Morgunblaðið - 12.05.2016, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016
Óþolinmóðir erlendir ferðamenn
hafa undanfarna daga verið að koma
sér fyrir á tjaldsvæðinu við Borgar-
braut í Borgarnesi þótt það verði
ekki opnað fyrr en 1. júní. Salernis-
og hreinlætisaðstaðan á svæðinu er
lokuð og keðja hefur verið strengd
yfir veginn að svæðinu svo þangað sé
ekki ekið. Það hefur þó ekki hindrað
ferðafólk í að dvelja þarna og er lík-
legt að það hafi ekki vitað að tjald-
svæði landsins verða almennt ekki
opnuð fyrr en um næstu mánaðamót.
Arndís Úlfhildur Sævarsdóttir hjá
Landamerkjum ehf,, sem reka tjald-
svæðið í Borgarnesi, segir að veður-
far ráði því einkum að svæðið sé ekki
opnað fyrr. Hjá Upplýsingamiðstöð
ferðamála í Reykjavík fengust þau
svör að vegna þess hvernig veðurfari
á Íslandi væri háttað í maímánuði
hefði ekki þótt óhætt að hafa tjald-
svæði landsins almennt opin fyrr en í
júní. Þó eru dæmi um að svæði séu
opnuð fyrr eins og í Laugardal í
Reykjavík og á Víðistaðatúni í Hafn-
arfirði. Þar er opnað 15. maí sam-
kvæmt vefsíðunni tjalda.is sem veitir
upplýsingar um öll helstu tjaldsvæði
landsins.
Upplýsingamiðstöðin ráðleggur
ferðamönnum, sem komnir eru til
landsins og ekki var kunnugt um
hvenær tjaldsvæðin eru opin að hafa
samband við bændur og aðra land-
eigendur og leita leyfis til gistingar á
meðan. gudmundur@mbl.is
Ferðamenn Tjaldað er í Borgarnesi þótt ekki sé búið að opna svæðið þar.
Tjaldsvæðin opnuð
almennt 1. júní
Tjaldsvæði
» Mikill fjöldi tjaldsvæða er í
öllum landsfjórðungum. Flest-
um fylgir salernis- og hreinlæt-
isaðstaða.
» Tjaldsvæðin eru vinsæl og
þétt setin yfir sumarmánuðina.
Gestir eru jafnt Íslendingar
sem erlendir ferðamenn.
» Gistikostnaður er misjafn,
oft 1.000 til 1.500 kr. á mann.
Aukalega er greitt fyrir raf-
magn og aðra þjónustu.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Dæmi eru um að Íslend-
ingar panti svokölluð PrEP
lyf, sem eru forvarnarlyf
gegn HIV-smiti, á netinu
en þessi lyf eru ekki í boði
sem forvörn hér á landi. Í
haust verður byrjað að
bjóða Svíum þau í
forvarnarskyni, greiði þeir
sjálfir fyrir lyfin. Engin formleg
stefna varðandi þessa lyfjagjöf hef-
ur verið mörkuð hér á landi en
þessi sænska leið hefur m.a. verið
skoðuð. Lyfin taka einkum þeir
sem stunda áhættusamt kynlíf og
vilja verjast HIV-smiti.
PrEP er skammstöfun á ensku
og stendur fyrir pre-exposure
prophylaxis. Aðallega er um að
ræða lyfið Truvada sem hefur ver-
ið notað í forvarnarskyni við HIV í
mörg ár í Bandaríkjunum og sýna
rannsóknir að inntaka þess minnk-
ar líkurnar á HIV-smiti um allt að
90%.
Samkvæmt fréttum sænska
ríkisútvarpsins, SVT, gefst ósmit-
uðum Svíum kostur á að fá þessi
lyf frá og með næsta hausti. Þau
hafa verið gefin alnæmissjúkling-
um í Svíþjóð undanfarin ár, en ekki
hefur fengist heimild fyrr en nú til
að heilbrigðir einstaklingar geti
tekið þau í forvarnarskyni. Fram
kemur í frétt SVT að fólk þarf að
greiða sjálft fyrir lyfið og gert er
ráð fyrir að mánaðarskammturinn
muni kosta 6.000 sænskar krónur,
rúmar 90.000 íslenskar krónur.
Gripið sé til allra ráða
Sigrún Grendal Magnúsdóttir
formaður HIV-Ísland segir þessi
lyf ekki vera í boði sem forvörn hér
á landi, en notkun þeirra sé tals-
vert í umræðunni, bæði hér á landi
og á alþjóðavettvangi HIV-
samtaka. Hún segir að allir sem
greinist með HIV hér á landi séu á
lyfjum sem geri veiruna óvirka og
þannig sé komið í veg fyrir smit.
„Það á þó ekki við um fólk frá öll-
um öðrum löndum og svo getur
fólk líka vel verið smitað án þess
að vita af því. Við erum að tala um
mjög alvarlegan smitsjúkdóm og
okkur hjá HIV-Ísland finnst það
skipta gríðarlega miklu máli að það
sé gripið til allra tiltækra ráða til
að takmarka smit.“
Einar Þór Jónsson,
framkvæmdastjóri HIV-Ísland
segist þekkja dæmi um að þessum
lyfjum hafi verið ávísað hér á landi
í forvarnarskyni. „Það eru einstök
tilfelli. Ég veit líka um dæmi um
fólk, sem taldi sig vera í hættu á að
hafa smitast sem hefur fengið lyfið
skömmu síðar,“ segir hann. „En ég
veit einnig um nokkra sem
hafa keypt þessi lyf á net-
inu, oftast samheitalyf frá
Indlandi.“
Einar segir að tilkoma
þessara lyfja hafi mikil áhrif
á líf HIV-smitaðra. Með til-
komu þeirra geti þeir notið
samlífs með maka sínum án
þess að hafa áhyggjur af því
að smita og það hafi mikil
áhrif á andlega líðan þeirra
og velferð.
