Morgunblaðið - 12.05.2016, Síða 6

Morgunblaðið - 12.05.2016, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Upplifðu dásamlega daga í Vín í Austurríki og Prag í Tékklandi þar sem rómantísk sigling skipar stóran sess í þessari fjögurra landa ferð. Við skoðum t.d. Schönbrunn höllina í Vín og Karlsbrúna í Prag, sem og borgirnar Bratislava og Regensburg. Verð: 228.200 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Fararstjóri: Pavel Manásek 11. - 20. september Vínarborg&Prag Sumar 24 Sp ör eh f. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is „Þrátt fyrir að þekking á möguleg- um sjávarflóðum vegna loftlags- breytinga hafi legið lengi fyrir og að Skipulag ríkisins hafi á árunum 1992 og 1995 gefið út reglur um skipulag byggðar á lágsvæðum þar sem hætta er á flóðum, hefur þessi vá ekki hlot- ið nægilega athygli og misbrestur er á að reglurnar hafi verið hafðar til hliðsjónar við skipulagsgerð.“ Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu VSÓ Ráð- gjafar: Hækkuð sjávarstaða á höfuð- borgarsvæðinu. Áhrif og aðgerðir. Í skýrslunni kennir ýmissa grasa og er metin staða hvers sveitarfélags á höfuðborgarsvæðinu með tilliti til spár um hækkun sjávar til ársins 2100. Í skýrslunni er varpað upp mynd af mögulegum flóðasvæðum á höfuðborgarsvæðinu og miðað við 4 m flóð sem tekur tillit til 4 °C hækk- un hitastigs og landsigs til ársins 2100. Þessir útreikningar eru fengnir úr skýrslu vísindanefndar Umhverfis- ráðuneytisins um loftlagsbreytingar. Hér til hliðar má sjá dæmi um fjögur sveitarfélög þar sem áhrifanna mun gæta en þess ber að geta að hækkun sjávar hefur áhrif á öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Bláa svæðið táknar þau svæði sem eru í hættu vegna hækkunar sjávar. Í skýrslunni eru jafnframt útskýrð þau áhrif sem slík flóð geta valdið. Til að mynda eykst álag á fráveitu- kerfi með stígandi sjávarborði: „Há sjávarstaða getur minnkað hæð- armuninn (fallhæðina) í lagnakerfinu og því hægt á rennsli lagnanna. Það leiðir til að flutningsgeta kerfanna minnkar sem aftur leiðir til flóða uppúr kerfinu. Hækkun sjávar veld- ur jafnframt hækkun á grunnvatns- stöðu sem aftur eykur innrennsli í fráveitukerfi,“ segir í skýrslunni. Nágrannalöndin lengra komin Í skýrslunni er jafnframt leitast við að skýra það hvar ábyrgðin ligg- ur, þ.e. hvaða aðili í stjórnkerfinu ber ábyrgð á því að bregðast við. Að sögn Auðar Magnúsdóttur, eins skýrslu- höfunda, er hún hjá sveitarfélög- unum. „Við höfum heyrt það utan að okkur að meira sé hugað að þessu í nágrannalöndunum, en að hér sé víða pottur brotinn,“ segir Auður um ástæður þess að skýrslan var gerð. Hún segir að ýmsir möguleikar hafi verið nefndir í skýrslu um það hvernig hægt sé að bregðast við. Bæði sé nefnt að sveitarfélög geti hugað að því að skipuleggja sig frá sjávarsíðunni en einnig að efla megi varnargarða. Eins að gera byggingarskilmála um það hvernig haga skuli byggingu húsa. „Það snýr að því úr hvernig efni húsin eiga að vera, hver gólfhæðin á neðstu hæð á að vera og fleira,“ segir Auður. Hefur áhrif á nýtt Vogahverfi Eins og sjá má á meðfylgjandi korti af Reykjavík stafar svo til öllu Vogahverfi ógn af hækkun sjávar ef miðað er við óbreytt ástand. Eins og fram hefur komið er nýtt Vogahverfi komið á skipulag Reykjavíkur- borgar. „Þar væri t.a.m. hægt að skoða fyllingu fyrir meiri landhæð. Það er mikilvægt að sveitarfélög hafi meira samráð við siglingafræðinga á siglingasviði Vegagerðarinnar,“ seg- ir Auður. Hún segir að svæðin á höfuðborgarsvæðinu séu misjafnlega útsett fyrir hættunni af hækkun sjávar. Þannig séu sum svæði opin og þ.a.l. í meiri hættu fyrir ágangi sjávar en svæðum sem séu í betra skjóli. „Það er gott að átta sig á því hvað getur gerst; tjónið getur jafnvel orðið meira