Fréttablaðið - 26.11.2016, Blaðsíða 130
Bækur
Aflausn
HHHHH
Yrsa Sigurðardóttir
Útgefandi: Veröld
Prentun: Oddi
Fjöldi síðna 363
Kápa: Ragnar Helgi Ólafsson
Síminn pípir og tilkynnir að nýtt
snapp sé komið frá Stellu, sextán ára.
Vinir hennar svara kalli símans en
bregður í brún þegar myndskeiðið
reynist sýna grófar misþyrmingar á
henni sjálfri, biðjandi fyrirgefningar
inni á klósetti í bíóinu þar sem hún
er að vinna. Þegar lögreglan fær
veður af snapp-
inu er Stella löngu
horfin og síminn
hennar líka og
aðeins blóðslóð
og upptaka úr
ö r yg g i s my n d a-
vélinni í bíóinu er
til frásagnar um
afdrif hennar.
Þ a n n i g f e r
glæpamálið í nýj-
ustu sögu Yrsu
Sigurðardóttur
af stað og teygir
sig fljótlega í
ákveðna átt,
nefnilega að
einelti, ósýni-
lega glæpnum
sem allt of oft
er afgreiddur
sem stríðni,
b a r n a b r e k
e ð a „ b a r a
grín“. „Grín-
ið“ sem lýst
er í bókinni felst meðal annars í
félagslegri útskúfun og því að segja
unglingum að þau séu ógeðsleg og
eigi skilið að drepast, stofna vef-
síður í þeirra nafni og setja þar inn
vafasamt efni og fleira í þeim dúr.
Þessar lýsingar Yrsu eru því miður
engar ýkjur heldur beinar tilvitn-
anir í raunveruleg dæmi. Svo má
auðvitað ekki gleyma því að einelti
er eldra en internetið og fjöldi fólks
gengur um með sár á sálinni og jafn-
vel víðar vegna ítrekaðs aðkasts
skólafélaga sinna í æsku og að ein-
elti lifir góðu lífi á vinnustöðum og
í garð minnihlutahópa. Yrsa tekur
á þessu brýna samfélagsmálefni af
þekkingu og færni og sýnir inn í
heim grimmdar og þjáninga á ein-
stakan hátt. Þrælslund símanot-
enda gagnvart tækjunum sínum fær
einnig sinn skerf af gagnrýni.
Þrátt fyrir þessi efnistök er
Aflausn þó auðvitað fyrst og fremst
glæpa- og spennusaga. Við höldum
áfram að fylgjast með persónun-
um sem við kynntumst í DNA og
Soginu, lögreglufólkinu Huldari
og Erlu og sálfræðingnum Freyju
og samskiptum þeirra, ástum og
misheppnuðum tilraunum til að
ná tökum á lífi sínu. Persónurnar
eru vel skrifaðar, og amstur þeirra
í senn hlálegt og heiðarlegt. Eins og
Yrsu er von og vísa er plottið þétt og
frumlegt og vindur ofan af sér í hár-
réttum spennustuðli allt til enda.
Talandi um grín, eitt af því sem
hefur verið fjarverandi í fullorðins-
bókum Yrsu Sigurðardóttur, en les-
endur barnabóka hennar sakna, er
fyndnin sem Yrsa kunni svo sannar-
lega að skrifa svo allur aldur veltist
um af hlátri. Þrátt fyrir alvarlegt
u m f j ö l l -
u n a r e f n i
m á s j á
g l i t t a í
g a m l a
g r í n t a k t a
í Aflausn
s v o o f t
má skella
upp úr yfir
a ð st æ ð u m
og tilsvörum.
Óhugnaður-
inn sem Yrsa
skrifar einnig
svo prýðisvel
e r h e l d u r
aldrei langt
undan, lýsing-
ar sem fá hárin
til að rísa og
valda óbragði
í m u n n i .
