Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Page 123

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Page 123
greinandi hún er. Hlutir eru settir í vítt samhengi, flokkaðir, skýrðir og greindir. Með bókinni er þannig orðið til mikilvægt framlag til skilnings á einni þekktustu guðfræðistefnu á síðari tímum, frjálslyndu guðfræðinni svokölluðu, og sú stefna tengd öðrum hreyfingum og hugmyndastefnum frá sama tíma. Spíritisminn eins og hann þróaðist hér á landi upp úr 1900 er einstaklega áhugvert íyrirbæri og nauðsynlegt að skilja hvers vegna hann naut jafn mikillar hylli og raun ber vitni. Þar er aðkoma Haralds mikilvæg en hann á heiðurinn af því að tengja hann á frumlegan hátt við kristna trú og íslenska trúrækni þannig að almenningi fannst hið eðlilegasta mál að vera í sambandi við framliðna og fá fréttir af þeim. Jafnframt er hér birt ákaflega blæbrigðarík mynd af þjóðþekktri persónu sem hvert mannsbarn þekkti til fyrir um 100 árum. Persónusagan og hugmynda/guðfræðisagan — báðar eru þær ákaflega vel unnar. Svo er ugglaust heimildum þeim sem höfundur hafði aðgang að, þ.e. persónuleg bréf og nótur úr einkaskjalasafni Haralds, fyrir að þakka auk mikillar elju. Með slíkar heimildir í farteskinu er unnt að fá fram blæbrigðaríka og sálrænt aðlaðandi mynd af persónu, sem átti sér þó alls ekki bara bjartar og jákvæðar hliðar. Það er alveg ljóst að Haraldur Níelsson var ekki gallalaus enda ekki gerð nokkur tilraun til að upphefja hann og gera að dýrlingi. Myndin af honum virðist mér raunsönn og sanngjörn. Frágangur og framsetning bókarinnar er góð svo eftir er tekið. Málfarið áferðarfagurt og líður fram eðlilega og smekklega. Ómetanlegt er að fá nafnaskrá og vel unna heimilda- og tilvísunarskrá með verkinu. Það styður við framtíða rannsóknir á þessu tímabili í hugmyndasögu lands og þjóðar sem fræðimenn eiga eflaust eftir að njóta góðs af. Trúmaður á tímamótum er sannarlega þyngdar sinnar virði og ástæða til að óska höfundi hennar, Pétri Péturssyni til hamingju. 121
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.