Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Síða 120
Jónssonar frá Reykjahlíð og Kristrúnar Jónsdóttur, systur Guðnýjar frá
Klömbrum. Síðar á hann eftir að gerast dugmikill bóndi og þau Sigríður
setjast að á Grímsstöðum á Mýrum og þar elst Haraldur upp í miklu
uppáhaldi móður sinnar.
Pétur Pétursson dregur upp mynd af þeim íjölskrúðugu þáttum sem
eiga þátt í að móta Harald. Trúrækni, alvara, vinnusemi og allt að því
vinnuharka: Allt mótar þetta og meitlar. Tengslin við dómkirkjuna í
Reykjavík þar sem frændi hans er prestur styðja við áform móður hans
að koma honum til mennta og strax á fermingaraldri er Haraldur sendur
til Hallgríms Sveinssonar, móðurbróður síns og fóstra til náms. Hann
stenst inntökupróf í Lærða skólann 1884 og eftir það má segja að hann sé
kominn á menntabrautina sem var á þessum tíma einungis fyrir fáa útvalda.
Tuttugu og eins árs heldur Haraldur til náms við Kaupmannahafnarháskóla
(1890) þar sem hann verður fyrir miklum áhrifum fjölbreyttra hugmynda- ,
trúar- og kirkjustefna. Kaupmannahöfn var líkt og sjóðandi bræðslupottur
á þessum tíma og hart tekist á meðal menntamanna. Heimspekingurinn
Soren Kierkegaard og Georg Brandes eru einungis tvö dæmi um menn sem
höfðu mikil áhrif á hann. Samtímis lendir Haraldur í mikilli krísu, að því
er virðist, þar sem hugsjónir og veruleiki virðast ekki ganga hönd í hönd.
Bréf hans frá þessum tíma tjá tilfinningar djúpstæðs efa og jafnvel angistar.
Árið 1897 gengur hann upp til lokaprófs og lýkur því með hæstu einkunn
sem nokkur Islendingur hafði tekið við deildina um áratuga skeið. Að því
loknu snýr hann heim til Islands.
Kaflarnir sem á eftir fara (tímabilið eftir að Haraldur kemur heim frá
Kaupmannahöfn) lýsa ákaflega miklum gróskuu'ma í andlegu, félagslegu
og menningarlífi í Reykjavík þar sem Haraldur og margir þeir sem höfðu
verið honum samtíma í Kaupmannahöfn fara mikinn. Þjóðmál, trúmál
og jafnvel einkamál verða vart aðskilin hér og hart tekist á um guðlast,
siðspillingu, áfengisbölið, vantrú og áfram mætti telja. Ásakanir gengu á
víxl: Sósíalistar gagnrýndu kirkjuna fyrir að kúga alþýðuna og trúmenn eins
og Haraldur og fleiri gagnrýna sósíalista fyrir hatur og misskilning á eðli
og hlutverki kristindómsins! Mitt í öllu saman trúlofast Haraldur prests-
dóttur frá Stykkishólmi, Bergljótu Sigurðardóttur. Þau heitbindast 1897 en
brúðkaup þeirra stendur þó ekki fyrr en þremur árum síðar eða árið 1900.
I millitíðinni sinnir Haraldur þýðingarvinnu fyrir Hið íslenska biblíufélag,
fer utan til framhaldsnáms í hebresku og dvelst meðal annars í Þýskalandi,
Danmörku og Englandi. Hjónaband Bergljótar og Haralds verður því miður
118