Morgunblaðið - 31.12.2015, Side 60
60 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
1.9 | Haukur Arnþórsson
Um málskotsréttinn
Til þess að ákvörðun í þjóð-
aratkvæðagreiðslu sé
skuldbindandi þarf ríkan
almannavilja og niður-
staðan má ekki byggjast á
óvinsældum ríkisstjórnar eða múgæs-
ingu
2.9 | Eðvarð Árnason
Ráðstjórn velferðarráðherra
Íslands
Hjarðmennska grípur Íslend-
inga nú varðandi flóttafólk.
Ber ekki fyrst að búa betur
að okkar minnstu íslensku
bræðrum og systrum?
3.9 | Vigdís Hauksdóttir
Prófessorinn Stefán
og sannleikurinn
Í raun er það eins og að full-
yrða að allir sem fá einhverja
leiðréttingu við álagningu
skatta séu til meðferðar
vegna hugsanlegra skatt-
svika.
4.9 | Friðrik Ingi Óskarsson
Hvert erum við að fara
í heilbrigðismálum?
Að fylgjast með starfsfólki
Landspítalans, hvernig það
leggur sig allt fram við störf
sín, er aðdáunarvert.
5.9 | Sigurður Ingólfsson
Að horfa á eftir ungu fólki úr
landi eða bjóða því framtíð hér?
Unga fólkið okkar greiðir
200-300 þúsund krónur á
mánuði í fjármagnskostnað
umfram það sem jafningjar
þess greiða í nágrannalönd-
unum.
7.9 | Jón Steinar Gunnlaugsson
Sjálfsafgreiðsla?
Það er vitaskuld þýðing-
armikið að þeir sem kunna
að hafa brotið af sér með
refsiverðum hætti í aðdrag-
anda bankahrunsins verði
látnir sæta ábyrgð fyrir.
8.9 | Illugi Gunnarsson
Alþjóðlegur dagur læsis
Árangur íslenskra nem-
enda var fyrir ofan með-
altal í fyrstu PISA-
könnuninni árið 2000 en
tólf árum síðar var hann
kominn niður fyrir meðaltal. Við þetta
verður ekki unað.
9.9 | Hrafn Ingimundarson
Fréttaflutningur Stöðvar 2 um
hreiðurrólur
Öll slys ber að taka alvarlega,
skoða, bæta úr hönnun ef
hægt er, en annars taka um-
rædda vöru af markaði, sýna
ábyrgð.
10.9 | Ingólfur S. Sveinsson
Eineltið og lúsin
Sá sem þetta skrifar hefur
haft ærinn starfa við að leið-
rétta skaðleg minningasöfn
frá eineltisárum í skólum.
Jafnvel hjá fullorðnum, mið-
aldra, jafnvel rosknu fólki.
11.9 | Pálmi Stefánsson
Vinir okkar, bakteríurnar
Örverur í og á okkur eru tíu
sinnum fleiri en frumur okk-
ar. Við eigum allt undir því
komið að bakteríuflóra okkar
sé í jafnvægi.
12.9 | Árni Páll Árnason
Aldraðir og öryrkjar eiga
líka að fá 300.000
Ef samfélagssátt næst um að
hækka lágmarkslaun vegna
þess að þau eru talin lægri en
góðu hófi gegnir, hlýtur sú
sátt líka að eiga ná til líf-
eyrisþega.
14.9 | Reynir Arngrímsson
Landspítalinn
arður og framleiðni
Að gera kröfur um meiri
framleiðni vekur upp spurn-
ingar um hvar eigi að koma
sjúklingum Landspítalans
fyrir ef þeim á að fjölga á
hverja tímaeiningu.
15.9 | Auður Guðjónsdóttir
Taugakerfið sem
þróunarmarkmið
Áætlað er að hátt í milljarður
manna í veröldinni líði vegna
ólags í taugakerfinu og engin
lækning er til.
16.9 | Helgi Hrafn Gunnarsson
Þjóðaratkvæðagreiðslu
samhliða forsetakosningum
Ef mönnum er alvara með að
breyta stjórnarskrá án þess
að rjúfa þing, þá hljóta þeir
að krefjast þjóðaratkvæða-
greiðslu samhliða forseta-
kosningum.
17.9 | Ögmundur Jónasson
Sérvalið siðgæði
Sérvalin meint siðgæðis-
stefna Íslands gagnvart
Úkraínu og Rússlandi, verður
ekki skýrð með öðru en fylgi-
spekt við ESB og NATO.
18.9 | Björn Bjarnason
Viðbúnaður eykst á
norðurvæng NATO
Forvitnilegt er að fylgjast
með hvernig áhugi á öryggi á
norðurslóðum vaknar að nýju
innan bandaríska stjórnkerf-
isins.