Óbragðið er þó
mest yfir lýs-
ingunum á því
hversu grimm
og úthugsuð börn geta verið í því að
pynta jafnaldra sína sem ekkert hafa
til saka unnið, nema kannski að vera
aðeins öðruvísi.
Ég hef ekkert alltaf verið jafn-
hrifin af glæpasögum Yrsu og
fundist þær ekki fara nógu vel út
úr samanburðinum við barna-
bækurnar eða hryllingssögurnar.
Það hefur þó breyst síðustu ár og
þessi bók finnst mér eiga heima
með allra bestu spennusögum sem
eiga það sameigin legt að teygja
sig út fyrir ramma sögunnar og
ávarpa samfélagsvanda sem brýn
þörf er á að horfast í augu við.
Brynhildur Björnsdóttir
NiðurStAðA: Einkar góð glæpa-
saga þar sem efnistök, plott og
persónusköpun koma saman í sögu
sem heldur lesandanum fram á
rauðanótt.
Ekki bara grín
„Þetta verður fjölbreytt prógramm,“
segir Frank Aarnink slagverksleikari
um efnisskrá tónleikanna Töfratóna
Duo Harpverk sem hefjast klukkan
15.15 í Norræna húsinu síðdegis
á morgun. Þar spilar hann ásamt
Katie Buckley hörpuleikara og
saman mynda þau Duo Harpverk.
„Við erum með einn frumflutning,
eftir Inga Garðar Erlendsson. Hitt
efnið er úr okkar safni,“ segir Frank
o g h e l d u r á f r a m : „ Þ r j ú
þeirra verka höfum við bara spilað
einu sinni áður. Það var 2012 svo við
þurfum að æfa þau núna eins og um
frumflutning sé að ræða. Þetta eru
Oneness of One Is One eftir Berg-
rúnu Snæbjörnsdóttur, Brú eftir
Þráin Hjálmarsson og Amsterdam
eftir Jeppe Petersen. Þráinn er með
nóturnar bæði á blöðum og vídeói
og nóturnar hennar Bergrúnar eru
svo fallega skrifaðar að þær eru lista-
verk út af fyrir sig,“ segir hann.
Allir sem eiga verk á tónleik-
unum eru félagar í tónskálda-
hópnum S.L.Á.T.U.R. Einn þeirra
er Áki Ásgeirsson sem á verkið 242
Degrees. Í því kveðst Frank vera
með skiptilykil og ananas á sviðinu.
Það er greinilega tekið upp á ýmsu
hjá þessum hópi. Frank tekur undir
það. „ Síðast þegar Ingi Garðar sendi
okkur verk þurftum við að spila á
plastslöngu, tíu metra langa en við
vitum ekki hvað bíður okkar núna.“
Þetta eru síðustu 15:15 tónleik-
arnir á árinu 2016. gun@frettabladid.is
Með skiptilykil og ananas
Þau Katie Buckley og Frank Aarnink í
Duo Harpverk taka upp á ýmsu bæði
utan sviðs og innan.
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
Fálkagata 18 • Dalbraut 1
Jólakökur,Smákökur,Stórar piparkökurtil að skreyta,PipakökuhúsO.m.fl.
JÓLIN ERU
HJÁ OKKUR...
....................................................
www.bjornsbakari.is
2 6 . N ó v e m B e r 2 0 1 6 L A u G A r D A G u r74 m e N N i N G ∙ F r É t t A B L A ð i ð
Bækur
einfari
HHHHH
Hildur Sif thorarensen
Útgefandi Óðinsauga
Prentun: Í Þýskalandi
Fjöldi síðna: 220
Þeir sem reynt hafa vita hvað það er
gríðarlega mikið verk að skrifa bók.
Sjálf dáist ég að þeim sem skrifa
sínar fyrstu bækur af einskærum
áhuga, án þess að hafa hugmynd um
hvort þessi mikla vinna muni skila
sér í launum öðrum en ánægjunni
eða hvernig bókinni verður tekið.
