Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Page 96

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Page 96
Magnús Þorkell Bernharðsson, Háskóla Islands Er guðfræðileg gagnrýni gagnleg?1 2 Ég ætla að byrja þennan fyrirlestur á sögu af dansi og hvað gæti verið einn áhrifamesti „ekki séns“ sögunnar. I meþódistakirkjunni í háskólabænum Greely í norðurhluta Colorado í Bandaríkjunum fór fram kvöldvaka á vegum kirkjunnar í nóvember 1949. Þessi samkoma átti sér stað eftir kvöldmessu og átti að höfða til yngri kynslóðarinnar. Einn gestur á þessari samkomu fylgdist mjög vel með því sem fór fram. Hann lýsir því hvernig salurinn „var tendraður með rauðum, bláum, og hvítum ljósum. Gólfið tifaði fram og til baka undir hoppandi og tælandi leggjum. Þarna voru náin faðmlög og kossafans. Þetta var ástríðufull samkoma.“ Og þessi maður heldur áfram lýsingunni og segir frá því hvernig sjálfur presturinn lækkaði ljósin enn frekar til að skapa enn rómantískari stemmningu. Presturinn setti á fóninn nýlegt lag, „Baby It's Cold Outside\ sem var helsta lagið í stórmynd ársins Dóttir Neptúnusar? Þessi dúet lýsir tilraun karlmanns til að sannfæra konu um að eyða nóttinni með sér í stað þess að fara heim, enda sé kalt úti, „Baby It's Cold Outside". Og þegar lagið dundi kom ung, kurteis bandarísk kona upp að gestinum og bauð honum í dans. Gesturinn átti ekki til aukatekið orð. Hér var ókunnug kona að gera sig líklegan við hann. Atti hann virkilega að stíga dans með þessari konu við þetta lag í húsi Drottins? Var ekkert heilagt lengur í Bandaríkjunum? Að hans mati var búið að snúa siðgæðinu á hvolf og djöfulinn sjálfur lék lausum hala í bandarísku samfélagi. Það kom sko ekki til greina að falla fyrir þessari freistingu og hann strunsaði út úr kirkjunni beint út í vetrarkuldann í Colorado. Sá sem hafnaði þessum dansi var enginn annar en Egyptinn Sayyid Qutb, einn helsti hugmyndafræðingur Bræðralags múslima í Egyptalandi og oft kallaður „guðfaðir“ al-qaeda samtakanna sem hafði sérstaklega mikil áhrif á núverandi leiðtoga þeirra, Ayman al-Zawahari.3 Qutb var á sérstökum 1 Fyrirlestur á vegum Stofnunar Sigurbjarnar Einarssonar Skálholti 16/7/2011 2 Neptunes Daughter (Edward Buzzell: 1949). 3 Allmargir fræðimenn hafa rannsakað Bræðralag múslima í Egyptalandi og beitt ólíkum aðferðum. Robert Mitchell innti af hendi mikið brautryðjendastarf og bókin hans, sem kom út 1969 og nefnist The Society of the Muslim Brothers (New York: Oxford University Press, 1969), er ennþá grundvallarrit. Carrie Wickham notar aðferðarfræði stjórnmálafræða og skoðar stofnanauppbyggingu 94
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.