Morgunblaðið - 12.05.2016, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016
Álfurinn 2016
- fyrir unga fólkið
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Lágmynd af Valdimar Kristni Valdimarssyni, eða Valda vallarverði, var af-
hjúpuð á Kópavogsvelli í gær fyrir fyrsta heimaleik Breiðabliks í efstu deild
kvenna í sumar þar sem 600 manns mættu á leikinn. Þær Vigdís Lilja Krist-
jánsdóttir og Þórdís Katla Sigurðardóttir standa við myndina, brosmildar í
Blikabúningum. Valdi var einn af þeim fyrstu sem hvöttu stelpur til að æfa
fótbolta og lagði þannig grunn að blómlegu starfi kvennaknattspyrnu í Kópa-
vogi. Boðið var upp á skornar appelsínur að hætti Valda við athöfnina. Ívar
Valgarðsson gerði gifsmótið og Málmsteypan Hella setti myndina í brons.
Fjölmenni heiðraði Valda vallarvörð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lágmynd af einum af frumkvöðlum kvennaknattspyrnunnar afhjúpuð á Kópavogsvelli
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Verkefnisstjórn rammaáætlunar
gerir eina breytingu á flokkun virkj-
unarkosta og náttúrusvæða frá
drögum sem kynnt voru í vor.
Austurgilsvirkjun við Ísafjarðardjúp
fer úr biðflokki í nýtingarflokk. Til-
lögur verkefnastjórnar fara nú í tólf
vikna umsagnarferli og í framhaldi
af því gerir hún tillögur til um-
hverfisráðherra.
Í drögum að flokkun virkjunar-
kosta og náttúrusvæða sem verk-
efnastjórnin kynnti í lok mars var
Austurgilsvirkjun sett í biðflokk
vegna þess að gögn um gróðurfar,
jarðfræði, fuglalíf, vatnalíf og menn-
ingarminjar voru talin ófullnægj-
andi. Þetta eru gögn sem faghópur 1
þarf til að meta
sinn þátt og var
gengið í það verk
að afla nýrra
gagna. Hins veg-
ar var virkjunar-
kosturinn í hópi
þeirra fimm
virkjana sem
taldir voru hafa
hvað minnst áhrif
á ferðamennsku og aðra nýtingu,
samkvæmt niðurstöðum faghóps 2.
Eftir að fyrra samráðsferlinu lauk
hefur verkefnisstjórn unnið úr at-
hugasemdum sem bárust. Hún fékk
meðal annars nýjar upplýsingar um
Austurgilsvirkjun. Niðurstaða henn-
ar var að færa virkjunarkostinn úr
biðflokki í nýtingarflokk, með þeim
fyrirvara þó að ekki væri búið að
vinna að fullu úr gögnunum. Tillag-
an var birt á vef rammaáætlunar
seint í gærkvöldi og hófst þá nýtt
tólf vikna umsagnarferli.
Austurgilsvirkjun verður í Skjald-
fannardal í Ísafjarðardjúpi og tekur
vatn úr ám og vötnum á hálendinu
undir Drangajökli. Áætlað er að afl
hennar verði 35 megavött. Einstak-
lingar standa að undirbúningnum,
meðal annars eigandi Laugalands í
Skjaldfannardal.
Ekki áhrif á flokkun
Inn í skýrslu verkefnisstjórnar
eru komnar ítarlegri upplýsingar
um samfélagsáhrif virkjana frá fag-
hópi 3 og nýr kafli um þjóðhagsleg
áhrif frá faghópi 4. Landsvirkjun og
fleiri gagnrýndu að þessi gögn vant-
aði.
Þessar nýju upplýsingar hafa þó
ekki haft áhrif á mat verkefnis-
stjórnar á virkjunarkostum. Stefán
Gíslason, formaður stjórnarinnar,
segir að upplýsingarnar séu þess
eðlis að þær geti lítil áhrif haft á
flokkunina. Þannig sé engin leið að
flokka virkjunarkosti út frá áhrifum
þeirra á þjóðarhag. Alltaf sé sami
ábatinn af hverri gígavattstund sem
bætist við, ef ekki sé vitað til hvers
nota eigi orkuna.
Þá eru í skýrslunni svör verkefna-
stjórnar við almennum athugasemd-
um sem bárust í fyrra samráðsferl-
inu. Öllum athugasemdum úr báðum
umsagnarferlunum verður síðan
svarað í lokaskýrslu verkefnastjórn-
ar sem áformað er að afhenta um-
hverfisráðherra 1. september í
haust.
Austurgilsvirkjun í nýtingu
Verkefnisstjórn gerir eina breytingu á flokkun virkjunarkosta og náttúrusvæða
Upplýsingar um samfélagsleg og þjóðhagsleg áhrif Nýtt umsagnarferli hafið
Stefán Gíslason
Stoðvirki úr stáli sem setja á upp í
hlíðum fjallsins Kubba í Skutuls-
firði eiga að verja Holtahverfi á
Ísafirði fyrir snjóflóðum, ásamt
þvergarði sem þar var byggður
fyrir nokkrum árum. Öll hús í
hverfinu eiga þá að vera komin í
öruggt skjól.
