Morgunblaðið - 31.12.2015, Page 50
50 STJÓRNMÁL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
G
era má árið 2015 upp og mæla þann árangur sem
náðst hefur með ýmsum hætti. Efnahagslega
stöndum við vel, á mælikvarða félagslegra fram-
fara skipum við okkur í fjórða sætið meðal þjóða
heimsins og við erum í efsta sæti lista Al-
þjóðaefnahagsráðsins yfir jafna stöðu karla og kvenna.
Í lífskjararannsókn hagstofunnar sem birt var í sumar kom
í ljós að tekjudreifing hefur aldrei verið jafnari og aldrei lægra
hlutfall verið undir lágtekjumörkum. Lögð hefur verið áhersla
á að lækka skatta á einstaklinga, almenn vörugjöld voru af-
numin um síðustu áramót, um þessi hverfa tollar á föt og skó
og að ári allir aðrir tollar en á tiltekin matvæli.
Ráðstöfunartekjur landsmanna hafa þannig aukist og eru
enn að aukast. Kaupmáttur hefur aldrei verið meiri, hvort sem
um er að ræða launafólk eða lífeyrisþega og atvinnuleysi er
hverfandi. Skuldir heimilanna fara stöðugt lækkandi og eignir
þeirra aukast. Við höfum búið við mikilvægan stöðugleika í
efnahagslífinu á þessu kjörtímabili, sem birtist meðal annars í
því að verðbólga hefur nú samfleytt verið undir viðmið-
unarmörkum Seðlabanka Íslands í tæp tvö ár.
Nýr kafli á vinnumarkaði
Á árinu höfum við glímt við erfið verkföll og kjaradeilur þar
sem knúin var fram niðurstaða sem tíminn verður að leiða í
ljós hvort innistæða verður fyrir í hagkerfi okkar. Fyrir liggur
að laun hafa hækkað langt umfram framleiðniaukningu. Það
verður því krefjandi verkefni að verja þá kaupmáttaraukningu
sem nú mælist.
Ríkjandi fyrirkomulag við kjarasamninga, með ítrekuðu
höfrungahlaupi, skilyrðingum og forsenduákvæðum um að
enginn annar fái betri niðurstöðu síðar og ósamrýmanlegri
kröfugerð einstakra aðila hefur fyrir löngu gengið sér til húð-
ar.
Samkomulag sem SALEK, samstarfsnefnd um launaupplýs-
ingar og efnahagsforsendur kjarasamninga, undirritaði í haust
vekur vonir um að breyta megi og bæta vinnubrögð við gerð
kjarasamninga og hefja nýjan kafla á íslenskum vinnumark-
aði.
Við höfum það í hendi okkar að gera betur. Það er þol-
inmæðisverk að breyta rótgrónum vinnuaðferðum. Það mun
ekki gerast án framlags frá öllum þátttakendum og mun kosta
málamiðlanir og eflaust langar fundasetur en til mikils er að
vinna fyrir aukinn stöðugleika og þar með styrkari grunn að
frekari sókn í efnahagsmálum.
Breytt heimsmynd
Á alþjóðlega vísu lítur út fyrir að árið 2015 muni marka spor
í heimssöguna. Stríð, flóttamannastraumur, hryðjuverkaárásir
og -ógn hefur breytt heimsmyndinni og sett mark sitt á dag-
legt líf fjölda fólks og verkefni stjórnvalda og mannúðarsam-
taka víða um heim.
Í haust ákvað ríkisstjórn Íslands að veita tvo milljarða
króna til að bregðast við breyttum aðstæðum, stórauka fram-
lög til alþjóðastofnana, styrkja stofnanir okkar og undirbúa
það að taka á móti flóttamönnum til landsins. Nauðsynlegt var
að bregðast skjótt við stórauknu álagi á stjórnkerfið vegna
mikillar fjölgunar umsókna. Miklu skiptir að raunsæi, festa og
skýrleiki sé í meðferð þessara mála en ekki síður að vel sé tek-
ið á móti flóttafólki en sú móttaka fer ekki eingöngu fram á
vegum stjórnvalda heldur samfélagsins alls. Það er á ábyrgð
okkar allra að bjóða þessa nýju borgara landsins velkomna.
Nútímalegri löggjöf
Fyrir þessa nýju íbúa er Ísland land tækifæranna. Þetta
land býr yfir mörgum eftirsóknarverðum kostum en vissulega
getum við gert enn betur til að taka á móti fólki sem hingað
kemur í leit að starfi og heimili, rétt eins og svo margir Ís-
lendingar freista gæfunnar á erlendri grundu til lengri eða
skemmri tíma. Árið 2014 voru 12% mannfjöldans á Íslandi
fædd erlendis, fleiri en nokkru sinni áður.
