Morgunblaðið - 12.05.2016, Síða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
sími 571 5464
Smart föt, fyrir smart konur
www.odalsostar.is
Nýjasti meðlimur Óðalsfjölskyldunnar er
framleiddur í Skagafirði og nefndur eftir fjallinu
Tindastól. Tindur er einstakur ostur sem fengið
hefur drjúgan þroskunartíma þar til hinu
einkennandi þétta bragði hefur verið náð.
Óðals Tindur er sérstaklega bragðmikill, hæfir
við ýmis tækifæri og er dásamlegur einn og sér.
Tindur parast vel með sterku bragði enda lætur
hann fátt yfirgnæfa sig.
TINDUR
SKARPUR
hún hafi getað spilað margt, svarar
hún: „Maður var að reyna þetta.“
Heimilinu í Litla-Fjarðarhorni hef-
ur verið svo lýst að þar hafi ríkt glað-
værð og bjartsýni og frábær gestrisni.
Nanna kom til Siglufjarðar haustið
1944, flutti úr Litla-Fjarðarhorni
með örstuttri viðkomu í Reykjavík.
Andrea, móðir hennar, kom með
henni, en þá bjuggu þrjár systra
Nönnu á Siglufirði.
Nanna kynntist litlu síðar Baldvini
Guðjónssyni, sjómanni og verka-
manni, ættuðum úr Svarfaðardal,
hann var fæddur 1. desember 1897,
og þau gengu í hjónaband 9. júní
1946. Hann lést 12. nóvember 1975,
77 ára að aldri. Þau voru barnlaus, en
Baldvin átti fyrir eina dóttur.
Franklínshúfurnar
„Ég vann mest í síld og fiski, eftir
að ég kom hingað,“ segir Nanna. „En
í lok sjöunda áratugarins opnum við
svo litla verslun og erum með hana í
um 14 ár. Hún hét fyrst ekki neitt, en
svo var alltaf verið að spyrja mig af
hverju verslunin héti ekki neitt. Ég
svaraði því til að við værum svo fá-
tæk í anda hér fyrir norðan. En að
endingu fékk hún svo nafnið Búrið.“
Nanna hafði eignast prjónavél,
þegar hún bjó í foreldrahúsum og
seldi varning þar í kring, aðallega
peysur og nærföt, en fljótlega eftir að
þau hjón opna verslunina á Siglufirði
kemur ungur drengur til hennar og
biður hana um að gera fyrir sig húfu
eftir kúnstarinnar reglum. Sem hún
og gerir, eftir nokkra umhugsun. Það
var upphafið að Franklínshúfunum
svokölluðu, sem áttu eftir að fara um
land allt og víða um heim á næstu ár-
um. „Já, ég seldi mikið,“ segir
Nanna, þegar hún er spurð út í málið.
„Ég man að ég sendi einu sinni 45 í
einu til Ísafjarðar.“
Stærstu breytinguna á Siglufirði
segir hún vera þá, að hann hafi
stækkað svo mikið frá því hún sá
hann fyrst, þanist út í allar áttir.
Nanna er mikil félagsvera, en hefði
ekkert á móti því að hlaupa yfir þessa
viku. Seinni partinn á morgun, nánar
tiltekið kl. 16:30, á nefnilega að halda
upp á stórafmælið í matsal dvalar-
heimilisins. Hún kveðst vera lítið
fyrir slíkt.
En hvernig er heilsan?
„Jú, hún hefur alltaf verið góð,“
svarar Nanna. Ég fór reyndar að
eiga erfitt með tal fyrir um þremur
árum og mér finnst það leiðinlegt,
því ég þarf svo mikið að tala. Gár-
ungarnir segja að ég sé að verða bú-
inn með kvótann, það sé ástæðan. Ég
hef aldrei borðað hollustufæði eða
verið í leikfimi eða neinu slíku, hef
alltaf drukkið mjólk og borðað súrt
og saltað og reykt og mikið af því,
þennan kjarngóða mat sem þjóðin
ólst upp við í gegnum aldirnar. Og
svo drakk maður mysuna og slát-
ursýruna út í eitt.
Ég datt frammi á gangi um daginn
en það brotnaði ekkert eða brák-
aðist. Ég skreið inn til mín og sagði:
Ég skal, ég skal, ég skal komast upp
í rúmið. Og ég komst. Og fékk mér
göngutúr eftir það. Það er orðin vika
síðan. Ég finn aldrei til, hef verið
heilsuhraust í gegnum ævina. Alltaf.
Ég er nú hrædd um það.“
„Ég hef aldrei borðað hollustu-
fæði eða verið í leikfimi“
Hallfríður Nanna Franklínsdóttir er 100 ára í dag Fæddist í torfbæ Elsti Siglfirðingurinn
Ljósmynd/Sigurður Ægisson
Afmælisbarnið Hallfríður Nanna Franklínsdóttir er elsti íbúi Siglufjarðar.