19.9 | Víglundur Þorsteinsson
Fúskað í fjármálaráðuneyti
Það fyrsta sem þú þarft að
gera er að opinbera öll gögn
um samninga við skilanefnd-
ir/slitastjórnir gömlu bank-
anna og hætta að halda hlífi-
skildi yfir verkum Steingríms.
21.9 | Áslaug María Friðriksdóttir
Ný velferðarsýn
Í dag er nauðsynlegt að fyrir
hendi sé sveigjanleg þjón-
usta, sem er veitt á for-
sendum notenda.
22.9 | Magnús Ægir Magnússon
RÚV og Gasa
Spurður hvort hann styddi
hryðjuverkaárásir á Ameríku
var svarið hryðjuverk er
slæmt vopn en svarið er já.
24.9 | Ragnar Aðalsteinsson
Mun Hæstiréttur aldrei ná
strætó?
Nú er staðan sú að þrír hafa
sótt um lausa dómarastöðu í
Hæstarétti, tveir karlar og
ein kona.
24.9 | Arnar Sigurðsson
Kári í forsjármóð
Talsverð nýlunda hlýtur því
að felast í því áliti að sjúk-
dóma megi lækna eða fyrir-
byggja með einni gerð af
verslunarrekstri umfram
aðra.
25.9 | „Friðrik Pálsson og
Njáll Trausti Friðbertsson“
Reiður borgarstjóri
Þegar að því
kemur að fyrsta
sjúkraflugvélin
getur ekki lent í
Reykjavík vegna
þess að búið er að loka neyðarbrautinni
getur Dagur vitanlega orðið sjálfum sér
reiður fyrir að hafa beitt sér fyrir lokun
hennar
26.9 | Guðrún Ágústsdóttir
Ung þjóð með öfluga
lífeyrissjóði og aldraðir vinna
lengur en annars staðar
Íslenska lífeyriskerfið er að styrkjast og
mun halda því áfram þegar
starfstengdu sjóðirnir ná full-
um þroska. Í árslok 2013
höfðu ellilífeyrisgreiðslur úr
lífeyrissjóðum náð rúmlega
62% af heildarellilífeyri á Íslandi.
28.9 | Gísli Holgersson
Garðabær eða Geldinganes
Smáhýsabyggð við sjávarsíð-
una með fegurð sólseturs og
fjallasýnar verður seint metin
til fjár.
29.9 | Runólfur Þórhallsson
Til lögreglumanna í
kjarabaráttu
Við megum ekki nema staðar
fyrr en við höfum fengið laun
sem samræmast ábyrgð og
álagi og starfsumhverfi sem
gerir okkur kleift að þjónusta
almenning.
30.9 | Anna Þrúður Þorkelsdóttir
Óhreinu börnin hennar Evu
Leiðarstefið er sjálfbærni en
því miður er árangurinn dep-
urð margra sem hafa hvorki
heilsu eða fjármagn til að
veita lit og lífi inn í gráa til-
veru sína.
1.10 | Lilja Rafney Magnúsdóttir
Samþjöppun í
mjólkurframleiðslu
Við höfum horft upp á
hvernig kvótakerfið í sjávar-
útvegi hefur farið með
byggðirnar. Ætlum við að
horfa upp á að það sama
gerist í sveitum landsins?
2.10 | Einar Benediktsson
Öryggis- og varnarmál
Mikilvægi landlegu Íslands
mun aukast vegna opnunar
nýrra siglingaleiða um
heimsskautssvæðið.
3.10 | Sigríður Guðmarsdóttir
Sjóður, skápur, afmæli
Skápurinn sem er Biblían
geymir hugarheim, ekki að-
eins Hebreanna heldur líka
hugarheim fólks frá liðnum
öldum sem hefur túlkað
þennan hugarheim og sótt í hann gull og
gimsteina.
5.10 | Halldór Gunnarsson
Gömul þjóð með ónýta
lífeyrissjóði
Gamla þjóðin er látin tví-
greiða skatt af greiðslu lífeyr-
issjóða í dag, sem jafnframt
er einnig skert á móti
greiðslu almannatrygginga.
6.10 | Jóna Björg Sætran
Hvað fæ ég í einkunn í vor?
Í dag þegar heill mánuður er
liðinn af skólaárinu ríkir mikil
óvissa um með hvaða hætti
námsmatið verður í grunn-
skólunum í vetur og vor.
7.10 | Friðrik Ingi Óskarsson
Heilbrigðiskerfið og pólitíkin
Mikið hefði það verið gott ef
alþingi léti nú eins og tvo
milljarða í heilbrigðismálin,
t.d. á landsbyggðinni.
8.10 | Sigríður Ásthildur Andersen
Grænu bílaskattarnir leiða til
mengunar og sóunar
En gróðurhúsalofttegundir
myndast víðar en í bílvélum
þótt stundum mætti ætla af
umræðunni og aðgerðum
stjórnvalda að bílar væru
nær eina uppspretta þeirra.