Enn talsverðir fordómar
Hann hefur fylgst talsvert með
umræðunni um þessa lyfjagjöf á al-
þjóðavettvangi og segir að þættir
eins og gildismat og siðgæði eigi
það til að yfirtaka hana. Þá séu
fordómar gagnvart sjúkdómnum
enn talsverðir. „En þeir sem telja
sig vera í hættu á að fá alvarlegan
smitsjúkdóm eins og HIV ættu að
eiga kost á viðeigandi lyfjum, burt-
séð frá því hvort þeir greiða þau
sjálfir eða ekki. Það skiptir miklu
máli að fólk þekki til þess hvernig
HIV og aðrir kynsjúkdómar smit-
ast og taki síðan upplýstar ákvarð-
anir. Okkur finnst að þessi lyf eigi
að vera í boði. Ef fólk hefur verið
metið þannig af heilbrigðiskerfinu
að það sé í þeim aðstæðum að það
þurfi nauðsynlega á þeim að halda
ætti að greiða þau niður eins og
mörg önnur lyf.“
Haraldur Briem, læknir á sótt-
varnasviði Embættis landlæknis,
segist ekki vita til þess að Íslend-
ingar hafi fengið lyfið ávísað í for-
varnarskyni. „Þetta hefur verið
talsvert rætt hér á landi,“ segir
Haraldur „Ég tel að þetta sé eitt af
þeim málum sem þarf að fara að
taka fastari tökum, en engin form-
leg stefna hefur verið mótuð
ennþá.“
Haraldur segir að þegar til þess
kæmi gæti sú stefna vel verið með
svipuðum formerkjum og í Svíþjóð,
þ.e. að fólk greiddi fyrir lyfin
sjálft.
Engin stefna um
HIV-forvarnarlyf
Dæmi um að Íslendingar panti samheitalyf frá Indlandi
Morgunblaðið/Ásdís
Truvada Þetta lyf hefur verið notað
í forvarnarskyni við HIV um árabil.
Sigrún Grendal
Magnúsdóttir
Einar Þór
Jónsson
Haraldur
Briem
Viktor Örn Andrésson, matreiðslu-
maður á Grillinu, hafnaði í fimmta
sæti og hlaut sérstök verðlaun fyrir
fiskréttinn sinn í Evrópuforkeppni
Bocuse d’Or-matreiðslukeppninnar
sem haldin var í Búdapest. Árangur
hans gefur honum keppnisrétt í
aðalkeppni Bocuse d’Or, sem haldin
verður í Lyon í Frakklandi í janúar
á næsta ári.
Þegar Viktor kemur heim taka
við strangar æfingar, en hann hef-
ur sett stefnuna á verðlaun í Lyon.
Fiskurinn sló í gegn í Búdapest
Ljósmynd/Þráinn Freyr Vigfússon
Stoltir F.v. Sigurður Helgason þjálfari,
Viktor Örn, Sturla Birgisson dómari og
Hinrik Örn Lárusson aðstoðarmaður.
Vertu upplýstur!
blattafram.is
Á HVERJUM DEGI
STUÐLUM VIÐ MÖRG
AÐ KYNFERÐISOFBELDI
MEÐ ÞVÍ AÐ LÍTA
Í HINA ÁTTINA.
Í HVAÐA ÁTT HORFIRU?
Eyrnalokkagöt
Jakkasprengja
30% afsláttur af stökum jökkum
og sumarblússum
Fimmtudag, föstudag og langan laugardag
mbl.is
alltaf - allstaðar
Afi barns á leikskólanum Kiðagili á
Akureyri var fyrir mistök sendur
heim með rangt barn fyrir nokkrum
vikum. Soffía Vagnsdóttir, fræðslu-
stjóri, segir að röð tilviljana hafi leitt
til þessarar hörmulegu niðurstöðu.
„Eins og gefur að skilja var þetta
mikið áfall fyrir alla,“ segir Soffía.
Afinn, sem er mikið fjarverandi og
hittir barnið sjaldan, fór á leikskól-
ann til að sækja barnabarn sitt, sem
er tveggja og hálfs árs. Hann fór
hins vegar inn á ranga deild og gaf
þar upp nafn barnsins sem hann ætl-
aði að sækja. Leikskólakennarinn
sem tók á móti honum taldi sig
heyra annað nafn, sem var líkt, og
sótti barn með því nafni.
Afinn fór síðan heim og hálftíma
síðar kom amman heim og tók þá
eftir því að barnið var ekki barna-
barn þeirra hjóna. Þau fóru þá með
barnið til baka á leikskólann. Í milli-
tíðinni hafði móðir barnsins komið til
að sækja það, en greip í tómt.
Soffía segir að rætt hafi verið við
bæði leikskólastarfsmenn og for-
eldra, sem hafi tekið vel á málinu.
Atvikið teljist engu að síður alvar-
legt, enda segi reglur til um að hver
sem er eigi ekki að geta gengið inn á
leikskóla og sótt hvaða barn sem er.
Í kjölfarið hafi verið farið yfir alla
ferla og ítrekaðar reglur um það
þegar börn eru sótt. Allt verði gert
til að svona atvik gerist ekki aftur.
Afi fór með rangt barn
heim af leikskólanum