en við gerum ráð fyrir,“ segir Auður. Hún segir mun á því hvernig tekið hafi verið á þessum málum eftir sveitarfélögum. Þannig hafi einna mestur gaumur verið gef- inn að þessu á Álftanesi og varn- argarðar verið settir upp. „En svo er þetta staðbundið á öðrum stöðum. Gripið hefur verið til aðgerða á Hörpureitnum og á Norður- bakkanum í Hafnarfirði,“ segir Auð- ur. Að sögn Auðar gætir áhrifa hækk- andi sjávar nú þegar og eru dæmi um hús á Seltjarnarnesi þar sem sjór hefur komið upp úr niðurföllum. Flóðahætta fengið litla athygli  Skýrsla um áhrif loftslagsbreytinga á hækkun sjávar  Stórt landsvæði í hættu ef ekkert er að gert Kópavogur Kársneshöfn Blái liturinn sýnir hækkun sjávar til ársins 2100 Reykjavík Skarfagarðar Sundahöfn Elliðaárvogur Álftanes Landakot Jörfi Bessastaðatjörn Lambhagi Hlið Breiðabólsstaður Hafnarfjörður Herjólfsgata NorðurbakkiSuðurhöfn Miðbær Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Félagsstofnun stúdenta, FS, fól Kaup- þingi um tvo milljarða króna í fjárstýr- ingu á árunum fyrir bankahrun og tap- aðist hluti þessara fjármuna við hrunið. FS höfðaði í kjölfarið sex mál á hendur þrotabúi bankans og krafðist þess að fá þetta tap bætt. Málið snerist m.a. um hvort Kaupþing hefði farið út fyrir fjárfestingarheimildir sínar með því að fjárfesta í félögum sem tengdust bankanum. Á mánudaginn felldi Hæstiréttur dóma í öllum málunum og varð niður- staðan sú að þrotabúið var sýknað af öllum kröfum. Forsaga málsins er sú að FS skaut málinu til Hæstaréttar eftir að Hér- aðsdómur Reykjavíkur hafði neitað að viðurkenna kröfuna. Samkvæmt dómsskjölum eru málavextir þeir að FS og Kaupþing gerðu með sér samn- ing árið 2003 um að bankinn tæki að sér eignastýringu fyrir FS. Með samn- ingnum var bankanum falið að kaupa fjármálagerninga fyrir fé stofnunar- innar, annast innlausn þeirra og inn- heimtu afborgana, vaxta og verðbóta og að endurfjárfesta fyrir það fé sem innheimtist af verðbréfum sóknar- aðila. Kom m.a. fram í samningnum að FS gerði sér grein fyrir eðli verðbréfa- viðskipta og þeirri áhættu sem þeim fylgdi og að henni hefði verið gerð grein fyrir hættu á sveiflum í ávöxtun verðbréfa og að undirliggjandi eignir samningsins gætu rýrnað á samn- ingstímanum. „Hefðbundið hrunmál“ Þegar íslensku bankarnir hrundu í október 2008 voru þessir fjármunir á annan milljarð króna, þar af voru rúmar 850 milljónir bundnar í sex verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum. Kröfur FS námu alls 169.765.543 krónum og 12.883 evrum, sem sam- tals eru rúmlega 171.572.000 krónur. „Það má líklega segja að þetta sé hefðbundið hrunmál,“ segir Teitur Már Sveinsson, lögmaður FS. „Félagsstofnunin endurheimti ekki allt sitt fé úr þessum sex sjóðum þeg- ar þeim var slitið og gengið frá upp- gjöri á þeim. Í kjölfarið lýsti FS sex kröfum vegna þessara sex sjóða fyrir mismuninum í þrotabú bankans, ekki náðist sátt og þá fór málið fyrir héraðsdóm og síðan fyrir hæstarétt.“ Teitur segir að FS og Kaupþing hafi skrifað undir fjárfestingarstefnu sem var „mjög áhættufælin“. Það hafi síðan verið mat dóm- kvadds matsmanns sem fenginn var til að meta tjónið að sjóðirnir hefðu farið út fyrir fjárfestingarheimildir laga með því að fjárfesta í Kaupþingi og tengdum aðilum, sem voru SPRON og Exista. Niðurstaða mats- mannsins var að erfitt hefði verið að meta tjón vegna þessa og aðgreina það frá almennu tjóni vegna hrunsins. Spurður hvort tap þessara fjár- muna hefði áhrif á rekstur FS segist Teitur telja að þau séu óveruleg. Félagsstofnun stúdenta tapaði 171 milljón Morgunblaðið/Ómar Stúdentagarðar Félagsstofnun stúdenta sér m.a. um ýmsa þjónustu á svæði Háskóla Íslands og byggingu og rekstur Stúdentagarðanna við HÍ.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.