VIÐTAL
Sigurður Ægisson
sae@sae.is
Hallfríður Nanna Franklínsdóttir,
elsti Siglfirðingurinn, er 100 ára í
dag, fædd 12. maí 1916 að Litla-
Fjarðarhorni í Kollafirði í Stranda-
sýslu.
Foreldrar hennar voru Franklín
Þórðarson frá Stóra-Fjarðarhorni í
Strandasýslu og Andrea Jónsdóttir
frá Miðhúsum í Kollafirði. Þau eign-
uðust 13 börn og af þeim hafa 9 náð
90 ára aldri. Móðir þeirra, Andrea,
sem bjó síðustu árin á Siglufirði og
lést þar 1979, varð 97 ára. Tvær af
systrum Nönnu eru enn á lífi, Mar-
grét, sem verður 94 ára á árinu, og
Guðborg, nýlega orðin 92 ára. Þær
búa einnig á Siglufirði.
Hún er alltaf sjálfri sér lík, hún
Nanna, tekur sjálfa sig ekki of hátíð-
lega, kemur til dyranna eins og hún
er klædd, er skörp í orðaskiptum,
hnyttin, skýr í huga, heldur sínu
striki og er bara hún sjálf. „Fá orð í
fullri meiningu,“ er lífsmottóið. Síð-
astliðin 15 ár hefur hún búið á Dval-
arheimili aldraðra á Siglufirði, Skál-
arhlíð, og unað hag sínum vel.
Fædd í torfbæ
„Ég er fædd í torfbæ og enn var
búið í honum þegar ég fór þaðan,“
segir Nanna. Og hún man vel eftir
sér þar vestra. „Ég fór snemma að
tala. Fóstra hans pabba sagði við
mömmu þegar ég var lítil: Andrea,
farðu nú að láta skíra stúlkuna, hún
er farin að bölva,“ segir Nanna og
hlær. „Ég var þá að verða þriggja
ára.“
Hún kveðst ekki muna eftir öðru
en að þau systkinin hafi verið góð
hvert við annað, þótt þau hafi
kannski rifist endrum og sinnum,
eins og gengur.
Skólagangan varð ekki löng, ein-
ungis þrír mánuðir í senn í tvö ár.
Farskóli.
Á jólum var notað heimasmíðað
jólatré, skreytt með berjalyngi. Gjaf-
irnar nýir sokkar eða nýir skór eða
eitthvað slíkt, en reynt að hafa eitt-
hvað betra til matar. Og einn sið frá
þeim árstíma tók hún með sér út í líf-
ið þegar hún flutti að heiman, en það
var að hafa kveikt eitt ljós á jóla- og
nýársnótt.
Einnig minnist hún þess, að faðir
hennar hafi sagt við hana litla um
sumar: „Það er óhætt fyrir þig að
fara inn og segja fólkinu að baka
lummur með kaffinu, það á að slá bæ-
inn úr grasi.“ Þá átti að fara að slá í
kringum bæinn og var því fagnað
með téðum hætti.
Ung lærði hún að spila á pínulitla
harmonikku sem til var á heimilinu,
en þegar hún er spurð um það hvort
Foreldrar Nönnu voru Franklín
Þórðarson frá Stóra-Fjarðar-
horni í Strandasýslu, f. 1879, d.
1940, sonur Þórðar Sigurðs-
sonar hreppstjóra og bónda þar
og Sigríðar Jónsdóttur ljós-
móður, og Andrea Jónsdóttir, f.
1881, d. 1979, frá Miðhúsum í
Kollafirði, dóttir Jóns Andrés-
sonar bónda þar og Guðrúnar
Jónsdóttur húsfreyju, en hún
var ættuð úr Miðfirði í Vestur-
Húnavatnssýslu.
Franklín og Andrea voru gefin
saman í hjónaband í Fellskirkju
23. maí 1903, hann 23 ára, hún
21 árs. Þá voru íbúar Stranda-
sýslu um 1.800, nú eru þeir um
740. Þau hófu búskap í Þrúðar-
dal vorið 1904 en fluttu ári síð-
ar yfir Kollafjörð að Litla-
Fjarðarhorni.
Þau eignuðust 13 börn sem
eru: Þórður, f. 1903, d. 1991,
Sigurður, f. 1903, d. 1983,
Hermína, f. 1906, d. 2000, Egg-
þór, f. 1908, d. 1994, Anna Mar-
grét, f. 1910, d. 2015, Guðbjörg
Magnea, f. 1912, d. 2005, Guð-
mundur Helgi, f. 1915, d. 2005,
Hallfríður Nanna, f. 1916, Bene-
dikt Kristinn, f. 1918, d. 2010,
Jón Líndal, f. 1919, d. 1999,
Margrét, f. 1922 og Guðborg, f.
1924.
Stór systk-
inahópur