Morgunblaðið - 31.12.2015, Síða 76

Morgunblaðið - 31.12.2015, Síða 76
76 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015 Óskum landsmönnum farsældar á nýju ári og þökkum viðskiptin á liðnum árum skartgripirogur.is gullbudin.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það léttir lífið að slá á létta strengi en mundu að öllu gamni fylgir nokkur al- vara. Leitaðu samt ekki langt yfir skammt því tækifærin eru við höndina. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú verður að taka af skarið og hrinda málum í framkvæmd, þótt vinnufélagar þínir séu tregir í taumi. Hugsaðu málið vandlega. Hvíldu þig augnablik ef þú þarft eða fáðu þér kaffibolla. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er ástæðulaust fyrir þig að hengja haus því þú hefur unnið vel. Gefðu þér tíma til þess að vega þau og meta og gríptu svo tækifærið, ef þér sýnist það vera þess virði. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú vilt vita hvernig hlutirnir virka og þess vegna átt þú ýmsu ólokið. Sæktu fundi og viðburði hjá klúbbum og félögum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Eftir höfðinu dansa limirnir og þér er því mikil ábyrgð falin þegar starfsfélagar þínir velja þig til forystu. Og þú ert nógu ráðkænn til að fá það núna. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Vertu reiðubúinn því allar breytingar krefjast fórna. Sýndu þolinmæði og ekki ör- vænta þó að þetta raski fyrirætlunum þín- um. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú munt eiga mikilvæg samskipti við konu í fjölskyldunni í dag. Sýndu ögn meiri þolinmæði og þá gengur allt upp. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Gerðu aðeins það sem þú veist sannast og best, því allt annað mun koma í bakið á þér þótt síðar verði. Staða him- intunglanna gæti orðið þess valdandi að þú lendir upp á kant við einhvern. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Maður getur alltaf á sig blómum bætt. Ekki hafa áhyggjur þótt þú finnir til feimni, sjálfstraust þitt er meira en ella núna. Sérstaklega viðræður sem tengjast deilumálum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú gætir átt svolítið erfitt með að sýna öðrum örlæti í dag. Góðmennskan byrjar hjá manni sjálfum en endar ekki þar. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Niðjar og ættingjar kunna að verða full uppáþrengjandi. Láttu ekki óvænta gagnrýni koma þér úr jafnvægi. Inn- leiddu reglu sem bannar öskur á heimilinu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Flas er ekki til fagnaðar. Hversdags- legir hlutir geta þróast í óvenjulegar áttir. Rekstur tengdur fjölmiðlun, útgáfu, lögum og læknisfræði gengur vel. Ágamlárskvöld 1871 bjugguststúdentar og skólapiltar sem álfar: gengu þeir í tveim fylkingum frá holtinu austan við tjörnina í Reykjavík og báru blys hver í hönd- um. Á miðri tjörninni hittust þeir og slógu upp hringdans á svellinu og sungu þetta kvæði eftir Jón Ólafsson: Einn: Máninn hátt á himni skín hrímfölur og grár. Líf og tími líður og liðið er nú ár. Allir: Bregðum blysum á loft, bleika lýsum grund. Glottir tungl, en hrín við hrönn og hratt flýr stund. Kyndla vora hefjum hátt, horfið kveðjum ár. Dátt við dansinn stígum, dunar ísinn grár. Nú er veður næsta frítt, nóttin er svo blíð. Blaktir blys í vindi, blaktir líf í tíð. Komi hver sem