Stefna ber að nútímalegri og mildari löggjöf um atvinnuleyfi
og dvalarleyfi og nýta þau tækifæri sem til staðar eru til að
laða til landsins erlenda sérfræðinga og frumkvöðla. Það er til
að mynda einn þáttur í því að styrkja rekstrargrundvöll
sprota- og nýsköpunarfyrirtækja, en vöxtur fyrirtækja í þekk-
ingargeiranum verður sífellt mikilvægari hlekkur í aukinni
verðmætasköpun samfélagsins.
Útgjöld vegna bankanna endurheimt
Lengi hefur legið fyrir að stærsta einstaka efnahagsmál
okkar væri afnám hafta. Stór áfangi náðist á árinu 2015 með
því að slitabú fallinna fjármálafyrirtækja gerðu nauðasamn-
inga og gengust undir stöðugleikaskilyrði stjórnvalda. Und-
irbúningur stendur yfir að næstu aðgerðum og er stefnt að af-
námi fjármagnshafta á næsta ári. Áhrifin af
stöðugleikaframlögunum eru verulega jákvæð fyrir ríkissjóð
en samkvæmt fjárlögum er gert ráð fyrir um 350 milljarða af-
gangi á rekstrargrunni á næsta ári.
Allt bendir til að bein útgjöld ríkissjóðs vegna falls bank-
anna og endurreisnar þeirra verði að fullu endurheimt, þar
með talið tap Seðlabanka Íslands sem kallaði á styrkingu eig-
infjár hans.
Einstakt tækifæri gefst með þessu til að létta mikilli skulda-
byrði ríkisins á næstu árum og vandfundin dæmi um jafn
kraftmikinn viðsnúning og hraða skuldalækkun og stefnir í
hér á landi. Við getum nú sett raunhæf markmið um að rík-
issjóður beri engar hreinar skuldir innan 10 ára.
Langtímamarkmið í heilbrigðismálum
Það hefur tekið okkur tíma að vinna okkur upp úr þeim dal
sem árin eftir hrun voru. Þannig höfum við nú loks náð meiri
styrk í framlögum til heilbrigðismála en við höfðum fyrir
kreppuna og við ætlum okkur að gera enn betur í samstarfi
við helstu sérfræðinga okkar á sviði heilbrigðismála.
Af tíu stærstu málaflokkunum á fjárlögum 2016 skipa út-
gjöld vegna sjúkrahúsþjónustu, málefna aldraðra, örorku og
málefna fatlaðs fólks, hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta
og heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa sér í 2.-6. sæti, alls
hátt í 240 milljarðar króna eða um þriðjungur útgjalda rík-
isins. Þetta eru miklir fjármunir og brýnt að þeir nýtist sem
best þar sem þeirra er mest þörf.
Þótt ýmis verkefni séu aðkallandi í náinni framtíð tel ég afar
mikilvægt að við horfum til langs tíma og gerum okkur áætlun
til næstu áratuga um heilbrigðis- og almannatryggingamál Ís-
lendinga.
Við eigum að einblína á hvað hver og einn getur gert, en
ekki á takmarkanir hans, og endurskoða alla nálgun á skerð-
ingar greiðslna frá almannatryggingum vegna atvinnu. Þannig
tel ég skynsamlegt að taka upp samtal við fulltrúa vinnumark-
aðarins og lífeyrisþega um almennt átak til næstu ára til að
auka virkni lífeyrisþega á vinnumarkaði.
Þá tel ég skynsamlegt að setja okkur það markmið að draga
úr kostnaði vegna lífsstílssjúkdóma með forvörnum og virkni-
úrræðum. Þannig verði eftir tuttugu ár hlutfall forvarna af
heilbrigðiskostnaði vegna lífsstílssjúkdóma að minnsta kosti
20%.
Glæsilegir fulltrúar
Árið 2015 verður lengi í minnum haft hjá íþróttaáhuga-
mönnum á Íslandi. Árangur landsliða okkar, bæði karla og
kvenna, hefur verið ótrúlegur. Þótt við eigum sennilega heims-
met í mælingum miðað við höfðatölu verður ekki horft fram
hjá því að afrek okkar á íþróttasviðinu eru langt um fram það
sem ætlast má til af rúmlega 300.000 manna þjóð. Sama má
segja um afreksfólk á ýmsum sviðum menningarlífsins. Við er-
um stolt af okkar fólki og megum vera það. Landkynning er
ekki orðin tóm og þessir fulltrúar landsins bera hróður þess
víða og eiga þannig til að mynda sinn þátt í þeim uppgangi
ferðaþjónustunnar sem við höfum orðið vitni að síðustu ár.
Með von um gott gengi á öllum sviðum á næsta ári óska ég
landsmönnum árs og friðar.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Við áramót
Einstakt tækifæri gefst með þessu til að létta
mikilli skuldabyrði ríkisins á næstu árum og
vandfundin dæmi um jafn kraftmikil umskipti og
hraða skuldalækkun og stefnir í hér á landi. Við
getum nú sett raunhæf markmið um að rík-
issjóður beri engar hreinar skuldir innan 10 ára.