Fréttablaðið - 26.11.2016, Blaðsíða 42
1) Nepal: Aðstoð við 308 þúsund íbúa sem urðu illa úti
í jarðskjálfta sem reið yfir landið í apríl 2015. Aðstoð
in fólst í því að tryggja fólkinu hreint vatn og hrein
lætisaðstöðu, heilbrigðisþjónustu, húsaskjól og
stuðning við viðgerð á húsnæði, matarföng,
áfallahjálp og sálrænan stuðning. Hjálparstarf kirkj
unnar sendi í febrúar um 21 milljón króna til neyðar
aðstoðar Alþjóðlegs hjálparstarfs kirkna, ACT Alliance
á svæðinu. Utanríkisráðuneytið kom að verkefninu
með því að leggja til 95% framlagsins.
2) Flóttafólk frá Sýrlandi í Jórdaníu og Líbanon: Til að
mæta brýnum grunnþörfum eru flóttafólkinu tryggð
matarföng, húsaskjól með hreinlætisaðstöðu og að
gangur að heilsugæslu. Skólastarfi er haldið úti fyrir
börn og börnum og unglingum veittur sálrænn stuðn
ingur en með honum er ungu flóttafólki frá Sýrlandi
sem dvelur í flóttamannabúðum og ungu fólki í
sveitarfélaginu sem tekur á móti því hjálpað við að
takast á við erfiðar aðstæður. Í febrúar 2016 sendi
Hjálparstarf kirkjunnar 22,5 milljónir króna, þar af 20
milljóna styrk frá utanríkisráðuneytinu, til neyðarað
stoðar Alþjóðlegs hjálparstarfs kirkna, ACT Alliance.
3) Haíti: Neyðaraðstoð í kjölfar fellibylsins Matthíasar:
Í byrjun október reið fellibylurinn Matthías yfir Haíti
með þeim afleiðingum að meira en 500 týndu lífi og
eyðileggingin er mikil. Á þeim svæðum sem ástandið
er verst (Sud og Grande Anse) eru 75% íbúa í mikilli
þörf fyrir neyðaraðstoð. 1,4 milljón manns á Haítí er í
brýnni þörf fyrir aðstoð. Áherslan er á að tryggja ör
uggt skjól, aðgang að hreinu drykkjarvatni, reisa
bráðabirgðavatnsstöðvar og gera við vatnskerfi sem
hefur laskast, gera við hreinlætisaðstöðu sem hefur
orðið illa úti og reisa nýjar. Konur og börn eru mark
hópur aðgerðanna, 1600 fjölskyldur munu fá öruggt
drykkjarvatn og hreinlætisaðstöðu, 700 fjölskyldur
fá stuðning til lífsviðurværis og ýmsan efnislegan
stuðning. Í nóvember sendi Hjálparstarf kirkjunnar
21,1 milljón króna til neyðaraðstoðar Alþjóðlegs
hjálpar starfs kirkna, ACT Alliance, þar af 20 milljóna
styrk frá utanríkisráðuneytinu.
4) Úganda: Neyðaraðstoð við flóttafólk frá Suður
Súdan. Vegna valdabáráttu og ófremdarástands í
SuðurSúdan hefur verið stöðugur straumur flótta
fólks þaðan til Adjumani héraðs í NorðurÚganda.
Meira en 300.000 flóttamenn hafa komið til Úganda.
Markmiðið er að tryggja fólki húsaskjól, hreint
drykkjar vatn, hreinlætisaðstöðu og lífsviðurværi og
menntun fyrir börnin. Einnig að stuðla að sátt og sam
lyndi ríki við heimasamfélagið með því að tryggja þeim
viðunandi lífsafkomu. Markhópurinn er 27.348 flótta
menn, þar af eru 70% börn. Í nóvember sendi Hjálpar
starf kirkjunnar 10,6 milljónir króna, þar af 10 milljóna
króna styrk frá utanríkisráðuneytinu, til neyðar
aðstoðar Alþjóða hjálparstarfs kirkna, ACT Alliance.
5) Eþíópía: Miklir þurrkar ollu endurteknum upp
skerubresti í norðurhluta Eþíópíu í fyrra og í vor
þannig að búfé féll úr hor og milljónir íbúa urðu háð
ar aðstoð um lífsviðurværi. Stjórnvöld í landinu
brugðust skjótt við með matarsendingum á verstu
þurrkasvæðin en réðu ekki óstudd við ástandið. Auk
þess að glíma við þurrkana sem raktir eru til El Nino
veðurkerfisins er Eþíópía nú stærsta móttökuríki
flóttafólks í Afríku með fleiri en 700.000 manns í
flóttamannabúðum víðs vegar um landið. Hjálpar
starf kirkjunnar svaraði neyðarbeiðni frá Alþjóðlegu
hjálparstarfi kirkna, ACT Alliance, og sendi í júní 11,5
milljónir króna til neyðaraðstoðar við 4.670 sjálfs
þurftarbændur í Lalibela í norðurhluta landsins.
Utan ríkisráðuneytið tók þátt í verkefninu með styrk
að upphæð 10 milljónum króna.
Mannúðaraðstoð Hjálparstarfs
kirkjunnar vegna stríðsátaka og
náttúruhamfara á árinu 2016:
Utanríkisráðuneytið úthlutaði nú í nóvember 85
milljónum króna til íslenskra borgarasamtaka
vegna mannúðaraðstoðar. Mannúðaraðstoð felur í
sér björgun mannslífa, vernd óbreyttra borgara,
útvegun nauðþurfta og annarrar aðstoðar sem
auðveldar afturhvarf til eðlilegs lífs í kjölfar ham
fara. Hana ber ætíð að veita með ábyrgum og sam
hæfðum hætti samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum og
grundvallarreglum um mannúð, óhlutdrægni, hlut
leysi og sjálfstæði.