koma vill! Komdu, nýja ár! Dönsum dátt á svelli, dunar ísinn blár. Fær þú unað, yndi og heill öllum vættum lands. Stutt er stund að líða, stígum þétt vorn dans. Fær þú bónda í búið sitt björg og heyjagnótt. Ljós í lofti blika, líður fram á nótt. Gæfðir veittu‘, en flýi frost; fiskinn rektu á mið. Dunar dátt í svelli, dansinn stígum við. Framför efldu; fjör og líf færðu til vors lands. Stutt er stund að líða, stígum þétt vorn dans. Máninn hátt á himni skín hrímfölur og grár. Líf og tími líður og liðið er nú ár. Allir: Bregðum blysum á loft, bleika lýsum grund. Glottir tungl, en hrín við hrönn og hverfur stund. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Máninn hátt á himni skín Í klípu „HANN Á SÉR ENGA SÖGU.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „FIMMTÁN ÁR LIÐIN NÚ ÞEGAR?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vaka til þess að fagna nýju ári. JÓLASVEINNINN VEIT HVORT ÞÚ HEFUR VERIÐ GÓÐUR EÐA SLÆMUR HANN ER FEITUR GAUR SEM GERIR EKKERT 364 DAGA Á ÁRI ÞÚ HEFUR EKKI VERIÐ MJÖG GÓÐUR HVER ER HANN AÐ DÆMA MIG?! ÉG HEYRI AÐ KONUNGURINN NJÓSNI UM ALLA ÞEGNA SÍNA… HANN VEIT ALLT UM ALLA! ÞAÐ GETUR EKKI VERIÐ SATT! HVERS VEGNA EKKI? ÉG ER ENN Á LÍFI!! Heiðar heiðarlegi Í þessu á standi NOTAÐIR BÍLAR Víkverji hlakkar nokkuð til áramót-anna þetta árið. Ekki að 2015 hafi verið leiðinlegt, heldur meira að það er eiginlega komið nóg af því góða. Það bíður Víkverja nefnilega svo margt á nýju ári, en hann mun verða faðir í fyrsta sinn á árinu. Áður en að því kemur þarf þó að komast í gegnum þá miklu hefð sem gamlárs- kvöld er í fjölskyldu hans. x x x Víkverji sér kvöldið fyrir sér semnokkuð týpískt gamlárskvöld: Kalkúnn um kvöldið með fyllingu og góðri sósu. Stutt umræða um það hvort að ekki sé nú málið að fara og kíkja á áramótabrennu, jafnvel þó að slíkt hafi aldrei verið stundað í fjöl- skyldu Víkverja að staðaldri. Á end- anum verður komist að þeirri nið- urstöðu að það sé of kalt í veðri til þess að norpa við hliðina á fólki sem við þekkjum ekki neitt að horfa á bál eins og frummenn. x x x Að þeim umræðum loknum tekurvið biðin eftir áramótaskaupi Sjónvarpsins. Víkverji getur ábyrgst það að viðbrögðin við því verði þau að allavegana einn heimilismaður spyrji: „Hver á þetta að vera?“ og að fljótlega þar á eftir muni koma setn- ingin: „Á þetta að vera fyndið?“ Gott ef einhver, líklega Víkverji sjálfur, muni ekki klykkja út með „Komm- únistaáróður alltaf hreint.“ Áður en miðnættið gengur í garð verður síðan búið að strengja þess dýran eið að gera eitthvað annað við tíma sinn að ári en að horfa á þetta „andskotans skaup“. x x x Það vakti athygli Víkverja um dag-inn að einn forvígismanna Pírata skrifaði merkan pistil, þar sem hann kallaði eftir bættri umræðuhefð, á sama tíma og hann kallaði valdhafa siðlausa og sagði marga alþing- ismenn „tala með rassgatinu“. Þar sem Víkverji er þekktur fyrir að kvarta og kveina, hefur hann ákveðið á nýju ári að taka þennan stórfína og vel úthugsaða pistil til sín. Því eins og Mikjáll nokkur Jackson sagði eitt sinn: Viljir þú breyta heiminum er best að byrja á manninum í spegl- inum. víkverji@mbl.is Víkverji Þá brýst ljós þitt fram sem morgunroði og sár þín gróa skjótt, réttlæti þitt fer fyrir þér en dýrð Drottins fylgir eftir. Jesaja 58:8
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.