Morgunblaðið - 12.05.2016, Síða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016
www.fr.isSylvía G. Walthersdóttir
Löggiltur fasteignasali
Salvör Davíðsdóttir
Nemi til löggildingar
fasteignasala
María K. Jónsdóttir
Nemi til löggildingar
fasteignasala
FRÍTT VERÐMAT
ENGAR SKULDBINDINGAR
HRINGDU NÚNA
820 8081
sylvia@fr.is
Sjöfn Ólafsdóttir
Skrifstofa
„Blaðburðurinn er svipa sem ég hef
á sjálfan mig. Allir þurfa útiveru og
hreyfingu og það er næsta víst að í
rigningu og roki héldi maður sig
heima og biði eftir betri tíð. En þeg-
ar skyldan kallar er farið út hvernig
sem viðrar, sem er hið besta mál,“
segir Guðmundur Hafliðason, blað-
beri í Hafnarfirði.
Nokkrir hafa verið í blaðberasveit
Morgunblaðsins í áratugi og er Guð-
mundur einn þeirra. „Þetta eru
sjálfsagt orðin 25 ár eða svo. Upp-
haflega voru strákarnir mínir í út-
burðinum en svo eltust þeir og áhug-
inn fjaraði út. Einhverra hluta vegna
þróaðist þetta síðan þannig að pabb-
inn tók við af sonunum, gerðist blað-
beri og hefur verið síðan,“ segir
Guðmundur. Hann hefur borið út
Morgunblaðið í ýmsum götum í
hverfunum í Hafnarfirði; nú síðast í
Sléttahrauni, Arnarhrauni, Fálka-
hrauni, Krókahrauni og fleiri götum
þar um slóðir. „Þetta geta verið 200
blöð þegar best lætur. Stundum fer
ég á fætur og dríf mig í blaðburðinn
klukkan fjögur á nóttinni, til þess að
geta verið kominn í mína vinnu upp-
úr klukkan sex.“
Guðmundur er afgreiðslumaður á
þjónustustöð 10-11 og Skeljungs við
Kleppsveg í Reykjavík. Hann segir
þessi tvö störf falla ágætlega saman
og sjálfum þyki sér gott að vera bú-
inn að hreyfa sig og fá súrefni í lung-
un fyrir langa vakt á bensínstöðinni.
„Já, ef fólk hefur tök á er blað-
burðurinn ágæt aukavinna. Þessar
20 þúsund krónur á mánuði sem
þetta skilar mér er kannski ekki há
tala, en að hafa þennan hvata til þess
fara út og hreyfa mig skiptir meiru.
Ef ég tek þennan göngutúr í morg-
unsárið verður dagurinn sem í hönd
fer alltaf svo miklu betri, en ella
væri,“ segir Guðmundur að síðustu.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Matthías Lýðsson
Blaðberinn Guðmundur Hafliðason gluggar í íþróttirnar í Mogga dagsins.
Útivera og dagur-
inn verður góður
árinu 2014. Gerðar voru umtals-
verðar lagfæringar á húsnæði skurð-
stofu og á svæfinga- og gjörgæslu-
deild. Að sögn Bjarna Jónassonar
forstjóra var verulegum fjárhæðum
varið til endurbóta á loftræstibúnaði
og vegna brunavarna í kjarnabygg-
ingu. Þá voru lagfæringar gerðar á
húsnæði Kristnesspítala. Kostnaður
við endurbætur á húsnæði nam 203
milljónum á árinu.
Fjárveiting til tækjakaupa nam
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Nýtt skátaheimili, Hyrna, var tekið
í notkun í gær í gamla húsmæðra-
skólanum við Þórunnarstræti. Fast-
eignir Akureyrar afhentu Skáta-
félaginu Klakki þá neðstu hæð
hússins til afnota, en breytingar á
húsnæðinu hafa staðið undanfarin
misseri.
Ólöf Jónasdóttir, félagsforingi
Klakks, er alsæl með nýja húsnæðið.
