Fréttablaðið - 26.11.2016, Side 103

Fréttablaðið - 26.11.2016, Side 103
Neyðin rekur unglingana út í vændi, glæpi og fíkniefnaneyslu Nýtt verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar með börnum og unglingum í fátækrahverfum Kampala, höfuðborgar Úganda: Hvergi er fátækt jafn bersýnileg og í skítugum óskipu- lögðum fátækrahverfum í stórborg eins og Kampala og samt er ljótasti hluti hennar ósýnilegur: Unga fólk- ið sem ánetjast fíkniefnum, vændi og glæpastarfsemi. Í Úganda eru 77% íbúa yngri en 30 ára. Atvinnuleysi meðal ungs fólks er mikið eða yfir 60% og það er meira meðal stúlkna en pilta. Í höfuðborg Úganda búa hátt í 1,7 milljón íbúa. Paul Onyait er starfsmaður Lútherska heimssambandsins þar. Hann segir að líkast til sé unga fólkið í fátækrahverfunum verst staddi þjóðfélags­ hópurinn í öllu landinu. Hann segir ung mennin upp til hópa ómenntuð. Flest hafi þau sjálfsagt reynt fyrir sér í skóla annað hvort í Kampala eða í sveitaþorpum en að í borginni sé enga atvinnu að hafa nema fyrir þá sem kunni eitthvað fyrir sér. Þeir sem það geri geti séð fyrir sér með því að bjóða þjónustu. Komi ungmennin í fá­ tækrahverfin án nokkurrar menntunnar séu þau ákaflega varnarlaus og auðveld bráð fyrir þá sem vilja nýta sér bágindi þeirra. Þau ánetjist auðveldlega fíkniefnum, vændi eða glæpum. Unglingar nir eru þannig útsettir fyrir misnotkun af ýmsu tagi. Margir koma til höfuðborgarinnar úr sveitunum með miklar væntingar en veruleikinn er allt annar og verri og ungmennin í borginni miklu berskjaldaðri en ung­ menni í sveitaþorpum. Í janúar 2017 fer Hjálparstarf kirkjunnar af stað með verkefni í þágu 1500 ungmenna í slömmum Kampala. Umsjón verkefnisins verður í höndum Lútherska heims­ sambandsins í Úganda og samtakanna Ugandan Youth Héraðsskólinn er opinn allan ársins hring. Hjá okkur kemstu í veitingar og gistingu á góðu verði. Við sjáum um ráðstefnur, vinnufundi og veislur í skemmtilegu umhverfi gamla skólans á Laugarvatni. Verið ávallt velkomin Ást og friður Verkefnið Í hnotskurn Stuðningur við 1500 unglinga á aldrinum 13–24 ára í fátækrahverfum Kampala, höfuðborg Úganda Markmið 1: Að unglingarnir öðlist aukna verk­ kunnáttu og geti nýtt sér hana til að sjá sér farborða Markmið 2: Að unglingarnir séu upplýstir um kynheilbrigði og rétt sinn til heilbrigðisþjónustu. 8 – Margt smátt ... Kærleiksverkin breyta heiminum Vilt þú bætast í hóp okkar frábæru sjálfboðaliða? Mjöll Þórarinsdóttir, Erla Adolfsdóttir, Dúfa Einars­ dóttir, Elsa Sveinsdóttir, Bergþóra Njálsdóttir og Rann­ veig Sigurðardóttir eru í hópi öflugra sjálfboðaliða sem leggja Hjálparstarfinu lið í viku hverri með því að flokka föt, brjóta saman og raða í hillur ásamt því að aðstoða þá sem koma til að fá notaðan fatnað hjá stofnuninni. Sjálfboðaliðar sjá einnig um skráningu gagna og frá október og fram yfir áramót taka þeir á móti söfnunar­ baukum eftir fjáröflun fermingarbarna fyrir vatnsverk­ efnum Hjálparstarfsins, raða þeim í númeraröð og ganga frá. Stuðningur sjálfboðaliða er ómetanlegt framlag til Hjálparstarfsins. Hefur þú áhuga á að bætast í hópinn? Hafðu þá sam­ band við Atla Hafliðason í síma 528 4407 eða skrifaðu tölvupóst til atli@help.is. „Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra“ (Matt.7:12) segir Jesús í Fjallræðunni. Stúlkan, sem getur nú sótt skóla af því að búið er að grafa fyrir brunni í þorpinu svo fyrir henni liggi ekki margra klukkustunda ferðalag til þess að ná í vatn, skiptir máli. Drengurinn, sem veit að hann fær mat í kvöld og hvar hann sefur, skiptir máli. Hjálparstarf kirkjunnar á Íslandi í samstarfi við alþjóð­ legt hjálparstarf kirkna stendur fyrir faglegu hjálpar­ starfi þar sem leitast er við að styðja og reisa fólk upp sem þarfnast aðstoðar og hjálpa þeim að leita leiða til þess að lifa með reisn og standa á eigin fótum bæði hér­ lendis og erlendis. Í sameiginlegri helgistund Lútherska heimssambands­ ins og Páfagarðs í Lundi í október síðastliðnum steig biskupinn frá Aleppo í Sýrlandi fram