Morgunblaðið - 31.12.2015, Page 46
46 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
Brátt fer daginn að lengja á ný og við fögnum birtunni sem fylgir hækkandi sól. Við hjá
RARIK viljum þakka fyrir viðskiptin á árinu sem nú er senn liðið og sendum bestu óskir
um gleðilega hátíð og heillarríkt komandi ár.
www.rarik.is
Getur þú hugsað þér
daglegt líf án rafmagns?
Rostungskúnni Pico er ýmislegt til lista lagt en hún býr í Hakkeijima-
sjávardýraskemmtigarðinum í Yokohama, skammt frá Tókýó. Hér malar
hún hrísgrjón í kvörn, þau verða síðan notuð til að baka köku vegna ný-
árshátíðar í Japan. Hátíðin í garðinum stendur til 11. janúar.
AFP
Pico undirbýr baksturinn
Japanar kunna betur en aðrir að temja rostunga
Ný könnun
Rasmussen-
stofnunarinnar í
Bandaríkjunum
gefur til kynna að
nær enginn mun-
ur sé nú á fylgi
þeirra Hillary
Clinton, líklegs
forsetaefnis
demókrata, og
Donalds Trumps
sem er langefstur meðal repúblik-
ana. Clinton er með 37% stuðning á
landsvísu, Trump 36%.
Niðurstöðurnar er nær óbreyttar
frá könnun Rasmussen í október.
Spurt er um margt. Athygli vekur að
umdeildar tillögur Trumps um að
múslímum verði með ákveðnum
undantekningum bannað að koma til
landsins njóta stuðnings meirihluta í
báðum flokkum.
Fram kemur að Clinton hefur
nokkru meira fylgi meðal kvenna en
Trump er sterkari hjá körlum og
Clinton hefur mun meira fylgi meðal
fólks undir 40 ára aldri en Trump.
Forsetakosningarnar verða í nóv-
ember en fyrstu forkosningar repú-
blikana verða í Iowa og New
Hampshire í byrjun febrúar. Kann-
anir benda til að Ted Cruz muni
sigra í Iowa og forysta Trumps í
New Hampshire virðist ótraust.
Bent er á að tapi hann í báðum gæti
hann misst flugið hratt. kjon@mbl.is
Trump
og Clin-
ton jöfn
Bæði með rösklega
þriðjungs fylgi
Donald
Trump
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Íraska stjórnin þykir hafa unnið
mikinn sigur með því að ná aftur á
sitt vald borginni Ramadi sem er að-
eins um 110 kílómetra vestur af höf-
uðborginni Bagdad. Forsætisráð-
herrann heitir því að fljótlega verði
Mósul, næststærsta borg Íraks,
einnig frelsuð úr höndum Ríkis ísl-
ams, IS. En fram kemur í vefritinu
Daily Beast að sigurinn í Ramadi
hafi aðallega unnist vegna mjög um-
fangsmikilla loftárása Bandaríkja-
manna með drónum og þotum.
Íraksher hafi aðeins misst um 50
menn í átökunum.
Ritið hefur eftir ónafngreindum
heimildarmönnum í bandaríska
varnarmálaráðuneytinu að tekið hafi
langan tíma, fimm mánuði, fyrir úr-
valssveitir Íraka, sem Bandaríkja-
menn þjálfuðu, að vinna borgina. En
þær hafi þurft að fá aðstoð Banda-
ríkjamanna úr lofti.
Um 60 þúsund manns eru í íraska
hernum, auk þess eru um 120 þús-
und í meira en 40 vígahópum sem
skipaðir eru sjía-múslímum og njóta
stuðnings Írana. Flestir þeirra
styðja stjórnina í Bagdad enda ráða
sjítar þar öllu. En vígahópunum var
haldið frá átökunum í Ramadi af ótta
við viðbrögð borgarbúa sem eru að
meirihluta súnni-múslímar.
Mikil tortryggni ríkir meðal
súnní-Íraka gagnvart ráðamönnum í
Bagdad og yfirmönnum hersins. Ra-
madi, þar sem upphaflega bjuggu
um 200 þúsund manns, er að veru-
legu leyti í rúst af völdum loftárás-
anna. Ekki er enn vitað hve margir
óbreyttir borgarar féllu. Fátt bendir
til að Íraksher geti tekið og haldið
fleiri borgum án þess að fá sams
konar aðstoð Bandaríkjamanna og í
Ramadi sem gæti gert vandann
óleysanlegan.
„Erfiðasti hlutinn er eftir í Ra-
madi,“ segir hernaðarsérfræðingur.
„Hvernig ætla menn að fara að því
að halda henni ef þeir hafa ekki tek-
ist á við pólitísku og efnahagslegu
vandamálin auk mannúðarmál-
anna?“
Efasemdir um
getu Írakshers
Loftárásir Bandaríkjamanna gerðu
sigurinn á IS mögulegan í Ramadi
AFP
Ánægja Sigri hrósandi liðsmaður
úrvalssveita Írakshers í Ramadi.