Sagði hún félagið hafa verið með frá-
bæra aðstöðu að Hömrum, en það
svæði skátanna er töluvert fyrir ut-
an bæinn og þar verða áfram úti-
fundir hjá krökkunum, að sögn Ólaf-
ar. „Aðstaðan hér er líka ótrúlega
góð. Nú erum við miðsvæðis og
krakkarnir geta komið labbandi eða
hjólandi. Þetta verður auðveldara
fyrir krakkana,“ sagði hún í gær.
Félagar í Klakki eru nú 115 að
sögn Ólafar. „Það hefur verið heil-
mikil uppbygging í félaginu og starf-
semin er mikil.“ Margir eldri skátar
voru viðstaddir athöfnina í gær og
meðal gesta var Bragi Björnsson
skátahöfðingi.
Þrátt fyrir aukna starfsemi á
flestum sviðum var rekstur Sjúkra-
hússins á Akureyri í jafnvægi. Þetta
er meðal þess sem kom fram á árs-
fundi sjúkrahússins í gær. Verkföll
nokkurra starfsstétta höfðu talsverð
áhrif á starfsemina í nokkrar vikur.
Heildarútgjöld SAk í fyrra voru
rúmlega 6,8 milljarðar og hækkuðu
um rúm 9% á milli ára. Fjárveitingar
ríkissjóðs til rekstrar voru 6.077
milljónir og hækkuðu um 10% frá
fyrra ári. Sértekjur námu rúmlega
750 milljónum. Tekjuhalli í lok árs
var 8,5 milljónir króna, 0,1% miðað
við fjárlög.
Á árinu var lokið við viðamiklar
breytingar á bráðamóttöku og
myndgreiningadeild sem hófust á
190 milljónum króna og lækkaði um
83 milljónir frá fyrra ári. Að auki
voru keypt tæki og búnaður að and-
virði 20 milljónir króna fyrir tilstilli
Gjafasjóðs og Hollvinasamtaka
sjúkrahússins.
Sjúkrahúsið hlaut á árinu al-
þjóðlega gæðavottun á starfsemi
sinni, fyrst íslenskra heilbrigðis-
stofnana, eins og áður hefur verið
greint frá. Vottunaraðilinn er alþjóð-
lega fyrirtækið DNV GL, en um er
að ræða fyrsta áfangann á leið til
vottunar sjúkrahússins samkvæmt
ISO 9001:2015 staðlinum sem stefnt
er að árið 2017.
Sjúkrahúsið tók á árinu upp
formlegt samstarf um framhalds-
nám í lyflækningum á Íslandi með
samstarfi Landspítala og Royal Col-
lege of Physicians. Þessi samningur
styrkir Sjúkrahúsið á Akureyri enn
frekar í sessi sem kennslusjúkrahús,
að sögn Bjarna.
Afi barns á leikskólanum Kiða-
gili var fyrir mistök sendur heim
með rangt barn fyrir nokkrum
vikum. Soffía Vagnsdóttir, fræðslu-
stjóri á Akureyri, sagði í gær að röð
tilviljana hefði orðið til þess arna.
Fram kom á RÚV að afinn væri
mikið fjarverandi og hitti barnið
sjaldan. Hann fór inn á vitlausa deild
og gaf upp nafn barnsins sem hann
hugðist sækja en starfsmanni heyrð-
ist hann nefna annað nafn og sótti
annað barn.
Hálftíma eftir að afinn kom heim
með barnið kom amman heim og átt-
aði sig á því hvers kyns var. Þau
drifu sig á leikskólann en í millitíð-
inni hafði móðir barnsins, sem er
tveggja og hálfs árs gamalt, komið
að sækja það. „Þetta var mikil sorg
og erfitt fyrir alla,“ sagði Soffía í
gær. Rætt hefði verið við bæði leik-
skólastarfsmenn og foreldra, sem
hefðu tekið afskaplega vel á málinu.
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Eitt sinn skáti ... Bragi Björnsson, skátahöfðingi Íslands, ávarpar gesti við vígslu nýja skátaheimilisins í gær.
Gleðidagur skáta og sjúkrahússfólks