og færði mörg þús­ und manns friðarkveðju. Þegar einstaklingur, sem býr við einhverjar þær verstu aðstæður ofbeldis, ógna og stríðs sem fyrirfinnast í heiminum, færir fólki frá öllum heimsins hornum slíka friðarkveðju minnir það okkur öll á að það er svo sannarlega von í heiminum. Hlutverk okkar er að gefast ekki upp og missa ekki sjónar á því að hver einasti einstaklingur sem við getum komið til aðstoðar skiptir máli. Mannskilningur kristinnar trúar felur í sér að standa beri vörð um réttindi fólks hvar sem það er statt og í öllum aðstæðum, sama hverjar þær eru. Boðskapur jól­ anna minnir okkur á fæðingu frelsarans og líka það kærleiksverk þegar gistihúsaeigandinn leyfði unga parinu að gista í fjárhúsinu sínu. Ekki grunaði hann að þar myndi frelsari heimsins fæðast. „Sannarlega segi ég yður: Allt sem þér gerðuð einum mínum minnstu bræðrum, það hafið þér gert mér.“ Magnea Sverrisdóttir, djákni, verkefnisstjóri biskupsstofu Hjálparstarf kirkjunnar veitir fólki í fjárhagslegri neyð á Íslandi efnislegan stuðning Meginmarkmið með stuðningi Hjálparstarfsins: ­ grunnþörfum fólks er mætt ­ fjárhagslegir erfiðleikar ógna ekki heilsu fólks ­ fjárhagslegir erfiðleikar takmarka ekki möguleika barna og unglinga til farsæls lífs Á árinu 2016: • fengu efnalitlar barnafjölskyldur um allt land sem og einstaklingar sem búa utan starfssvæða annarra hjálparsamtaka inneignarkort í matvöruverslunum • var efnalitlu fólk veitt aðstoð við lyfja­ og gler­ augnakaup í neyðartilvikum • fékk fólk notaðan fatnað hjá Hjálparstarfinu • fengu efnalitlir foreldrar stuðning til að kaupa skólafatnað á börn • fengu foreldrar grunnskólabarna inneignarkort í ritfangaverslunum í upphafi skólaárs • fengu efnalítil ungmenni styrk fyrir námsgögnum og fartölvur • fengu ungmenni styrk til að standa straum af hluta kostnaðar vegna náms í framhaldsskóla • fengu börn sem búa við kröpp kjör styrk til að stunda íþróttir og tónlistarnám • fá efnalitlar barnafjölskyldur aðstoð til að halda jól • fengu efnalitlar fjölskyldur stuðning vegna ferm­ ingar barns Development Link, UYDEL sem styðja við bakið á ungu fólki í þremur fátækrahverfum Kampala. Verkefnið nær til þriggja ára og nemur heildarkostnaður við það um 33 milljónum króna eða um 11 milljónum króna á ári. Utan­ ríkisráðuneytið hefur veitt Hjálpar starfinu styrk fyrir 80% af verkefniskostnaðinum, 8,8 milljónir á ári, alls 26,4 milljónir króna. Samtökin UYDEL hafa rúmlega tuttugu ára reynslu af því að vinna með ungu fólki í fátækrahverfum Kampala. Þau reka verkmenntamiðstöðvar þar sem unglingarnir geta valið sér ýmiskonar svið til að öðlast nægilega hæfni til að verða gjaldgeng á vinnumarkaði eins og hárgreiðslu, matreiðslu, rafvirkjun og fleira. Félags­ ráðgjafi sem starfar að verkefninu segir að í gegnum samtökin fái ungmennin starfsnemastöður sem oft leiði til atvinnutækifæra. Af þeim 1500 ungmennum sem koma til með að fá sér­ stakan stuðning í verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar verða stelpur 60% og strákar 40%. Unglingarnir geta valið sér ýmis svið til að öðlast nægilega hæfni til að verða gjaldgeng á vinnumarkaði eins og hárgreiðslu, matreiðslu, rafvirkjun og fleira. Í gegnum verknám fá þeir starfsnemastöður sem oft leiða til atvinnu- tækifæra. Disneymyndin Queen of Katwe, sem frumsýnd var í Bandaríkjunum í september síðastliðnum, segir frá skákdrottningunni Phionu Mutesi, ungri stúlku sem ólst upp í Katwe, fátækrarhverfi í Kampala, og reyndist búa yfir miklum skákhæfileikum. Margir vænta þess að vinsældir myndarinnar leiði til þess að fátækra hverfi stórborga fái meiri athygli og sett verði meira fjármagn í verkefni til að bæta lífskjör íbúanna. Margt smátt ... – 9 2 6 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 9 F B 1 4 4 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 7 2 -1 0 0 0 1 B 7 2 -0 E C 4 1 B 7 2 -0 D 8 8 1 B 7 2 -0 C 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 4 4 s _ 2 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.