Morgunblaðið - 31.12.2015, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
Kringlan Shopping Center
Kringlan 4 – 12
Reykjavik
MARC O’POLO STORE
Útsala
hefst 2. janúar kl. 10
30% afsláttur
Óskum landsmönnum
farsældar á nýju ári
og þökkum viðskiptin
á árinu sem er
að líða
Það er skiljanlegur saknaðar-tónn í orðum Jóns Magnús-
sonar fv. alþingismanns þegar
hann ræðir um undirbúning á
brennum fyrir ekki svo löngu:
Við krakk-arnir
lærðum mörg
nauðsynleg
handbrögð
við undirbún-
ing brenn-
unnar bæði
að hlaða með
réttum hætti, byggja frumstæð híf-
ingartæki, aga, samvinnu o.fl. o.fl.
Allt var það af hinu góða og ung-
dómurinn lærði handbrögð og út-
sjónarsemi sem hefur reynst mörg-
um ómetanlegt veganesti í lífinu.
Óneitanlega vorum við sem til-heyrðum ungdómnum í ná-
grenni Ægisíðunnar í Reykjavík
vestur á þeim tíma ánægð með það
þegar okkar brenna sló út einu
borgarbrennuna að stærð og var
sú stærsta í borginni.
Áratugum síðar sat ég í stjórníþróttafélags í síðasta þorpi
Reykjavíkur „Árbæjarhverfinu“ og
varð undrandi þegar formaðurinn
mæltist til þess að við stjórnar-
menn færum að ganga frá brennu
á svæði félagsins. Mér varð á orði
en krakkarnir. Nei, sagði formað-
urinn þeir koma ekki nálægt því
það er allt of hættulegt og þau
geta það ekki.
Nú enn nokkrum áratugum síð-ar er þetta líka fyrir bí.
Borgin sér um þetta. Borgarstarfs-
menn safna í brennur og ganga frá
þeim að öllu leyti frá upphafi til
þess að þær verða eldinum að bráð
og í þeim slokknar allt á kostnað
skattgreiðenda.
Æskileg þróun?“
Reglugerðir ráða
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 30.12., kl. 18.00
Reykjavík 1 snjóél
Bolungarvík 1 snjókoma
Akureyri 3 rigning
Nuuk -17 snjóél
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló 1 slydda
Kaupmannahöfn 2 léttskýjað
Stokkhólmur 1 heiðskírt
Helsinki 1 skýjað
Lúxemborg 5 þoka
Brussel 7 heiðskírt
Dublin 5 léttskýjað
Glasgow 7 skúrir
London 12 skúrir
París 8 heiðskírt
Amsterdam 7 heiðskírt
Hamborg 6 alskýjað
Berlín 1 heiðskírt
Vín 1 léttskýjað
Moskva -6 snjókoma
Algarve 17 skýjað
Madríd 10 skýjað
Barcelona 15 heiðskírt
Mallorca 16 heiðskírt
Róm 7 heiðskírt
Aþena 7 alskýjað
Winnipeg -12 snjókoma
Montreal -7 snjóél
New York 5 alskýjað
Chicago -1 alskýjað
Orlando 27 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
31. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:21 15:41
ÍSAFJÖRÐUR 12:05 15:07
SIGLUFJÖRÐUR 11:49 14:49
DJÚPIVOGUR 10:59 15:02
Nú eru fjórtán karlar hundrað ára
og eldri en þeir voru að meðaltali sjö
síðasta aldarfjórðunginn
Í árslok 2015 eru 38 Íslendingar á
lífi á aldrinum 100-106 ára, 14 karlar
og 24 konur. Karlarnir hafa aldrei
verið fleiri. Þeir voru að meðaltali
sjö síðasta aldarfjórðunginn, fæstir
fjórir en flestir tólf árið 2004. Hlut-
fall karla er nú 37% af heildarfjöld-
anum en það hefur verið milli 20 og
30% undanfarna áratugi.
Georg Breiðfjörð Ólafsson í
Stykkishólmi og Jensína Andr-
ésdóttir í Reykjavík eru elst, 106
ára. Í þriðja sæti er Guðrún Straum-
fjörð í Reykjavík, 104 ára. Síðan eru
fjórir Íslendingar 103 ára, Ingigerð-
ur Þórðardóttir á Selfossi, Jón
Hannesson í Kópavogi, Dóra Ólafs-
dóttir í Kópavogi og Sigríður Is-
aksen í Reykjavík.
Við upphaf ársins 2015 voru á lífi
tólf karlar og sextán konur sem
hefðu getað náð 100 ára aldri á
árinu. Nítján tókst það, 9 körlum og
10 konum. Aðeins einn af þessum
nítján lést á árinu. Tuttugu manns, 6
karlar og 14 konur, geta náð hundr-
að ára aldri á árinu 2016. Árgang-
arnir eftir 1916 eru sterkir og má því
búast við að á næstu árum fari fjöldi
hundrað ára og eldri yfir fimmtíu í
fyrsta sinn. Hagstofan hefur spáð
því að fjöldinn fari yfir 100 eftir
rúma tvo áratugi. jr@jr.is
Aldrei fleiri háaldraðir karlar
Jensína
Andrésdóttir
Georg Breiðfjörð
Ólafsson
Tveimur starfs-
mönnum íþrótta-
deildar 365 hefur
verið sagt upp
störfum. Þetta
staðfestir Sævar
Freyr Þráinsson,
forstjóri 365.
Sævar vildi ekki
gefa upp um
hvaða starfsmenn
er að ræða, en í
samtali við mbl.is á þriðjudag stað-
festi Valtýr Björn Valtýsson að hann
væri annar þeirra.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er hinn starfsmaðurinn,
sem sagt var upp, Óskar Hrafn Þor-
valdsson, yfirmaður íþróttadeildar
365. Ekki hefur náðst í Óskar Hrafn
og vildi Sævar Freyr í samtali við
mbl.is ekki staðfesta að um Óskar
Hrafn væri að ræða.
Spurður um tíðar mannabreyt-
ingar hjá 365 segir Sævar að breyt-
ingar hjá 365 séu ekki meiri en
gengur og gerist hjá öðrum fyrir-
tækjum. Áhugi fólks á fyrirtækinu
sé aftur á móti meiri og því séu
mannabreytingar 365 frekar í sviðs-
ljósinu.
Tveimur
sagt upp
hjá 365
Óskar Hrafn og
Valtýr Björn reknir
365 Tveimur var
sagt þar upp.