Fréttablaðið - 26.11.2016, Blaðsíða 26
Ég er að velta upp spurn-ingum um hvar nútíma-maðurinn stendur í neyslusamfélaginu og m.a. bera það saman við barokktímann. Á því
tímabili sögðu verk í myndlist ekki
nema lítið brot sannleikans. Það var
frekar verið að fjalla um eilífa fegurð
og æsku – konur voru yfirleitt aldrei
sýndar nema sem eign mannsins eða
sem hugmyndir karla um konuna. Á
portrettmyndum héldu þær í mesta
lagi á lítilli bók, hundtetri eða vasa-
klút,“ segir Kristín Gunnlaugsdóttir
myndlistarkona, sem opnar sýning-
una Siðbót á sunnudag í safnaðar-
heimili Neskirkju, strax eftir messu.
„Þannig segja þau falska sögu ef
maður hugsar um raunverulegt líf
fólks á þessum tíma. Ég nota klass-
íska uppbyggingu portretta en sýni
það sem liggur nær raunveruleika
nútímamannsins, ekki síst með líf
kvenna í huga. Nefni sem dæmi
hugmyndir okkar um kvenhlut-
verk, öldrun og fólk með sjúkdóms-
sögu sem kynverur. Þannig vinn ég
úr listasögunni og velti fyrir mér
hvernig sagan endurtekur sig.“
Kristín hefur haldið fjölda mynd-
listarsýninga um ævina, en segir
inntak verkanna ef til vill sett í aðra
umræðu með því að halda sýningu í
safnaðarheimili kirkju. „Mér finnst
það mjög til góðs og það hentar
sérstaklega mínum verkum, því ég
heillast af öllu sem snýr að innri
líðan mannsins og veltir steinum. Og
á það ekki einmitt vel við kirkjuna og
húsakynni hennar? Það þarf engu að
síður að hugsa vel hvað fer hér inn
og taka tillit til starfseminnar en örva
samt hugsunina og skilningarvitin.
Að sýna í safnaðarheimili finnst
mér gefa meira svigrúm en að sýna
í kirkjuskipinu sjálfu. Mér finnst t.d.
ekki öll verkin á sýningunni eiga
erindi inn í kirkjuskipið sjálft þótt
umræðan sem tengist þeim geri
það svo sannarlega. En hugsunin
um hvað hentar og hvers vegna á
hverjum stað er til góðs, bæði fyrir
listamenn og aðra.“
Verkin á sýningu Kristínar eru öll
ný og gerð á þessu ári, að undan-
skildu einu veggteppi. Við opnun
sýningarinnar mun Kristín segja
stuttlega frá verkum sínum og hug-
myndum. olof@frettabladid.is
Siðbót í safnaðarheimili
Kristín Gunnlaugsdóttir heillast af því sem snýr að innri líðan mannsins og sýnir verk sín í safnaðarheimili Neskirkju.
Konur voru yfirleitt aldrei sýndar nema sem eign mannsins eða sem hugmyndir karla um konuna. Á portrettmyndum héldu þær í mesta lagi á lítilli bók, hundtetri eða vasaklút,“ segir Kristín Gunnlaugsdóttir mynd-
listarkona, sem opnar sýninguna Siðbót á sunnudag í safnaðarheimili Neskirkju. Fréttablaðið/aNtoNbriNK
Ég nota klassíska
uppbyggingu portretta
en sýni það sem liggur
nær raunveruleika
nútímamannsins.
Heimsókn á jólamarkað Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur hefur
fest sig í sessi sem aðventuhefð hjá
ótal fjölskyldum á höfuðborgar-
svæðinu. Auk markaðs og Jólatrés-
sölu er barnastund í Rjóðrinu á
hverjum helgardegi kl 14, þar sem
lesið er úr barnabók við varðeld og
jólavseinninn kíkir við. Upplestrar
og tónlistarflutningur á kaffistofu,
harmonikkuleikur, kórar og alltaf
heitt á könnunni. Keyrt er inn í
Heiðmörk við Rauðhóla.
Jólamarkaður
í Elliðavatnsbæ
Fallegustu jólaskreytingarnar eru
oftast þær allra einföldustu og úr
ódýru hráefni. Það má nota bóm-
ullarhnoðra og þræða upp á band
og hengja upp í glugga. Einfaldar
stjörnur á þráð og útklipptar jóla-
stjörnur fara vel í glugga.
Fallegur jólagluggi
Í upphafi aðventu búa margir til sinn
eigin aðventukrans. Það þarf ekki að
vera flókið verk. Hinn hefðbundni
aðventukrans er með fjórum kertum
sem standa á grenihring og ekki er
öllum lagið að útbúa slíkan krans.
Þess í stað má sameina útiveru um
helgina kransagerðinni og einblína
á einfaldari lausnir. Það má til dæmis
nota trékassa utan af mandarínum
og tína greni og köngla til að setja
ofan í hann ásamt kertum í gler-
krukkum. Þá er hægt að útbúa fal-
legan og einfaldan krans úr könglum.
Tínt í krans í skóginum
Einfalt úr viðardrumbiÞað má nota kassa utan af mandarínum í einfalda skreytingu
2 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r26 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
helgin
2
6
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
9
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
7
1
-D
E
A
0
1
B
7
1
-D
D
6
4
1
B
7
1
-D
C
2
8
1
B
7
1
-D
A
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
4
4
s
_
2
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K