Morgunblaðið - 31.12.2015, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
Tækni í þína þágu
hitataekni.is
Bjóðum upp á fjölbreyttan
búnað svo sem loftræsingar,
hitakerfi, kælikerfi, rakakerfi
sem og stjórnbúnað
og stýringar.
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 - hitataekni@hitataekni.is
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hópur fjárfesta vill kaupa Perluna í
Reykjavík og opna þar lúxushótel og
spa á næsta áratug. Kostnaður við
framkvæmdirnar er áætlaður 6-7
milljarðar króna.
Þannig hefur
Orri Árnason,
arkitekt hjá
Zeppelin arki-
tektum, unnið að
því í rúmt ár að
kaupa Perluna,
ásamt fjárfestum,
eða þróa þessa
hugmynd sína í
samvinnu við
Reykjavíkurborg.
Undirtektir hafa verið litlar og þegar
borgin heimilaði eignasviði borg-
arinnar að auglýsa eftir náttúru-
gripasýningu í Perlunni ákvað hann
að opinbera tillöguna.
Eftir hugmyndum Kjarvals
Orri hefur gert drög að endur-
hönnun Perlunnar sem hann telur
auka notagildi hennar sem mann-
virkis, án þess þó að breyta verulega
ásýnd hennar, nær og fjær. Við
hönnunina er stuðst við upphaflegar
hugmyndir Jóhannesar Kjarvals list-
málara, sem síðar urðu Ingimundi
Sveinssyni arkitekt að innblæstri við
hönnun Perlunnar. Orri hefur kynnt
drögin fyrir Ingimundi arkitekt og
hafi þeir sammælst um að ef að yrði
myndu þeir vinna þau áfram í sam-
einingu. Annað komi ekki til greina.
Hugmyndin er í meginatriðum sú
að ofan á núverandi vatnstanka verði
byggð laug í hring utan um glerhvelf-
inguna og að utan á vatnstankana
verði byggðir nokkurs konar „her-
bergjatankar“. Útsýnispallur verður
færður til og leggur Orri ríka áherslu
á að aðgengi að honum verði áfram
ókeypis og öllum frjálst.
„Laugin er rúsínan í pylsuend-
anum, en raunar yrði frekar um að
ræða röð heitra potta í laug sem
hringaði glerhvelfinguna. Þessi
vatnagarður yrði skilgreindur sem
lúxusþjónusta og myndi verðlagn-
ingin taka mið af því. Á þessu stigi er
miðað við að búningsklefar yrðu á
sömu hæð og heitu laugarnar, eða á
sömu hæð og núverandi veitingahús
á 6. hæð. Það vekur athygli erlendis
að Reykjavíkurborg sé hituð upp
með heitu vatni. Hluti af því fer um
tankana í Öskjuhlíð. Perlan er því á
vissan hátt tákngervingur þessarar
hreinu orku. Gestir myndu finna þá
orku á eigin skinni. Við höfum ekki
áhyggjur af rokinu þarna uppi. Þvert
á móti yrði það einstök upplifun fyrir
ferðamenn að vera í t.d. brjáluðum
skafrenningi og í heitu vatni með út-
sýni yfir borgina.“
Þriggja hæða herbergjaálmur
Annars vegar hefur Orri teiknað
herbergjaálmur utan á vatnstankana
sex sem fylgja lögun þeirra. Þær
yrðu þriggja hæða og nokkru lægri
en núverandi tankar, svo gömlu
tankarnir myndu standa upp úr, en
það myndi lágmarka sjónræn áhrif
breytinganna. Í raun yrði nánast
ekkert átt við núverandi tanka.
Dagsbirtan myndi flæða niður með
gömlu tönkunum, niður á boga-
dregna gangana sem myndu liggja
að um 200 herbergjum á hótelinu.
„Fyrir framan hótelherbergin á
jarðhæð yrði útbúin tjörn sem yrði
umhverfis Perluna. Það skapar næði
fyrir gesti og gerir bygginguna
virðulegri. Hún stendur þá upp úr
vatninu. Ofan á nýju tönkunum, allan
hringinn, yrði útsýnispallur sem yrði
opinn almenningi. Nýi pallurinn væri
þar með fyrir neðan núverandi út-
sýnispall, en á móti kemur að hann
yrði mun skjólbetri.“
Við hönnun glugga í nýju tönk-
unum yrði tekið mið af þeirri hug-
mynd Kjarvals í ljóðabókinni Grjót
að reisa musteri á Öskjuhlíðinni með
spegilhellum „svo norðurljósin gætu
nálgast fætur mannanna“ og „átti að
skreyta þakið kristöllum, allavega
litum, og ljóskastari átti að vera efst
á mæninum sem lýsti út um alla
geima“. Átti húsið að „svara birtu
dagsins og táknum næturinnar“.
