Morgunblaðið - 31.12.2015, Page 43
FRÉTTIR 43Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
PI
PA
R\
TB
W
A
-S
ÍA
1
5
2
7
4
3
www.kadeco.is
Fjöldi annarra eigna er til sölu eða leigu á Ásbrú.
Ellefu 115 m2 íbúðir. Allar í útleigu.
Sjö íbúðir 103–150m2 sem þarfnast endurbóta
og frágangs.
Skrifstofuhúsnæði í tveimur álmum. Góð staðsetning
í nálægð við Háaleitishlað Keflavíkurflugvallar.
Átta 160 m2 raðhúsaíbúðir á góðum stað.
Stálgrindarhúsmeð tveimur iðnaðarhurðum í
sitthvorum enda.
Fyrrum viðhaldsverkstæði. Í byggingunni eru
klefar og búnaður til bílasprautunar.
Byggingin er með 24 einstaklingsíbúðum. Hver íbúð
er tæplega 54 fermetrar og samanstendur af stofu,
svefnherbergi og baðherbergi.
Átta íbúðir 103–110m2 sem þarfnast endurbóta
og frágangs.
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar | Sími 425 2100 | www.kadeco.is
REYKJANESBÆR
ÁSBRÚ
REYKJAVÍK
Við mat á tilboðum verður einkum horft til kaupverðs. Þó er áskilinn réttur til að meta hugmyndir bjóðenda um nýtingu og ráðstöfun
eignanna, t.d. hvaða áhrif sú nýting hefur á eftirspurn eftir öðrum eignum á svæðinu og áhrif tiltekinnar nýtingar á nærsamfélagið.
Ekki er um útboð á eignunum að ræða heldur sölu. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar áskilur sér rétt til að taka því tilboði sem talið er
hagstæðast, m.a. út frá ofangreindum þáttum eða hafna öllum.
BOGATRÖÐ • 1 • 2 • 4 • 10 • 10A •13 • 15 • 17 • 23 • 25 • 31 • 33 BORGARBRAUT • 953 • 960-963 • 962 BREIÐBRAUT • 643-647 • 643R •668-669 • 668R •670 • 671-679 • 671R •672 • 673 • 674 • 675
FERJUTRÖÐ • 9 FLUGVALLARBRAUT • 701 • 710 • 732 - 736 • 749• 740 • 752 • 755• 770• 771• 773• 778• 790 • 937 • 941 GRÆNÁSBRAUT • 501 • 506 • 602-614 • 602R •603-607603R604-606 • 604R
619 •700 • 920 • 999 HEIÐARTRÖÐ 517 KEILISBRAUT • 745 • 747-748 • 747R •749 • 750-751 • 750R •753• 755 • 762 • 770-778 • 770R •771 • 773 KLETTATRÖÐ • 19A LINDARBRAUT600 •624 • 635
636 •634R •639 SKÓGARBRAUT • 914• 915• 916-918• 917• 919•923•914•916-918•916R•921• 922• 923• 924• 925• 932•946•945 SUÐURBRAUT • 758•759 VALHALLARBRAUT • 738•743•744
756-757•756R•763-764•763R
Viltu fjárfesta á vaxtarsvæði?
Fjöldi fasteigna af öllum stærðum og gerðum er til sölu eða leigu á Ásbrú. Meðal annars mikið af nýuppgerðu íbúðarhúsnæði
og spennandi iðnaðarhúsnæði. Þá er einnig mikið landrými á svæðinu sem er óráðstafað undir byggingar eða önnur mannvirki.
Margar eignanna eru nú þegar í útleigu en allar eru þær áfram til sölu. Þú getur skoðað þær nánar á kadeco.is
BOGATRÖÐ 23 2114
BREIÐBRAUT 672
GRÆNÁSBRAUT 605
BREIÐBRAUT 675
FLUGVALLARBRAUT 740
BREIÐBRAUT 671 STÆRÐ: 1360 M2
STÆRÐ: 1700 M2
STÆRÐ: 1193 M2
STÆRÐ: 370 M2 STÆRÐ: 1428 M2 STÆRÐ: 110 M2-150 M2
STÆRÐ: 1500 M2 STÆRÐ: 1014 M2
LINDARBRAUT 635
BOGATRÖÐ 1
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Hjalti Jón Sveinsson, fráfarandi
skólameistari VMA, brautskráði
nemendur í síðasta skipti frá skól-
anum við hátíðlega athöfn í Hofi rétt
fyrir jól en hann tekur um áramót
við stöðu skólameistara Kvennaskól-
ans í Reykjavík.
Hjalti Jón gerði fjárhag fram-
haldsskólanna að umtalsefni í ræðu
sinni við brautskráninguna. Sagði
hann fagnaðarefni að framhalds-
skólakennarar hefðu loks fengið um-
talsverða launahækkun á síðustu
mánuðum og leiðréttingu miðað við
aðra hópa innan BHM. Engu að síð-
ur séu skólarnir slyppir og snauðir
og fái ekki það rekstrarfé sem þeir
þurfi á að halda til þess að annast
grunnþjónustu.
