eftir Eliade, Jonathan Z. Smith. Hann rekur ýmis ferli sem sýna hvernig
mannleg skynsemi ræður ferð frá því að rýmis sé leitað til þess að rými sé
skipulagt til að mynda með tilliti til þess að unnt sé að skipuleggja rými að
nýju. Þetta skynsamlega ferli verður um leið kveikja að því að setja fram
kenningu um hvernig helgisiðir verða til og eru notaðir til að viðhalda
ákveðnu þjóðfélagsmynstri á einum stað eða öðrum.49
Efesus er að sjálfsögðu rými með öllu því sem fylgdi og fylgja bar. Páll
postuli stendur frammi fyrir áskorunum sem sérfræðingar halda áfram að
deila um. Hann virðist í senn með og á móti hefðbundnum viðhorfum á
hinum félagslega vettvangi. Sú staðreynd hefir meðal annars orðið til þess
að kenningar hafa verið settar fram þess efnis að Páll hafi viljandi skilið eftir
óljósa mynd af sjálfum sér í þessu efni. Gæti verið að Páll hafa viljað bjóða
síðari tíma lesendum sínum að tengjast sér í gegnum lestur bréfa sinna með
þeim hætti að lesandinn sjálfur eða sjálf leitaðist eftir að finna sjálfa sig í
rými sem ekki var fastmótað af umhverfinu eða að minnsta kosti ekki af
honum sjálfum? Jorunn Okland heldur því fram að svo sé einmitt mál með
vöxtum í samhengi Fyrra Korintubréfs með augljósum afleiðingum fyrir
lestur annarra bréfa hans.50 Hún kemst að þeirri niðurstöðu að afstaðan
og hlutverk kynjanna hafi undirgengist mikla endurskoðun við upphaf
keisaratímans. Hún segir:
47 Lampl, Cities and Planning, s. hvarvetna.
48 Greinasafn Kevin Lynch er m.a. að finna hjáTridib Banjeree og Michael Southworth ritstj., City
Sense and City Design: Writings and Projects of Kevin Lynch 1996.
49 Jonathan Z. Smith, To Take Place: Toward Theory in Ritual 1987.
50 Jorunn 0kland, Women in heir Place: Paul and the Corinthian Discourse of Gender and Sanctuary
Space 2004.