Hús í Holtahverfi, undir hlíðum
Kubba, eru á snjóflóðahættusvæði.
Íbúar geta átt á hættu að þurfa að
rýma húsin þegar slíkar aðstæður
skapast. Samkvæmt lögum á að
verja hús á slíkum svæðum eða
kaupa.
Kostar 800 milljónir
Þvergarður sem byggður var
fyrir nokkrum árum ver hluta
byggðarinnar. Hætt er við að stór
snjóflóð spýtist yfir garðinn. Þess
vegna eru sett stoðvirki á upp-
takasvæðum hugsanlegra snjóflóða
til að koma í veg fyrir að stór flóð
geti myndast. Þau verja einnig
svæði austan við þvergarðinn. Sam-
an eiga stoðvirki og þvergarður að
verja húsin í hverfinu.
Stálgrindurnar verða hátt í 2
kílómetrar að lengd. Þær verða 3
til 4 metrar á hæðina, út frá hlíð-
inni.
Áætlað er að stoðvirkin kosti um
800 milljónir kr., að sögn Gísla
Halldórs Halldórssonar, bæjar-
stjóra Ísafjarðarbæjar. Ofanflóða-
sjóður greiðir 90% af kostnaði og
Ísafjarðarbær ábyrgist 10% kostn-
aðarins.
Framkvæmdasýsla ríkisins hefur
auglýst útboð á uppsetningu stoð-
virkjanna.
Stoðvirkin í hlíð Kubba blasa við
íbúum Holtahverfis og þau sjást
einnig af Eyrinni. Þau eru úr gal-
vaníseruðu stáli og segir Gísli Hall-
dór að búast megi við að fyrstu ár-
in glampi á þau en þau verði minna
sýnileg þegar mesti glansinn verði
farinn af. Þessu til viðbótar má
geta þess að flugvélar Flugfélags
Íslands í innanlandsflugi sleikja
nánast þessa hlíð þegar þær koma
inn til lendingar á Ísafjarðarflug-
velli og því munu stoðvirkin blasa
við farþegum.
Verktaki er að ljúka við síðasta
garðinn fyrir ofan Eyrina á Ísa-
firði. Gísli Halldór segir að áfram
verði unnið að snjóflóðavörnum.
Næst sé að hefja hönnun og bygg-
ingu varnarmannvirkja í Hnífsdal.
helgi@mbl.is
Stoðvirki sett upp í Kubba
Holtahverfi á Ísafirði varið fyrir snjóflóðum
Maður beið
bana þegar
bát hans
hvolfdi úti af
Aðalvík í gær-
morgun. Hann
hét Eðvarð
Örn Kristins-
son, fæddur
1981. Hann
var búsettur í
Súðavík og
lætur eftir sig eiginkonu og tvö
börn. Eðvarð var á strandveiðum
og var einn um borð þegar bát
hans hvolfdi um 20 mílum úti af
Aðalvík.
Umfangsmikil leit hófst að bátn-
um um klukkan hálfníu í gærmorg-
un eftir að hann datt úr sjálfvirkri
tilkynningarskyldu. Þyrla Land-
helgisgæslunnar, björgunarskipið
Gunnar Friðriksson, flugvél Land-
helgisgæslunnar, TF-SIF, og nær-
staddir bátar tóku þátt í leitinni en
á ellefta tímanum fannst báturinn
á hvolfi og skipverjinn í sjónum.
Var hann úrskurðaður látinn af
þyrlulækni Landhelgisgæslunnar.
Rannsókn lögreglunnar á Vest-
fjörðum er á frumstigi, en veður
og sjólag á staðnum var ekki sér-
staklega gott í gær.
Þetta er annað banaslysið í röð-
um smábátasjómanna á skömmum
tíma, en þann 27. apríl síðastliðinn
féll sjómaður á sextugsaldri út-
byrðis við grásleppuveiðar norðan
Steingrímsfjarðar og lést.
Lést er
bát hans
hvolfdi
Umfangsmikil leit
gerð úti af Aðalvík
Eðvarð Örn
Kristinsson
Nokkrir jarðskjálftar urðu við
Bárðarbungu á Vatnajökli í gær. Sá
stærsti varð klukkan 13.20 um 3,6
km norðaustan af Bárðarbungu, en
hann mældist 2,9 stig. Í kjölfarið
fylgdu nokkrir minni skjálftar, en að
sögn sérfræðings í náttúruvá á
Veðurstofu Íslands er ekki hægt að
segja að um skjálftahrinu hafi verið
að ræða.
Vel sé þó fylgst með Bárðarbungu
allan sólarhringinn, eins og öðrum
eldstöðvum á landinu. Þensla hefur
verið á svæðinu í kringum Bárðar-
bungu síðan í september, en slík
þensla er hins vegar sögð algeng í
nánd við eldstöðvar eftir eldgos.
Skjálfti upp
á 2,9 stig