Skólameistari sagði mjög mikla
hagræðingu hafa farið fram innan
framhaldsskólakerfisins en því mið-
ur hafi hagur þeirra ekki vænkast í
samræmi við upprisu þjóðlífsins síð-
ustu misseri. Skólarnir fái ekki
nægileg framlög til þess að greiða
kennurum þau laun sem þeir hafa
samið um við ríkið og muni þar 12-15
prósentum. Þá sé heldur ekki tekið
tillit til samningsbundins þáttar í
kjarasamningi sem geri ráð fyrir
aldurstengdum kennsluafslætti, en
sá hópur kennara sem njóti slíkra
kjara sé orðinn býsna stór í mörgum
skólanna. Í VMA nemi þessi þáttur
7-8 stöðugildum – eða um 60 millj-
ónum króna á ári. Af þessum sökum
þurfi skólarnir að taka fjármuni úr
öðrum rekstri til þess að standa í
skilum við kennara sína.
„Við skólameistarar förum ekki
fram á annað en að skólarnir fái
greitt í samræmi við kjarasamninga,
sem fjármálaráðuneytið sjálft hefur
gert. Svo er okkur borið á brýn, m.a.
af formanni fjárlaganefndar Alþing-
is, að við rekum ekki skólana nægi-
lega vel og þess vegna séu þeir nú
reknir með halla,“ sagði Hjalti Jón.
„Sem formaður Skólameistara-
félags Íslands fór ég ásamt með-
stjórnarfólki mínu á fund fjárlaga-
nefndar um miðjan nóvember til
þess að vekja athygli á rekstrar-
vanda skólanna og ástæðum hans.
Við fengum þar sömu trakteringar
og stjórnendur Landspítalans sem
fjallað var um í fjölmiðlum fyrir
stuttu. Við getum í raun ekki setið
undir þessu lengur; en spurningin er
sú hvað sé til ráða þegar viðhorf
kjörinna fulltrúa á Alþingi eru svo
neikvæð sem raun ber vitni og lítill
áhugi á því að framhaldsskólar
landsins geti sinnt sjálfsagðri grunn-
þjónustu. Dragið bara úr kennslunni
og athugið hvort það dugi ekki til
þess að rétta reksturinn við, er sagt í
öðru orðinu en í hinu að brýnt sé að
nemendur fái þá kennslu og viður-
gjörning sem aðalnámskrá mennta-
og menningarmálaráðuneytisins
gerir ráð fyrir. – Slík er okkar
rekstrarparadís,“ sagði Hjalti Jón
Sveinsson.
Menningarfélag Akureyrar
(MAk) styrkti Aflið um 100 þúsund
krónur á dögunum. Aflið er samtök
gegn kynferðis- og heimilisofbeldi á
Norðurlandi og styrkurinn var hluti
tekna af miðasölu á tónleikana
Kristjana og konur, sem haldnir
voru í vetur.
Tryggvi Snær Hlinason, körfu-
boltarisinn ungi úr Bárðardal, var í
gærkvöldi útnefndur íþróttamaður
Þórs og Roxanne Kimberly Barker
íþróttakona ársins en hún stóð í
marki fótboltaliðs Þórs/KA í sumar.
Árleg samkoma, Við áramót, var í
gær í félagsheimilinu Hamri og þar
með lauk formlega hátíðarhöldum
vegna 100 ára afmælis félagsins sem
var 6. júní en minnst hefur verið með
ýmsum viðburðum allt árið. Þór varð
í gær Fyrirmyndarfélag ÍSÍ.
Tryggvi Snær fékk fleiri stig en
Roxy í kjöri Þórsara og verður því
fulltrúi félagsins í kjöri um íþrótta-
mann Akureyrar í janúar.
Áramótabrenna verður að
vanda við Réttarhvamm í kvöld, auk
þess sem boðið verður upp á flug-
eldasýningu. Kveikt verður í brenn-
unni kl. 20.30 en flugeldasýningin
hefst kl. 21.00. Það eru Norðurorka
og Framkvæmdadeild Akureyrar-
bæjar sem standa fyrir þessari dag-
skrá í samstarfi við Súlur, skv. rétt á
heimasíðu bæjarins.
„Getum ekki setið undir þessu lengur“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Styrkur Anna Guðný Egilsdóttir, ritari í stjórn Aflsins, Ingibjörg Þórð-
ardóttir starfsmaður og Sigurður Kristinsson, formaður stjórnar MAk.
Best Roxanne Kimberley Barker,
markmaður Þórs/KA í fótbolta.
Bestur Körfuboltamaðurinn
Tryggvi Snær Hlinason í Þór.