Hugmyndavinnan er kannski það
minnsta, handverkið, tíminn og
ástríðan er það sem skiptir máli
við að koma hugmynd á blað og
gera hana að heilli skáldsögu. Oft
eru höfundar fyrstu bóka í fullri
vinnu meðfram skrifunum og þurfa
væntan lega að færa heilmiklar fórn-
ir til að geta sinnt þeim.
Hildur Sif Thorarensen er verk-
fræðingur sem stundar nám í
læknis fræði við Háskólann í Ósló.
Hún hefur að auki búið víða um
heim og sjálfsagt lesið aragrúa reyf-
ara á ferðum sínum milli heims-
hluta og -álfa. Fyrsta bók hennar,
Einfari, ber þess nokkur merki.
Þetta er glæpasaga sem gerist í
Ósló og vitnar óspart í ýmsa þekkta
sjónvarpsþætti og persónur. Þann-
ig minnir geðlæknirinn Alexander
bæði á Castle úr sam-
nefndum sjónvarps-
þáttum og Sebastian
Bergman úr sögum
Hjort og Rosenfeld,
léttkrúttlega en bráð-
skarpa tæknistelpan
hjá löggunni er alveg
e i n s o g Pe n e l o p e
Garcia úr Criminal
Minds nema hvað hún
á ívið fleiri einhyrn-
ingabangsa og plastr-
isaeðlur ofan í skúffu.
Au k a l ö g g u r n a r e r u
skrautlegir karakterar, annar er
vaxtarræktar tröll og hinn hommi
og samskipti þeirra verða oft
spaugileg en koma sögunni ekkert
við.
Talandi um sögu þá eru þrjár
sögur í gangi í einu sem tengjast ekki
innbyrðis, einfalt morðmál þar sem
íslenskur karlmaður finnst látinn, en
sá hefur farið víða á Tinder, og svo
annað flóknara og ógeðfelldara. Enn
eitt málið tengist vinkonu móður
Alexanders en svo fer móðir hans á
óvænt stefnumót á meðan Júlía, hin
hranalega yfirlögga með gullhjartað,
á líka sína sögu sem við fáum nasa-
sjón af en ekkert meir. Að auki koma
við sögu tveir ólíkir söfnuðir, Vottar
Jehóva sem ganga milli húsa með
bæklinga og nornasöfnuður þar sem
krakkar fikta við svartagaldur.
Sem sagt fullt að gerast en ekki
tekst nægilega vel að halda fókus
þannig að lesandinn haldi þræði
enda er hann
löngu búiinn að
gleyma hver heitir
hvað þegar hopp-
að er svo hratt á
milli rannsókna,
einkalífs og ann-
arra mála sem
stundum koma
ra n n s ó k n i n n i
við og stundum
ekki. Allt þetta
hefði sómt sér
prýðilega í sjón-
varpsþáttaröð
en á 220 blaðsíðum í litlu broti er
ekki rými til að gera neinu af því
sem kynnt er til sögunnar skil á
sannfærandi hátt.
Aftan á bókarkápu er tilvitnun
þar sem segir að vel borgi sig að
fylgjast með skrifum Hildar Sifjar
í framtíðinni. Ég er sammála því.
Í bókinni er fullt af góðum hug-
myndum og greinileg geta til að búa
til plott og persónur. Það hefði hins
vegar mátt vinna betur úr þessum
hugmyndum, kafa dýpra og jafn-
vel dreifa þeim á fleiri bækur sem
virðast í bókarlok vera væntan-
legar. Stundum er minna meira og
allt í lagi að gefa hugmyndum rými
til að anda. Vonandi fær Hildur
Sif tækifæri til þess í næstu bók.
Brynhildur Björnsdóttir
NiðurStAðA: Margar ágætar hug-
myndir sem hefði mátt vinna mun
betur úr.
Of mikið í gangi
2
6
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
9
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
7
1
-D
4
C
0
1
B
7
1
-D
3
8
4
1
B
7
1
-D
2
4
8
1
B
7
1
-D
1
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
4
4
s
_
2
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K