Morgunblaðið - 12.05.2016, Page 8
Félag atvinnurekenda hefur sent
Degi B. Eggertssyni borgarstjóra
erindi og lýst áhyggjum sínum af
því að engin úrræði virðist í boði
fyrir atvinnufyrirtæki sem þurfa
að víkja af lóðum sínum vegna
þess að verið er að breyta grónum
atvinnuhverfum í borginni í bland-
aða íbúðar- og atvinnubyggð.
Fjallað var um þetta mál í Morg-
unblaðinu í gær og greint frá sjón-
armiðum forsvarsmanna í Voga-
byggð og áhyggjum þeirra vegna
breytts skipulags þar.
„Stefnan um þéttingu byggðar
er skynsamleg og stuðlar að öfl-
ugra, hagkvæmara og lífvænlegra
borgarsamfélagi. Hún hefur þó af
hálfu borgaryfirvalda fyrst og
fremst verið sett fram á for-
sendum þróunar íbúabyggðar.
Þarfir og hagsmunir atvinnulífsins
hafa ekki verið í forgrunni,“ segir í
bréfi FA.
Breyting í nokkrum hverfum
Þar er bent á að þó liggi alveg
ljóst fyrir að blómleg borg þrífist
ekki án öflugs atvinnulífs. Gera
verði ráð fyrir þörfum þess í
borgarskipulaginu ekki síður en
þörfum borgarbúa fyrir íbúðar-
húsnæði. Rifjað er upp að áformuð
sé umfangsmikil uppbygging íbúð-
arhúsnæðis og breyting á land-
notkun í hverfum á borð við Voga-
byggð, Skeifuna-Mörkina,
Múlana-Suðurlandsbraut og ofan-
verðan Laugaveg.
Fram kemur á heimasíðu FA að
samkvæmt upplýsingum frá skrif-
stofu borgarstjóra verði erindið
tekið fyrir á fundi borgarráðs í
dag, en það var sent 8. apríl.
Þarfir atvinnulífsins ekki í forgrunni
Engin úrræði virðast í boði fyrir fyrirtæki sem þurfa að víkja af lóðum sínum
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016
Til að tryggja vaxandi hallarekst-ur Reykjavíkurborgar hafa
vinstrimenn í borgarstjórn ákveðið
að fara þá leið að fjölga starfs-
mönnum.
Aðrar leiðir hafaeinnig verið
þróaðar hjá borginni
á kjörtímabilinu, svo
sem að ráðast í
óþarfar gatnafram-
kvæmdir. Þær duga
ekki einar og sér,
enda hafa þær þann
ókost að þær klárast,
en með fjölgun
starfsmanna má
tryggja viðvarandi
umframútgjöld.
Einnig hefur verið ráðist í lang-tímaráðstafanir til að tryggja
að árangurinn fari ekki forgörðum
þó að stjórnendur borgarinnar missi
tökin í nokkur ár og sýni aðhalds-
semi í rekstri.
Meðal langtímaaðgerðanna er aðfæla fólk frá borginni með því
að hindra uppbyggingu íbúðarhús-
næðis, sérstaklega húsnæðis á hag-
stæðu verði, og svo með því að ýta
atvinnustarfsemi yfir í önnur
sveitarfélög.
Formaður borgarráðs, S. BjörnBlöndal, segir um starfsmanna-
þáttinn í hallarekstursáformunum
að ákveðið hafi verið að gefa „örlít-
inn slaka“ til að finna út „hver er
raunveruleg þörf á starfsmönnum“.
Án „örlitla slakans“ hefði það auð-
vitað ekki verið hægt.
Þessi útskýring er ekki minnisnilld en hallarekstrarstefnan í
heild, en eins og Halldór Halldórs-
son borgarfulltrúi hefur bent á skil-
aði „örlitli slakinn“ því að stöðugild-
um fjölgaði um 212 með kostnaði
upp á 1,5 milljarða króna á ári.
S. Björn Blöndal
Ekkert stress, um
að gera að slaka á
STAKSTEINAR
Halldór
Halldórsson
Veður víða um heim 11.5., kl. 18.00
Reykjavík 7 alskýjað
Bolungarvík 2 rigning
Akureyri 5 súld
Nuuk 4 skýjað
Þórshöfn 8 alskýjað
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 19 heiðskírt
Stokkhólmur 14 léttskýjað
Helsinki 10 skýjað
Lúxemborg 21 heiðskírt
Brussel 22 skýjað
Dublin 15 rigning
Glasgow 18 léttskýjað
London 16 rigning
París 16 rigning
Amsterdam 20 rigning
Hamborg 21 léttskýjað
Berlín 22 léttskýjað
Vín 16 alskýjað
Moskva 23 heiðskírt
Algarve 13 rigning
Madríd 14 léttskýjað
Barcelona 17 heiðskírt
Mallorca 16 alskýjað
Róm 17 rigning
Aþena 21 skýjað
Winnipeg 14 skýjað
Montreal 15 heiðskírt
New York 19 skýjað
Chicago 19 léttskýjað
Orlando 27 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
12. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:21 22:29
ÍSAFJÖRÐUR 4:02 22:57
SIGLUFJÖRÐUR 3:45 22:40
DJÚPIVOGUR 3:44 22:04
Félagið Tjáningarfrelsið færði í
gær öllum þingmönnum á Alþingi
að gjöf bókina Þjóðapláguna Íslam,
eftir norsku blaðakonuna Hege
Storhaug.
Fram kemur í bréfi sem þing-
mönnum var sent að einstaklingur
sem ekki vildi láta nafns síns getið
hefði keypt 63 eintök af bókinni og
farið þess á leit við félagið að bæk-
urnar yrðu afhentar öllum alþingis-
mönnum að gjöf.
Umrædd bók kom nýlega út á ís-
lensku í þýðingu Magnúsar Þórs
Hafsteinssonar. Segir í bréfinu að
bókin eigi erindi til allra sem hafi
áhuga á að stunda upplýsta um-
ræðu um þjóðfélagsmál.
Afhentu þingmönnum bókUpplýsingar til Íslandsforeldra
um síðustu úthlutun úr sjóði
Íslandsforeldra í apríl 2016
Alls var úthlutað 1065 matarskömmtum til heimila barna-
fjölskyldna sem leituðu til Fjölskylduhjálparinnar.
Þar af voru 365 börn nutu góðs af.
Hjartans þakkir fyrir stuðninginn elsku Íslandsforeldrar!
Innkaupin voru sem hér segir:
Nesbúbegg 65.002 kr.
Ísam, mjólkurkex 184.295 kr.
Lýsi 216.783 kr.
Síld og fiskur, kæfa 126.540 kr.
Bananar ehf, kartöflur og appelsínur 147.630 kr.
MS ehf, mjólk, súrmjólk og smjör 195.780 kr.
Samtals 936.350 kr.
Einnig voru afhent fiskur og búðingur.
• Sölufélag garðyrkjumanna gáfu grænmeti (tómata, kál,
blaðsalat, og gúrkur).
• Eldum Rétt gaf rauðlauk, hvítan lauk, paprikur rauðar og gular.
• MS gaf jógurt, grjónagraut og skyr.
• Ísam gaf Piparkökur og Hop-vin gaf okkur ávaxtasafa.
• Mylla-Brauð gaf nýbökuð brauð.
Við þökkum þessum fyrirtækjum innilega fyrir rausnarlegan
stuðning.
Til þess að gerast Íslandsforeldri ferðu inná fjolskylduhjalp.is
~ Stuðningur þinn er ómetanlegur ~