Íslensk stjórnvöld reiða sig meðal annars á borg
arasamtök til að koma mannúðaraðstoð sinni til
skila og er styrkjum vegna mannúðaraðstoðar ætl
að að svara alþjóðlegum neyðarköllum allt árið um
kring. Þrettán umsóknir bárust að þessu sinni um
styrki til mannúðarverkefna frá fimm borgarasam
tökum að heildarupphæð rúmlega 183 milljónum
króna. Úthlutunin nær til fimm verkefna, þrjú eru
til aðstoðar flóttafólks, eitt vegna stríðsátaka í
Sýrlandi og eitt vegna náttúruhamfara á Haítí eins
og sjá má í eftirfarandi yfirliti um styrkina.
• 20 milljónir – Hjálparstarf kirkjunnar vegna
mannúðaraðstoðar í kjölfar fellibylsins Matthí
asar á Haítí.
• 20 milljónir – Rauði krossinn á Íslandi vegna
stuðnings við flóttafólk frá SuðurSúdan í
Úganda.
• 20 milljónir – Rauði krossinn á Íslandi vegna
björgunar flóttafólks og farenda á Mið
jarðarhafi.
• 15 milljónir – SOS Barnaþorpin á Íslandi vegna
neyðaraðstoðar í Sýrlandi.
• 10 milljónir – Hjálparstarf kirkjunnar vegna
neyðaraðstoðar við flóttafólk frá SuðurSúdan í
Úganda.
1
54
2 3
4 – Margt smátt ...
Í Sómalífylki í Eþíópíu valda tíðir þurrkar viðvarandi
matarskorti og vannæringu. Vatnsskorturinn leiðir
til lélegs ástands bústofnsins en dýralæknaþjón-
usta er stopul. Afleiðingin er fátækt en vegna henn-
ar er skortur á tækjum og tólum og því eru ræktun-
araðferðir í jarðrækt takmarkaðar. Allt leiðir þetta
til þess að fæðuöryggi er mjög ábótavant og lífsskil-
yrði eru slæm.
Hjálparstarf kirkjunnar hefur starfað með sjálfs
þurftarbændum í Jijiga í Sómalífylki í níu ár. Starfið
hefur borið góðan árangur en svæðið er stórt. Þegar
aðstæður hafa breyst til batnaðar í einu þorpi höfum
við fært okkur um set og hjálpað fólki til sjálfshjálpar
í því næsta. Með þínum stuðningi höldum við áfram að
hjálpa fólkinu í Jijiga, í hverju þorpinu á fætur öðru.
Meginmarkmið Hjálparstarfs kirkjunnar í Jijiga í Sóma
lífylki Eþíópu er að bæta lífsskilyrði fólks sem býr við
sára fátækt. Það gerum við með því að:
Tryggja aðgengi að hreinu vatni
Þegar brunnur er kominn við þorpið þurfa íbúarnir
ekki lengur að deila vatnsbólum með búfénaði. Það
kemur aftur í veg fyrir sjúkdóma af völdum óheilnæms
drykkjarvatns. Fólk við góða heilsu hefur þrek til
vinnu og sjálfshjálpar. Stúlkur sem áður þurftu að
ganga eftir vatni um langan veg fá tíma til að ganga í
skóla.
Efla völd og áhrif kvenna
Múmína er 75 ára gömul ekkja sem fékk örlán, 18.000
krónur, frá Hjálparstarfinu árið 2007. Fyrir þann tíma
var hún mjög fátæk og lifði af því að safna spreki og
selja sem eldivið. Nú rekur hún verslun þar sem hún
selur m.a. sykur, hrísgrjón og símkort. Hún stundar
einnig nautgriparækt og á geitur. Örlánið hefur því
margborgað sig og Múmína hefur fyrir löngu greitt
það til baka. Örlán og fræðsla um möguleika á at
vinnuskapandi tækifærum er einmitt leið Hjálpar
starfsins að því markmiði að efla völd og áhrif kvenna
á svæðinu, samfélaginu öllu til farsældar.
Tryggja fæðuöryggi og framfærslu
Nýjar tegundir og bættar ræktunaraðferðir leiða til
betri uppskeru og með þjálfun dýraliða fá bændur
betri þjónustu og heilsufar búfjár verður betra. Ein
stæðar mæður sem eru í viðkvæmri stöðu í samfé
laginu fá meðal annars geitur, hænur og uxa til að
hjálpa til við jarðrækt, allt til að auka fæðuval fjöl
skyldunnar.
Vatn er lífsvon
Þegar brunnur er kominn við þorpið þurfa íbúarnir
ekki lengur að deila vatnsbólum með búfénaði.
Múmína hefur fyrir löngu greitt örlánið sitt til baka. Nú
rekur hún verslun og stundar búfjárrækt.
Nýjar tegundir matjurta, þjálfun í jarðrækt, að fá búfé til
umráða ásamt markvissri þjálfun í umönnun þess eykur
fæðuval fjölskyldunnar.
Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir
prédikar. Dr. Sigurður Árni Þórðarson og
sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjóna fyrir
altari ásamt messuþjónum og fulltrúum
Hjálparstarfs kirkjunnar.
Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn
Harðar Áskelssonar.
Organisti: Björn Steinar Sólberg.
Gjöfum til Hjálparstarfs kirkunnar veitt móttaka.
Hátíðarmessa í Hallgrímskirkju
fyrsta sunnudag í aðventu, 27. nóvember kl. 11:00.
Margt smátt ... – 5
2
6
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
9
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
7
2
-1
0
0
0
1
B
7
2
-0
E
C
4
1
B
7
2
-0
D
8
8
1
B
7
2
-0
C
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
4
4
s
_
2
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K