Fréttablaðið - 26.11.2016, Blaðsíða 43
Í Sómalífylki í Eþíópíu valda tíðir þurrkar viðvarandi
matarskorti og vannæringu. Vatnsskorturinn leiðir
til lélegs ástands bústofnsins en dýralæknaþjón-
usta er stopul. Afleiðingin er fátækt en vegna henn-
ar er skortur á tækjum og tólum og því eru ræktun-
araðferðir í jarðrækt takmarkaðar. Allt leiðir þetta
til þess að fæðuöryggi er mjög ábótavant og lífsskil-
yrði eru slæm.
Hjálparstarf kirkjunnar hefur starfað með sjálfs
þurftarbændum í Jijiga í Sómalífylki í níu ár. Starfið
hefur borið góðan árangur en svæðið er stórt. Þegar
aðstæður hafa breyst til batnaðar í einu þorpi höfum
við fært okkur um set og hjálpað fólki til sjálfshjálpar
í því næsta. Með þínum stuðningi höldum við áfram að
hjálpa fólkinu í Jijiga, í hverju þorpinu á fætur öðru.
Meginmarkmið Hjálparstarfs kirkjunnar í Jijiga í Sóma
lífylki Eþíópu er að bæta lífsskilyrði fólks sem býr við
sára fátækt. Það gerum við með því að:
Tryggja aðgengi að hreinu vatni
Þegar brunnur er kominn við þorpið þurfa íbúarnir
ekki lengur að deila vatnsbólum með búfénaði. Það
kemur aftur í veg fyrir sjúkdóma af völdum óheilnæms
drykkjarvatns. Fólk við góða heilsu hefur þrek til
vinnu og sjálfshjálpar. Stúlkur sem áður þurftu að
ganga eftir vatni um langan veg fá tíma til að ganga í
skóla.
Efla völd og áhrif kvenna
Múmína er 75 ára gömul ekkja sem fékk örlán, 18.000
krónur, frá Hjálparstarfinu árið 2007. Fyrir þann tíma
var hún mjög fátæk og lifði af því að safna spreki og
selja sem eldivið. Nú rekur hún verslun þar sem hún
selur m.a. sykur, hrísgrjón og símkort. Hún stundar
einnig nautgriparækt og á geitur. Örlánið hefur því
margborgað sig og Múmína hefur fyrir löngu greitt
það til baka. Örlán og fræðsla um möguleika á at
vinnuskapandi tækifærum er einmitt leið Hjálpar
starfsins að því markmiði að efla völd og áhrif kvenna
á svæðinu, samfélaginu öllu til farsældar.
Tryggja fæðuöryggi og framfærslu
Nýjar tegundir og bættar ræktunaraðferðir leiða til
betri uppskeru og með þjálfun dýraliða fá bændur
betri þjónustu og heilsufar búfjár verður betra. Ein
stæðar mæður sem eru í viðkvæmri stöðu í samfé
laginu fá meðal annars geitur, hænur og uxa til að
hjálpa til við jarðrækt, allt til að auka fæðuval fjöl
skyldunnar.
Vatn er lífsvon
Þegar brunnur er kominn við þorpið þurfa íbúarnir
ekki lengur að deila vatnsbólum með búfénaði.
Múmína hefur fyrir löngu greitt örlánið sitt til baka. Nú
rekur hún verslun og stundar búfjárrækt.
Nýjar tegundir matjurta, þjálfun í jarðrækt, að fá búfé til
umráða ásamt markvissri þjálfun í umönnun þess eykur
fæðuval fjölskyldunnar.
Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir
prédikar. Dr. Sigurður Árni Þórðarson og
sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjóna fyrir
altari ásamt messuþjónum og fulltrúum
Hjálparstarfs kirkjunnar.
Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn
Harðar Áskelssonar.
Organisti: Björn Steinar Sólberg.
Gjöfum til Hjálparstarfs kirkunnar veitt móttaka.
Hátíðarmessa í Hallgrímskirkju
fyrsta sunnudag í aðventu, 27. nóvember kl. 11:00.
Margt smátt ... – 5
2
6
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
9
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
7
2
-1
E
D
0
1
B
7
2
-1
D
9
4
1
B
7
2
-1
C
5
8
1
B
7
2
-1
B
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
4
4
s
_
2
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K