9.10 | Sveinn Guðjónsson
Áhyggjur á ævikvöldi
Í stað þess að setjast
áhyggjulausir út í sólsetrið
fara menn fyrst að hafa veru-
legar áhyggjur af afkomu
sinni. Hvernig má það vera,
eftir að hafa greitt af launum sínum í líf-
eyrissjóð, nánast allan sinn starfsaldur, í
hartnær hálfa öld?
10.10 | Geir A. Gunnlaugsson
Þörf á víðtækri sátt um framtíð
flutnings raforku
Takmarkanir á orkuafhend-
ingu og afhendingaröryggi er
farið að standa í vegi fyrir al-
mennri atvinnuuppbyggingu
víða á landinu og þar með
byggðaþróun.
12.10 | Garðar Cortes
Hvernig verða tónlistarmenn
til?
Í Guðs bænum leysið þennan
rembihnút sem búið er að
hnýta um tónlistarskólana í
Reykjavík. Verið stoltir af
þessum skólum.
13.10 | Halldór Bjarkar Lúðvígsson
Sala Arion banka á hlutum í
Símanum
Þegar söluferlinu er nánast
lokið og allar upplýsingar
liggja fyrir, er auðvelt að
gagnrýna bankann fyrir þá
ákvörðun að selja hluti á
gengi sem var lægra en útboðsgengið.
14.10 | Ómar G. Jónsson
Óánægja innan lögreglu vegna
kjarasamninga
Flestum er ljóst að lögreglu-
starfið er krefjandi starf með
verkefnum sem aðrar stéttir
þurfa ekki að fást við.
15.10 | Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir
Tölum saman vinnum saman
Ætla má að nýta þurfi alla þá
hugmyndafræðilegu þekk-
ingu, sem er til staðar um
málefni einstaklinga með
geðrænan vanda. Stuðla
verður að því að þeir fái samfellda með-
ferð og eftirfylgni.
16.10 | Ómar Ragnarsson
Ekið um villigötur út á tún
Þarna er um að ræða áætl-
aða heildartölu sem sýnir
mögleika til kolefnisjöfnunar í
framtíðinni, stig af stigi, en
ekki risastóran hluta af út-
blæstrinum núna eins og Özur heldur
fram.
17.10 | Róbert H. Haraldsson
Villandi málflutningur um
áfengisfrumvarp
Andstæðingar frumvarpsins
hafa vísað á rannsóknir af al-
þjóðlegum vettvangi og inn-
lendum, en stuðningsmenn-
irnir forðast slíkt eins og
heitan eldinn.
19.10 | Erling Garðar Jónasson
Reykjavíkurbréf gamlingjans
Það gleður mikið mitt viðgerða hjarta að
fleiri og fleiri eru að stinga
niður penna og fá ritað um
þarfamál eldri borgara í
prentuð málgögn okkar.
20.10 | Laufey Tryggvadóttir
Á að skima fyrir
stökkbreytingunni BRCA2
Fjarlæging þessara líffæra er
sterk forvörn en hún er samt
ekki eina ráðið. Sumum arf-
berum hentar betur að vera
undir stöðugu eftirliti.
22.10 | Þorkell Sigurlaugsson
Um annan spítala á öðrum stað
Ákvörðun hefur verið tekin á
Alþingi og öllum stjórnsýslu-
stigum um að Landspítali
verði áfram við Hringbraut.
Við eigum að geta treyst því
að svo verði.
23.10 | Bergþór Ólason
Af hverju fannst okkur vinstri-
stjórnin vond?
En okkur fannst vinstristjórn-
in vond og það voru margar
ástæður fyrir því. Af ein-
hverjum ástæðum eru þær
flestar enn í lögum.
24.10 | Ásmundur Einar Daðason
Af hverju varð Ísland ekki
Grikkland norðursins?
Íslendingar hafa neitað að
ríkisvæða skuldir einkafyrir-
tækja. Lætur einhver sig
dreyma um að evrópski
seðlabankinn hefði samþykkt
þetta?
26.10| Jóhann Tómasson
Ósannindi og falsanir
siðanefndar lækna
Grátbroslegt dæmi um þetta
er sá fyrirsláttur að fólk geti
verið undanþegið siðferði-
legri ábyrgð á meðan það
sinni störfum sínum.
27.10| Ragnar Önundarson
Afnám gjaldeyrishafta veldur
áhyggjum
Hvernig getum við metið
banka á sama hátt og fyrir-
tæki í samkeppni í þessu
ljósi? Á þjóðin að meta það
hátt sem tekið er af henni
sjálfri?
28.10 | Óli H. Þórðarson
Undirstofnanir undirráðuneyta
Ekki heldur klókt, að því er
mér finnst, að tala um und-
irmenn forstjóra eða und-
irmenn í ráðuneyti sínu.