Skapar fallega næturlýsingu
Orri segir að með slíkri hönnun
glugga sé formið brotið upp og bygg-
ingin gerð léttari, auk þess sem það
gefi mikla möguleika á fallegri næt-
urlýsingu. Hann segir að venjuleg
gluggasetning yrði klunnaleg.
Orri segir hugmyndina enn vera á
frumstigi. Hann sjái fyrir sér að á
jarðhæð Perlunnar verði móttaka
fyrir hótelið, veitingastaðir og önnur
þjónusta, ásamt aðgengi að útsýnis-
pallinum. Allt innanrými, að með-
töldu kaffihúsi og veitingahúsi á
efstu hæðum, verði tekið í gegn.
Hann segir Perluna vera að drabbast
niður. Núverandi notkun á jarðhæð-
inni undir útsölumarkaði og annað
þess háttar sæmi ekki byggingu sem
án nokkurs vafa sé eitt af helstu
kennileitum Reykjavíkur.
„Það þarf því fjársterka aðila til að
koma að málum. Mér sýnist ekki
stefna í það miðað við stefnu borg-
arinnar. Án fjársterkra aðila verður
uppbygging í Perlunni hvorki fugl né
fiskur,“ segir Orri.
Hann segir það vera trúnaðarmál
hvaða fjárfestar vilji kaupa Perluna.
Þegar Orkuveita Reykjavíkur hugð-
ist selja Perluna á sínum tíma lagði
hann fram tillögu ásamt öðrum hópi
fjárfesta, en ekkert varð af sölu í það
skiptið, enda hafi „engin mynd verið
á söluferlinu“. Síðan hefur tillagan
tekið algjörum stakkaskiptum.
Svo fór að 2013 seldi Orkuveitan
Reykjavíkurborg Perluna fyrir 950
milljónir. Var svo gerður samningur
við ríkið um leigu á Perlunni til 15
ára fyrir 80 milljónir á ári. Um það
leyti lýsti Jón Gnarr, þáverandi
borgarstjóri, yfir stuðningi við hug-
myndir um að opna náttúruminja-
safn í Perlunni. Af því hefur ekki orð-
ið en m.a. er deilt um kostnaðinn.
Það gerðist svo í fyrravor að Sögu-
safnið flutti úr Perlunni í nýtt hús-
næði að Grandagarði 2.
Áhersla á erlenda aðkomu
Orri segir þá Ingimund sammála
um að leita til erlendra hótelkeðja
um opnun lúxushótelsins.
„Ingimundur lagði á það áherslu
að erlend hótelkeðja kæmi að mál-
um. Hann var á því að Íslendingar
myndu ekki hugsa nógu stórt fyrir
svona verkefni. Það er rétt en gæti
samt að vera að breytast. Við erum
sem þjóð farin að hugsa öðruvísi en
þegar Perlan var opnuð. Bæði hefur
ferðaþjónustan orðið að stórri at-
vinnugrein á Íslandi og við sem þjóð
farið að reisa dýrari og glæsilegri
byggingar,“ segir Orri.
Ekki náðist í Dag B. Eggertsson
borgarstjóra vegna málsins.
Tölvumynd/Zeppelin arkitektar
Tillaga að nýju útliti Svonefndir „herbergjatankar“ yrðu byggðir utan um núverandi tanka.
Vilja opna hótel í Perlunni
Hópur fjárfesta hefur rætt við Reykjavíkurborg um að kaupa Perluna með endurbyggingu í huga
Arkitekt segir hönnunina innblásna af upphaflegum hugmyndum Jóhannesar Kjarvals listmálara
Morgunblaðið/Kristinn
Núverandi útlit Perlan var vígð 21.6. 1991. Kostnaður við bygginguna var 3,5 milljarðar á núvirði.
Tölvumynd/Zeppelin arkitektar
Drög Hér má sjá staðsetningu útsýnispalls, heitra botta og hótelherbergja.
Tölvumynd/Zeppelin arkitektar
Nýr útsýnispallur Hér má sjá hvernig viðbyggingin er utan við tankana.
Orri Árnason
Tölvumynd/Zeppelin arkitekar
Vetrarstemning Á veturna væri hægt að skoða norðurljósin úr pottunum.